Vikan - 21.03.1994, Blaðsíða 13
strákunum, sem áttum þennan skóla, þegar við sátum og töldum út úr rútun-
um allt liðið sem kom úr Höfnunum, Vogunum, Njarðvíkunum, Sandgerði og
Garðinum til að fara í skólann þarna sátum við og athuguðum hvort það
væru einhverjir góðir bitar í fénaðinum sem streymdi þarna í réttina. Og þeg-
ar Sigríður kom með Njarðvíkurrútunni þá sagði ég við kunningja minn:
„Þessa tek ég frá og látið hana í friði.“ Sambandið er búið að standa síðan.
VIKAN: Hvernig gekk ykkur svo að rugla saman reytum ykkar?
MAGNÚS. Það gekk nú brösuglega. Tilhugalífið í Keflavík og Njarðvík á
þessum árum fór fram í nokkrum sjoppum. Það var Mánabar, Stjarnan og
Þórðarsjoppa. Svo, út af einhverju ósjálfráðu fyrirkomulagi, sem ég kann
enga skýringu á, varð maður aö fara þetta strik milli sjoppanna á hverju
kvöldi. Svo voru alltaf skólaböll í Æskulýðsheimilinu eða skólanum til skiptis
um helgar og þar var kjörinn vettvangur til að nálgast bráðina.
VIKAN. Varstu ekki byrjaður að spila með hljómsveitum á þessum árum?
MAGNÚS. Jú, eitthvað. Ég komst nú á eitt og eitt ball fyrir því. Ég var með
hljómsveitina Ecco og spilaði á þessum skólaböllum á móti Skuggum. Ég
komst líka fljótlega að því að stúlkunni fylgdi heimanmundur og það minnkaði
ekki áhugann. Pabbi hennar átti semsé þennan æðislega fína bílskúr, stóran
og rúmgóðan, sem við strákarnir gátum æft okkur í.
VIKAN (viö Sigríði): Hvernig tók pabbi þinn þessu?
SIGRÍÐUR: Hann sagði ekki neitt. Það var aldrei kvartað.
MAGNÚS: Það gekk eðlilega á ýmsu til að byrja með
- áður en ég komst í skúrinn - og ég er alveg viss
um það að ég hef ekki verið frýnilegur kostur
neins foreldris fyrir dóttur sína á þessum tíma.
Unglingur er það kannski aldrei en Sirrí var nú
líka í uppreisn og við vorum eiginlega sam-
taka í þessu bítlaæði okkar. Við vorum rétt
rúmlega fermd þegar þetta var að byrja og
var sem eitraðast.
■ Magnús Kjartansson lætur sér ekki nægja að semja tónlist
og flytja hana, hann er einnig á kafi i margskonar félagsstarfi
tónlistarmanna hér og erlendis. Svo er hann farinn að skipta
sér af stjórnmálum, kominn i bæjarmálaflokk Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði. í þessu lauflétta viðtali kemur hinn
gamansami en um leið ábyrgaðrfulli Suðurnesjastrákur viða
við. M.a. segir hann frá því þegar hann kom fyrst auga á hana
Sigríði. . .
VIKAN 13
ATORKUMAÐUR