Vikan - 21.03.1994, Page 33
sóknarmönnum. Það er sök-
um þess að fyrirbærunum
fylgir hávaði og mikil hreyf-
ing hluta úr stað þannig að til
óþæginda er fyrir þá sem
fyrir verða.
LÍFSÞROSKALEYSI OG
BARNASKAPUR
Sagt er að í tilvikum þann-
ig fyrirbæra sé um að ræða
mjög jarðbundinn einstakling
eða anda sem hefur alls
ekki, í eiginlegum skilningi,
losnað frá jarðsviðinu og
leggur sig eftir þeirri jarð-
nesku orku sem verður fyrir
honum og reynir að skaþa
þau skilyrði í nálægð við lif-
endur sem eru erfið og hvim-
leið eins og t.d. þegar þeir
hreyfa hluti úr stað, hvernig
sem á því stendur. Það er
auðvitað vísbending um
barnaskap og lífsþroskaleysi
viðkomandi einstaklings eða
anda eins og sumir kalla
látna gjarnan.
VAXANDI PIRRINGUR
OG TAUGASPENNA
Þessi skýring gæti átt við í
þeim tilvikum þegar Addi
finnur og sér aðstæður og
andrúmsloft breytast í kring-
um sig. Andrúmsloftið virðist
vera eins og einhver sé á
staðnum sem þó sést ekki.
Hin skýringin sem er mögu-
leg á þessum fyrirbærum er
sú að þau gætu átt upphaf
sitt og tilvist í sálarlífi Adda.
Það er að segja að vaxandi
pirringur hans og tauga-
spenna getur leyst úr læð-
ingi orku sem er hreyfanleg,
kröftug og andleg. Hún get-
ur, vegna tilfinningalegs
uppnáms Adda, komið af
stað fyrirbærum sem þess-
um. Þetta myndi þá kallast
sálrænt ástand sem á upp-
haf sitt í dulvitund hans sjálfs
og ástandið er þá ómeðvitað
og gerir ekki boð á undan
sér en kemur og fer með
miklum fyrirgangi og leiðind-
um og virðist eiga uþþhaf sitt
fyrir utan þann sem uþplifir
það en kemur raunverulega
innan úr sálarlífi viðkomandi
og hegðar sér svona.
VIÐ ERUM BÆDI
VIDTÆKI OG ÚTVARP
Hvað varðar hugsanaflutn-
ing yfirleitt, þá er verið að
þeita í þannig hughrifum hug-
lægri orku í einhverjum til-
gangi. Neikvæðar hugsanir
framkalla vanlíðan hjá þeim
sem við þeim tekur og hjá
höfundi sínum líka. Við erum
nefnilega bæði útvarp og við-
tæki og verðum sökum þess
að vanda allar okkar hugsanir
og vera jafnframt vandlát á
þær sem við tökum við. Það
er því mikilvægt að hugsana-
flutningur sé notaður í já-
kvæðum tilgangi, en ekki
bara til gamans og í full-
komnu tilgangsleysi án
ábyrgðar.
NEIKVÆÐAR OG
JÁKVÆÐAR HUGSANIR
Allar okkar hugsanir hafa
áhrif og það segir sig sjálft að
það er fátt jákvætt við það að
vera að gera tilraunir með
hugsanaflutning sem er
byggður á skökkum forsend-
um eins og t.d. óánægju með
vini sína og vonbrigðum í
samskiptum. Við verðum að
vera alveg klár á þeirri stað-
reynd að hver einasta hugs-
un tekur á sig form og er lif-
andi og hefur nákvæmlega
þau áhrif á okkur sjálf og aðra
sem tilgangur þeirra segir til
um. Neikvæðar hugsanir
hafa neikvæð áhrif n jákvæð-
ar þvert á móti.
