Vikan


Vikan - 16.02.1999, Qupperneq 31

Vikan - 16.02.1999, Qupperneq 31
að drekka Jóns- messurunnate. Ég vissi um áhrif jurtarinn- ar á þunglyndi en komst um daginn að því að hún hefur áhrif á boðefni í heilanum sem hjálpa vefjagigtarsjúklingum til að sofna. Eitt af því sem einkennir vefjagigt eru svefntruflanir. Nætursvefn- inum er skipt í nokkur stig. Þeirra mikilvægast er djúpi svefninn, þá er hvíldin og urunninn hjálpar mér að ná þessum djúpa svefni og þar með góðri hvíld. Langvarandi verkir orsaka gjarnan þunglyndi og þannig var ástatt um mig. Ég þurfti að taka þunglyndislyf en hef getað minnkað notkun þeirra eftir að ég kynntist Jónsmessur- unnanum.” Te Jónsmessurunnans hef- ur einnig verið notað til að hjálpa alkóhólistum að komast yfir fíkn sína. Þrír læknar við Hilton Head meðferðarstöðina í South Carolina gerðu tilraun þar sem þeir ráðlögðu sjúkling- um sínum að drekka te af jurtinni og niðurstöður þeirra voru þær að þeir sem fóru að ráðum þeirra féllu síður en hinir sem ekki drukku teið og ef þeir byrj- uðu að drekka aftur var það í mun minna mæli en hjá öðrum. Töflur sem innihalda extrakt úr Jónsmessurunna eru fáanlegar í löndunum allt í kringum okkur, svo sem Bandaríkjunum, Norð- afslöppunin al- gjör. Vefjagigtarsjúklingar ná ekki þess svefnstigi nægi- lega vel og hægt er að fram- kalla vefjagigt í heilbrigðu fólki með því að trufla svefnmynstrið. Jónsmess- Aukaverkanir og hvað ber að varast: Líkt og önnur jurta- og náttúrulyf þurfa virk efni Jóns- messurunnans tíma til að verka. Talað er um að í það minnsta þrjár vikur þurfi að líða áður en fólk verður vart við árangur. Varúð! Jónsmessurunninn inniheldur efni sem geta auk- ið Ijósnæmi. Fólk ætti að forðast sterkt sólarljós eða ljósalampa á meðan það tekur töflur eða drekkur te unn- ið úr jurtinni. Börn þurfa minni skammta en fullorðnir. Best er að ráðgast við grasalækni áður en barni er gefin jurtin. Jurtin getur valdið lítilsháttar meltingartruflunum hjá sumum eða vægri húðertingu. Helstu verkanir Jónsmessu- runnans: Efni í Jónsmessurunnan- um hafa verkjastillandi áhrif. Te úr jurtinni hefur reynst vel við tíðaverkj- um, til að koma reglu á svefn bæði hjá börnum og vefjagigtarsjúklingum. Jurtin hefur áhrif á boð- efni í heila sem dregur þess vegna úr bólgum og vanlíðan, einkum hjá gigtarsjúklingum. Læknar hafa mælt með tei Jónsmessurunnans við konur sem finna til þung- lyndis við tíðahvörf. Jurtin er sögð minnka virkni veira í líkamanum og vegna áhrifa hennar á heilaboðefni dragi úr krampaköstum hjá fólki sem hættir til að fá þau. urlöndunum, Bretlandi og Þýskalandi. Hingað til hefur verið bannað að flytja þær inn og segja áhugamenn um náttúrulækningar að þeir hafi ekki getað fengið nein- ar haldgóðar skýringar á því. Lyfjanefnd ríkisins bannar töflurnar en leyfir teið. Samkvæmt upplýsing- um í fræðibókum um lækn- ingajurtir er teið alveg jafn áhrifaríkt og töflurnar. Munurinn felst kannski helst í því að jurtate er oft bragðvont og þau þarf að laga, töflur eru hins vegar á allan hátt þægilegri til inn- töku. Frekari upplýsingar um Jónsmessurunnann: í Journal of Geriatric Psychiatry and Neurology árið 1994 og í British Mcdical Journal í ágúst 1997 voru birtar niður- stöður umfangsmikilla rannsókna sem unnar voru á virkni Jónsmessurunnans. f Newsweek 5. maí 1997 er grein um jurtina, rannsóknir sem á henni hafa verið gerðar og áhrif hennar. Þar er vísað í heimildir í þó nokkrum læknatímaritum. í Heilsuhúsinu fæst bókin Encyclopedia of Medicinal Plants og þar er góð umfjöllun um plöntuna. Vilon 3i

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.