Vikan - 21.03.1994, Qupperneq 23
VlÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
sem fylgir erfðum og sé hluti
af náttúrunni. Maður sér
þetta fyrirbæri örugglega hjá
öðrum dýrategundum?"
Hvar liggur þá vandinn?
„Mér finnst þessi hlutur
eins eðlilegur og hægt er að
hugsa sér. Mér finnst í raun
aðrir vera óeðlilegir. Ég
skynja mig alls ekki sem
haldna einhverju óeðli.“
Hvað finnst þér um þjóðfé-
lagsstöðu samkynhneigðra
nú á tímum?
„Mér finnst við alls ekki
vera inn í heildarmyndinni.
Það er hreinlega ekki gert
ráð fyrir okkur."
Myndi þig til dæmis langa
til að giftast?
„Nei, alls ekki. Það er ekki
mjög ofarlega í huga mínum
en auðvitað gæti það verið
inni f myndinni og það er
bagalegt að hafa ekki rétt til
að gera það sem mann lang-
ar til og eitthvað sem gerir
ekki neinum mein.
En það koma ýmis önnur
mál inn í þessa umræðu
eins og til dæmis erfðaréttur,
tryggingabætur, sambúðar-
skráning, samnýting skatt-
korts, fjölskylduafsláttur ým-
iskonar og svo framvegis.
Tryggingafyrirtæki hafa verið
mjög jákvæð en margir aðrir
aðilar eiga töluvert í land
með að bæta sig að þessu
leyti.“
Hver er aðalhindrunin af
hálfu kerfisins í sambandi
við ykkur?
„Eg get nefnt þér dæmi.
Anna lenti í umferðarslysi og
þurfti á félagslegum bótum
að halda en litið var á það
mjög alvarlegum augum
með tilliti til bóta að hún væri
f sambúð en það var bóta-
greiðanda verulega til tekna.
Um leið og slíkt horfir öfugt
við verður sambúðaraðilinn
allt í einu ósýnilegur og litið
er á hann sem einstæðan.
Ég hefði til dæmis getað
notað hennar skattakort
þegar hún var frá vinnu en
það var ekki til í dæminu!
Þetta er svona smá saga um
hvernig þeir, sem eru á
mörkum hins skilgreinda
kerfis, verða fórnarlömb
hentistefnu.
KYNLÍF LESBÍA
Mikið af samkynhneigðu
fólki hefur upplifað ótrúleg-
ustu hluti, á kynlífssviðinu
sem öðrum, sem mætti
halda að þyrfti margar
mannsævir til.
Það er til ótrúlegur fjöldi af
skemmtilegu og spennandi
fólki innan þessa geira sem
er að gera eitthvað óvenju-
legt; fólki sem fer aðrar leiðir
og vinnur oft óhefðbundin
störf sem oft á tíðum eru
mjög skapandi.
Ég sé ekki eftir einu ein-
asta augnabliki sem ég hef
upplifað f þessum heimi
samkynhneigðarinnar sem
mér finnst mjög spennandi
og skemmtilegur.“
Nú velta því sjálfsagt
margir fyrir sér hverskonar
kynlífi lesbíur lifa og talað er
um allskyns hjálpartæki ást-
arlífsins. Eru gervilimir til
dæmis ekki eitthvað sem til-
heyrir karlímyndinni og virk-
ar óspennandi fyrir lesbíur?
„Nei, það myndi ég ekki
segja. Það er frekar litið á
slíka hluti sem krydd í tilver-
una. Hjálpartæki eru notuð
af öllum en það er útbreiddur
misskilningur að önnur kon-
an þurfi að leika karl til að
þær geti notið kynlífs.
Hvernig svo sem allir þessir
hlutir eru framkvæmdir þá er
það upplifunin með konunni
sem skiptir höfuðmáli og lík-
amar beggja eru í flestum til-
fellum alveg nægjanlegum
„tækjum" búnir til að stunda
fullkomið kynlíf. Sagt er að
heilinn sé nú einu sinni mikil-
vægasta kynfærið. Ef fólk
heldur að eiginlegar samfar-
ir, undir teppi í myrkri, sé
það eina sem kynlíf snýst
um þá er þeim mikil vorkunn.
Mín sannfæring er sú að karl
og kona geti lifað fullkom-
lega ánægjulegu kynlífi án
þess að hafa nokkurn tím-
ann samfarir.
Svona að lokum, þá finnst
mér hræðilegt þegar fólk er
að dæma einhverja hluti fyr-
irfram án þess svo mikið
sem gera tilraun til að kynna
sér málin áður.
Það eru mjög jákvæð mál
að gerast í heiminum al-
mennt þar sem fólk í topp-
stöðum er að koma fram og
viðurkenna kynhneigð sína
og mér finnst það mikill
styrkur að finna að maður er
ekki einn í sínu horni. Það er
mjög mikilvægt að hafa
sterkar fyrirmyndir því það
gefur manni aukinn kjark til
að standa upp, bæði fyrir
sjálfan sig og aðra, og geta
verið eins og maður er, án
þess að glata sjálfsvirðing-
unni, og verið um leið sterk-
| ari fyrirmynd fyrir aðra. □
Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík
sími: 39990
Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari,
Ásta K. Árnadóttir. Elva B. Ævarsdóttir,
Halla R. Ólafsdóttir.
Þjáist þú af —
vöðvabólgu, bakverk, brjósklosi, þvagleka,
gigt, tognun eða viltu bara grennast.
Trimm-form getur hjálpað.
Bjóðum einn prufutíma.
VERÐ FRÁ 6000 KR.
SNYRTISTOFU ARBÆJAR
HRAUNBÆ 102 - SÍMI 68 - 93 - 10
HULDA
HARSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 $5 62 61 62
OPIÐ MANUD. - FÖSTUD. KL. 9-18.
LAUGARD. KL. 10-14.
1
RAKARA- <t HARqRE/ÐSLUSTVFA
HVERFISGÖTU 62 101 REYKJAVlK
3. TBL. 1994 VIKAN 23
NAFNSPJOLD