TVÍBENT FYRIRBÆRI
Það segir sig sjálft að vin-
irnir hefðu átt að nota já-
kvætt form hugsana til að
gera tilraunir sínar. Þeir hafa
trúlega allir verið jákvæðir í
byrjun, en svo hefur orðið
misskilningur sem veldur þvi
að á milli þeirra vina ganga
mögulega mismunandi góð-
ar hugsanir. Slíkur flutningur
hugsana er vitanlega mjög
tvíbent fyrirbæri og vel þess
| virði að skoða það þetur til
viðvörunar. Sérstaklega með
tilliti til þess að þeir eru að
senda hver öðrum hin og
þessi skilaboðin sem geta
orkað tvímælis og það er
eðlilegt að vara þá við slíku.
NEIKVÆÐAR OG
NIÐURRÍFANDI
HUGSANIR
Nauðsynlegt er því að
benda Adda á að senda
engum hugsanir nema í göf-
ugum og jákvæðum tilgangi,
vegna þess að það eru líkur
á að allar okkar hugsanir
hafi áhrif, stórar sem smáar
og því ekki lítið mikilvægt að
vanda þær. Við eigum ekki
að senda út í andrúmsloftið
hugsanir séu þær neikvæðar
og niðurrífandi og beinist
gegn öðrum. Niðurstaðan er
mögulega sú að strákarnir
hafi með tilraunum sínum
komið einhverju því hug-
lægu og dulrænu sambandi
af stað milli sín sem getur
orðið þeim til vandræða
vegna vankunnáttu verði
það ekki upprætt strax.
VERND OG ANDLEGUR
STUDNINGUR
Addi ætti að efla með sér
meira jákvæði og biðja for-
sjónina um vernd og andleg-
an stuðning í ótta sínum og
óöryggi. Hann ætti ekki að
ástunda hugsanaflutning sem
er vita gagnslaus og fellur
fremur undir kukl en nokkuð
annað eins og honum hefur
verið háttað í tilviki hans og
vina hans. Það er alltaf mjög
tvíeggjað að leysa úr læðingi
öfl sem eru manni ókunnug
og alls ekki víst að maður
geti stýrt þeim eftir eigin
geðþótta, þó að maður fegin
vildi, þegar þau um síðir
snúast upp í andhverfu sína.
HÆTTUR OG
VARKÁRNI
Hugsanaflutningur er ein-
ungis hentugur í formi fyrir-
bæna og jákvæðra mark-
miða sem eru hugsuð öðrum
til blessunar, en alls ekki til
skemmtunar fyrir þekkingar-
snauða á sviðum yfirskilvit-
legra fyrirbæra, þó freistandi
geti verið fyrir okkur að
kynnast því sem er tengt því
leyndardómsfulla. Hættur
þannig kannana eru of mikl-
ar til að hyggilegt sé að
beina sjónum sínum inn á
þau svið sem auðveldlega
geta snúist gegn manni ef
fyllstu varkárni er ekki gætt. í
dulfræðilegum efnum er
ástæða til að fara gætilega
og staðgóð þekking er mikil-
væg.
ÓKUNN ÖFL GETA
VERIÐ VARHUGAVERÐ
í þessum málum þarf að
vera grandvar, jákvæður
upplýstur og meðvitaður um
mögulegar fyrirstöður, ekkert
síður en það sem er ákjós-
anlegt. Eða eins og forvitni
strákurinn sagði: ,,Ég er
handviss.um að það borgar
sig frekar að vera föstum fót-
um á jörðunni en að láta
leyndardómsfull öfl teyma
sig lengra en nefi manns
nemur. Þess vegna er ég
hættur öllu fikti og líður vel.“
□
Með vinsemd,
Jóna Rúna.
Vinsamlegast handskrifið
bréf til Jónu Rúnu og
látið fylgja fullt nafn og
kennitölu, ásamt
dulnefni. Svörin byggjast
á innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og því
miður alls ekki hægt
að fá þau í einkabréfi.
Utanáskriftin er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík
' 3.TBL. 1994 VIKAN 33
SÁLRÆN SJÓNARMIÐ