Vikan


Vikan - 21.03.1994, Síða 37

Vikan - 21.03.1994, Síða 37
því að það treysta allir þeirri þjóð best til að gera góð vín og góða osta sem er fremst í ilmvötnum. Það hlýtur að vera út af því að þeir eru með svona hárfínt nef. Alveg eins gera þeir í tískunni. Þeir eru með bílana sína öðru- vísi, með öðruvísi hönnun - og þeir láta þetta haldast í hendur til að geta selt föt. Nú, þeir eru fremstir í fötun- um en það þýðir það að fólk kaupir af þeim allskonar aðra hönnun sem hefur ekk- ert með föt að gera. Svona helst þetta í hend- ur. Það má ekki lengur hafa þetta svoleiðis hér á íslandi að ein sendinefndin með einhverjum jakkafatabítlum úr frystihúsageiranum er send út með skjalatöskurnar sínar. Á sama tíma eru ein- hverjir aðrir þrír upp í öðru horni á Leifsstöð með laxa- flök og kannski einhverjir enn aðrir í hinu horninu að fara eitthvert annað með ígulkerjahrogn. Þetta gerist ekki svoleiðis, hefur aldrei verið gert svoleiðis og mun aldrei ganga upp svoleiðis. En íslendingar henda tug- milljónum út um gluggann á hverju ári, akkúrat í það að allir eru að fara sitt í hverja áttina og enginn talar við neinn. Það eru ekki margar smáþjóðir í heiminum, minni en íslendingar, að reyna að koma einhverju á markað einhvers staðar. NORRÆNT MILLJARÐASAMSTARF VIKAN: Þú hefur líka verið í sambandi við allskonar fólk erlendis, t.d. varðandi mús- ík. MAGNÚS: Já. Ég hef þurft að sitja töluvert af fundum og ráðstefnum, aðallega samnorrænum. Þar hefur náttúrlega ýmislegt komið fram sem er mjög áhuga- vert. Þó verð ég að segja að mér finnst undarlega háir veggir á milli Norðurlanda- þjóðanna. Til dæmis held ég að það þurfi mjög mikið að gerast á íslandi til þess að danskar, norskar eða sænskar þlötur fari að selj- ast hérna. Ég held líka að það þurfi mjög mikið til að norskar plötur seljist í Sví- þjóð eða finnskar í Dan- mörku. Það skrýtna við Norðurlandabúa er það að þeir vilja ekki kauþa hljóm- plötur hver af öðrum fyrr en þær koma frá Englandi. Þetta höfum við sannreynt. Til dæmis gat hljómsveitin A- ha frá Noregi ekkert selt á Norðurlöndunum fyrr en hljómplötur þeirra komu út á Bretlandi. Við getum talið upp Abba, Roxette, Björku Guðmundsdóttur og fleiri al- þjóðlega listamenn frá Skandinavíu sem höfðu enga möguleika á að koma vöru sinni á markað á hinum Norðurlöndunum fyrr en þeir voru orðnir viðurkenndir og búnir að fá stimpil á rassgat- ið á Englandi. Þetta er sorg- leg staðreynd. Þessi lönd kalla sig vinaþjóðir, telja sig og að hafa samnorrænan sjónvarpsþátt þar sem hvert land byði upp á tvö tónlistar- númer eða skemmtiatriði. Þetta gæti hver þjóð gert i sínu heimalandi því að það er hægt að svissa á milli landa með gervihnattasam- bandi í beinni útsendingu og norrænt skemmtiefni er síst verra en hvað annað. Þegar Skandinavar ná loksins inn á stæri markaði, þá furðar fólk sig einmitt á gæðum tónlist- arinnar og vinnubragðanna í hvívetna. Þess vegna er ein- mitt meira litið upp til Norður- landaþjóðanna en við gerum sjálf því að við gerum svo ■ Þetta er töfrateeki fyrir alla sem haffa gaman aff tónlist og eru svolitlir grúsk- arar í sér. ■ Það má ekki lengur hafa þetta svo- leiðis hér á íslandi að ein sendinefndin með einhverjum jakkafatabítlum úr frystihúsageiranum er send út með skjalatöskurnar sínar. ■ Fálk setur samasemmerki á milli þess að snillingur fæðist i einhverju landi og framleiðslunnar í landinu. eiga sameiginlega menningu og standa í gífurlegu sam- starfi upp á milljarða króna á menningarlegum grunni á hverju ári. Samt er staðan þannig að við teljum að norræn tónlist