Vikan - 21.03.1994, Page 45
þessa miklu áreynslu. í dáleiðslu
er þetta aftur á móti mjög auð-
velt. Ég efli hjá þeim líkamsstyrk-
inn með hugarorku, því hugur
stjórnar líkamanum. Það væri
meira að segja hægt að láta tvær
til þrjár manneskjur setjast ofan á
eina og hún gæti auðveldlega
borið þær. Styrkurinn verður
meiri og þarna er bara verið að
efla það sem þegar er til staðar."
- Getur þetta ekki verið hættu-
legt fyrir líkamann?
„Nei, og fólk finnur hvorki fyrir
eymslum né harðsperrum."
- Hvað var það sem þú hvísl-
aðir að krökkunum þegar þú dá-
leiddir þau í sjónvarpinu?
„Það er atvinnuleyndarmál."
- Muna þau eftir því?
„Já, já.“
- Hvaða fleiri atriði hefur þú
notað þegar þú heldur dáleiðslu-
sýningar?
„Ég hef haldið ýmsar sýningar
og er mikið í því núna. Fer í skóla
og á ýmsar aðrar skemmtanir þar
sem ég kem fram með nokkur
sýningaratriði. Þetta eru svona
atrið þar sem verið er að leika sér
með ímyndunarhluta hugans. Ég
læt fólk lifa sig inní margvísleg
hlutverk og leika ímyndaðann
veruleika. Þetta virkar mjög raun-
verulegt, alveg eins og þegar við
vorum krakkar að leika okkur og
lifðum okkur inní hlutverk og
bjuggum til það sem vantaði uppá.
Það var alveg nógu raunverulegt.
Það gerist það sama við dáleiðslu,
maður lifir sig innf ímyndaðan
heim sem er mjög skemmtilegur
og raunverulegur fyrir manneskj-
una á þeirri stund.“
- Maður veltir því fyrir sér þeg-
ar maður sér dáleiðslusýningaratr-
iði þar sem fólk hagar sér oft og
tíðum eins og apakettir á fylleríi
hvort það sé í raun og veru í dá-
leiðslu eða hvort það leikur bara
uppá grínið það sem því er sagt?
„Það náttúrlega er að leika en
það lifir sig inní atriðið mjög auð-
veldlega alveg eins og krakki
sem lifir sig inní leikinn sinn.
Sviðsdáleiðarar nota það að efla
stöð heilans sem er ímyndunar-
aflið og gera leik fólksins mjög
trúverðugan. Þetta ástand er ekki
ólíkt því þegar mann dreymir.
Draumar geta verið trúverðugir
og þegar maður vaknar finnst
manni þeir hafa verið raunveru-
legir. Samt gerir maður skýran
mun á draumi og veruleika."
MARGSKONAR
GOÐSAGNIR í SAMBANDI
VIÐ DÁLEIÐSLUNA
- Er hægt að dáleiða alla?
„Nei, ekki þá sem vilja það
ekki. Það getur líka verið mjög
erfitt að dáleiða fólk sem er úr
sambandi, ef svo mætti segja.
Fólk sem getur ekki fylgt einföld-
um leiðbeiningum. En það er
hægt að dáleiða 98% þjóðarinn-
ar. En alveg eins og sumir sofa
fast og aðrir laust þá er fólk mis-
móttækilegt fyrir dáleiðslu."
- Geta allir dáleitt annað fólk?
Gæti einhver manneskja fylgst
nákvæmlega með því sem þú
gerir og segir þegar þú dáleiðir,
farið svo heim og dáleitt einhvern
þar?
„Ef manneskjan væri samþykk
og sá sem dáleiðsluna reyndi
myndi fylgja því eftir sem ég geri
hér þá eru allar líkur á því að það
gæti tekist. En þetta er bara eins
- Sú hætta er þá ekki fyrir
hendi að þú dáleiddir mann og
yrðir síðan bráðkvaddur, að mað-
urinn yrði fastur í dáleiðsluá-
standinu?
„Nei, það er enginn hætta á
því. Maðurinn gæti vakið sig
sjálfan."
- Hverjar eru algengustu goð-
sagnir í sambandi við dáleiðsl-
una?
„Þær eru margar og margs-
konar. Til dæmis ómeðvitundin,
fólk heldur að það verði ómeð-
vitað og viti ekki hvað það segir
eða gerir. Sumir halda að þetta
geti verið hættulegt en það er
alls ekki tilfellið, dáleiðsla getur
aldrei verið hættuleg. Eins það
og ef þú færir á sjúkrahús og
fylgdist með uppskurði og færir
svo heim og skærir einhvern upp.
Þú gætir sjálfsagt skorið upp en
það er spurning um hversu vel
það væri framkvæmt. Það getur í
sjálfu sér hver sem er lært að dá-
leiða með þeim texta og formi
sem notað er en beitingin yrði
fúsk. En ólíkt því að skera upp
manneskju þá er ekki hægt að
valda eins miklum skaða með
dáleiðslufikti. Amatörar gætu því
hugsanlega dáleitt en kunna bara
ekkert með það að fara.“
- Hefur það komið fyrir þig að
erfitt hefur verið að vekja fólk úr
dáleiðsluástandi?
„Nei, aldrei. Það er ein af goð-
sögnunum að ekki sé hægt að
vekja alla eftir dáleiðslu. Það
geta meira að segja allir vakið sig
sjálfir hvenær sem er.“
að vakna ekki úr dáleiðsluást-
andi, það er ástæðulaus ótti.
Sumir halda líka að hægt sé að
láta menn gera eitthvað í dá-
leiðslu sem því er á móti skapi
en það er ekki heldur hægt.
Þetta eru svona helstu ranghug-
myndirnar sem fólk hefur um dá-
leiðslu."
Dávaldurinn ásamt hluta
af þeim prófskírteinum og
viöurkenningum sem
hann á í fórum sínum.
AUDVELT AD LOKA FYRIR
TÓBAKSLÖNGUN MEÐ
DÁLEIÐSLU
- Nú hefur maður séð í myndum
að dávaldar dáleiða fólk þannig
að það getur munað eða endurlif-
að löngu liðna og annars
gleymda atburði. Getur þú dáleitt
fullorðna manneskju þannig að
hún muni það sem gerðist t.d. á
fimm ára afmæli hennar þó hún
myndi það ekki í vöku?
„Já, já, það er alveg hægt. En
3.TBL. 1994 VIKAN 45
DÁLEIÐSLA