Vikan - 10.09.1998, Síða 30
Umsjón: Marentza Poulsen og Margrét Hallgrímsdóttir Ljósmyndir: Bragi Þór Jósefsson
Þó að epli vaxi ekki á trjám á (slandi þá getur verið gaman að notfæra sér árstíðina þegar eplauppskeran
stendur sem hæst í nágrannalöndum okkar. Um þetta leyti er hægt að fá epli á góðu verði hér sem annars
staðar. Það er ótal margt sem hægt er að útbúa með eplum og má nota þau í forrétti, aðalrétti og eftir-
rétti. Það er um að gera að láta hugmyndaflugið ráða og vera óragur að prófa sig áfram. Hér koma nokkr-
ar uppskriftir úr tilraunaeldhúsi Marentzu og Margrétar úr litla Skerjafirði en þær hafa gaman af að
spreyta sig og nota ýmis hráefni til matargerðar. Því ekki að búa til rússneskt eplapæ eða eplachutney! Svo
eitthvað sé nefnt . Það verður vonandi gaman að fylgjast með hvað hægt er að útbúa úr næstu uppskeru.
Eplabrauð
1 stórt eða 2 lítil
brauð
50 g þurrger
50 g smjör
3 dl vatn, fingurvolgt
2 stór epli,græn
1 dl appelsínudjús
2 tsk. salt
2 dl sólrósarkjarnar
3 dl heilhveiti
ca 11 hveiti
eitt egg til penslunar
Blandið saman þurrefnum og
geri. Hellið fingurvolgu vatninu
í. Skolið eplin og rífið niður á
grófu járni. Bætið þeim ásamt
sólrósarkjörnum og appelsínu-
djúsi út í. Hnoðið deigið vel.
Setjið degið í skál, þekjið og lát-
ið hefast í 1 klst. Þá má taka
deigið aftur og vinna létt upp á
borði sem mjöli hefur verið stráð
á. Formið deigið í 1 stórt eða 2
lítil brauð og leggið á bökunar-
pappír. Stillið ofninn á 200 °C og
látið deigið hefast í aðrar 30 mín.
Penslið með hrærðu eggi og strá-
ið e.t.v. sólrósarkjörnum ofan á .
Bakið í neðri helmingi ofnsins,
30 mín. lítil brauð, en 40 mín.
stór brauð. Setjið á grind og
þekjið, á meðan brauðið er að
kólna.
Ferskt eplasalat
fyrir 2-3
3 epli gul/græn
1 rauðlaukur
4-5 stilkar, ferskt sellerí
1 msk. fersk engiferrót
3 msk. hvítvínsedik
1/2-1 msk. sykur
Afhýðið eplin og skerið niður í fremur
stóra bita, skerið selleríið niður ásamt
rauðlauknum og dreifið yfir eplabitana.
Skerið engiferrótina niður mjög smátt og
setjið í ílát. Hellið edikinu yfir og hrærið
sykrinum saman við og látið þessa blöndu
yfir salat.
30