eigi bara að vera í norrænu húsunum og öðrum stöðum þar sem fólk kemur saman til að éta hrökkbrauð og getur leigt þetta út á plötum. En það eru þó, sem betur fer, ýmsar hugmyndir í gangi um hvernig hægt er að breyta þessu og ég vona að þær nái fram að ganga. Við telj- um að það sé m.a. hægt með því að flytjendur ferðist meira innan Skandinavíu og að útvarpsstöðvar sinni skandinavískri tónlist í al- mennri dagskrá. Það á ekki bara að fjalla um hana í ein- hverjum þáttum milli tíu og ellefu á kvöldin af einhverj- um menningarvitum. Við höfum varpað fram hug- myndum eins og að efna til skandinavískra verðlaunaaf- hendinga í sérstökum sjón- varpsþætti fyrir frammistöðu á hljómplötum og annað slíkt miklar gæðakröfur. En við þorum ekki að meðtaka okk- ur sjálf fyrr en búið er að stimpla okkur í Bretlandi eða Bandaríkjunum. DRAUMAR ÞESS SEM ER BUNDINN VIKAN: Þú heldur semsagt að íslensk nýmenning sé vænleg útflutningsvara. MAGNÚS: Hún er það nú þegar, bara með öfugum for- merkjum. Björk þurfti að flytja til Englands til að geta flutt sína músík sem ég lít á sem íslenska hljómlist. Hún þarf að flytja hana sem út- lenska hljómlist til íslands til að (slendingar kaupi hana. Þessi tvískinnungsháttur truflar mann í sífellu. Islenskt samfélag er þannig innstillt að það vill ekki kaupa sína eigin framleiðslu fyrr en það fær hana innpakkaða sem útlenska. Maður hefur horft upp á það síðastliðin tuttugu ár hvernig íslendingum er seldur útlenski draumurinn, t.d. í gegnum um nöfn á skemmtistöðum - Holly- wood, Broadway og Hard Rock. Menn grípa einn MacDonalds eða eitt Kent- ucky-læri o.s.frv. Við vitum að þetta eru íslenskir ham- borgarar og kjúklingar en allt ( einu er þetta orðið miklu betra en áður af því að það er búið að pakka því inn í út- lenskar umbúðir. Ég hef aldrei getað dáðst að þessu beinlínis en kannski hefur maður komist snemma yfir þetta af því að maður er að hálfu leyti alinn upp á Kefla- víkurflugvelli og upplifði þetta samneyti við útlönd kannski svolítið öðruvísi en aðrir landsmenn. Þess vegna er maður kannski með örlítið minni minnimátt- arkennd fyrir því sem er út- lenskt. VIKAN: Hvað heldurðu að þú verðir að gera um þetta leyti næsta ár? MAGNÚS: Ég held ég verði að klára þetta Ijóða- verkefni akkúrat um þetta leyti á næsta ári og vonandi verð ég líka að leggja síð- ustu hönd á söngleik. VIKAN: Söngleik? Er hann langt kominn? MAGNÚS: Ja, ég er kom- inn með töluvert efni og sag- an er komin. Þetta er ekki mjög umsvifamikið stykki eða glæsisýning, heldur er þetta í huga mínum sýning sem á að vera hægt að fara með í skólana og flytja þar. Efnið fjallar um stúlku sem fæðist þroskaheft og er sett á hæli. Svo kemur í Ijós, um leið og samband næst við hana í gegnum tölvubúnað, að hún er siður en svo and- lega þroskaheft. Þessa sögu höfum við fengið að uþþlifa svo sterkt á íslandi, t.d. í gegnum hana Ásdísi Jennu. Ég sá í sjónvarpinu sýnt frá útskriftarhátíð Menntaskól- ans við Hamrahlíð, þar sem allir voru að taka á móti brottfararskírteininu sínu, og hún var sú eina af fleiri tug- um nemenda sem réði sér ekki fyrir kæti yfir því að vera búin að ná þessum áfanga. Hún brosti og naut þess svo greinilega að hafa náð þessu takmarki í lífinu með- ' an hinir hálf bölsótuðust í gegnum þessa athöfn. Ég er að fjalla um það í huganum ennþá að ganga frá sýningu, sem segir frá þessu ferli og draumum þess sem bundinn er af svona mikilli fötlun, en sýnir okkur svart á hvítu að vilji er allt sem þarf. □ 3. TBL. 1994 VIKAN 37 ATORKUMAÐUR

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.