Vikan - 16.02.1999, Síða 41
að ég mannaði mig upp í að
snúa mér að miðaldra
manni, sem var að skoða í
búðarglugga rétt hjá útibú-
inu.
- Hvort ég mætti ónáða
hann og spyrja nokkurra
spurninga? Þetta væri við-
horfskönnun.
Maðurinn leit á mig. Ég
reyndi að brosa og láta sem
það væri eðlilegasti hlutur í
heimi að ég væri að trufla
hann.
Hann hélt það nú. Kon-
an hans væri inni í búð-
inni að skoða og versla og
hann hefði ekkert þarfara
með tímann að gera en
að svara spurningum og
spjalla við mig.
Þessi óvæntu við-
brögð urðu til þess að
auka mér kjark og eftir
þetta vafðist það ekki
fyrir mér að svífa á
hvern sem var og biðja
hann að gefa mér örlít-
ið af tíma sínum. Eitt af
öðru urðu auð eyðublöð
að markvissu vinnslu-
gagni sem ég festi í
möppuna mína og smátt
og smátt var ég orðin
spennt fyrir að vinna úr
niðurstöðunum. Ég þótt-
ist viss um að ýmislegt
sem könnunin leiddi í ljós
myndi koma yfirmönnun-
um í bankanum á óvart.
Það var annan eða þriðja
daginn sem ég stóð úti á
götu með spurningalistann
og ónáðaði vegfarendur sem
ég varð þess vör að fylgst
var með mér. Ég sá út und-
an mér að ungur maður stóð
á næsta götuhorni og hafði
ekki augun af mér. Hann
hallaði sér upp að húsvegg
og í hvert skipti sem ég leit
til hans horfði hann undan,
rétt eins og hann vildi ekki
að ég sæi framan í hann.
Hann gætti þó ekki að því
að hann speglaðist í stórri
verslunarrúðu og því gat ég
auðveldlega fylgst með at-
ferli hans. Þetta var hinn
myndarlegasti strákur, há-
vaxinn og grannur, dálítið
listamannslegur, að því að
mér fannst. Það vakti at-
hygli mína að hann var með
stóra hliðartösku úr striga
sem hékk á annarri öxl
hans. Ég ákvað að kanna
hvort það hugboð mitt að
hann væri að fýlgjast með
mér væri rétt. Ég lét því sem
ég vissi ekki af honum
og
gekk ofar í
götuna þar sem ég tók
mér stöðu og hélt áfram
iðju minni að kanna hug
"hins gangandi vegfaranda”
til bankakerfisins.
Ekki leið á löngu uns ég
sá til ferða piltsins. Hann
gekk í áttina til mín og fór
sér að engu óðslega. Skoð-
aði í búðarglugga öðru
hverju, hallaði sér upp að
húsveggjum með krosslagð-
ar fætur og lét sem hann
væri að gramsa í töskunni
sinni. En það var ekkert
vafamál að hann var að
fylgjast með mér. Ég endur-
tók tilraun mína og aftur fór
á sömu leið. Ég var búin að
eignast skugga.
Ég velti því
ekki mik-
ið fyrir
mér
hver
tilgangur piltsins
með þessari gaumgæfni
væri. Taldi einna líklegast að
honum þætti ég álitleg eða
væri forvitinn um hvað ég
væri að gera. Það hvarflaði
einnig að mér að hann væri
starfsmaður bankaútibúsins
og hefði verið sendur út til
þess að fylgjast með hvernig
mér vegnaði. Hvort ég
ræddi við vegfarendur eða
semdi einfaldlega svörin
sjálf. Ef svo væri skyldi hann
sannarlega sjá að ég er kona
fyrir minn hatt og ófeimin
að gefa mig að ókunnugum.
Pilturinn fylgdist með mér
fram yfir hádegi, en þá var
eins og hann gæfist skyndi-
lega upp. Ég sá að hann
horfði ákveðið til mín en
snerist síðan á hæl og
strunsaði á braut. Nú var
eins og honum lægi skyndi-
lega á.
Ég hafði ekki orð á þessu
við neinn í útibúinu þegar
ég kom þangað að starfsdegi
loknum. Vissi svo sem ekki
við hvern ég hefði átt að
bera mig upp og kannski
var þetta bara siður pilta í
borginni ef þeim leist vel á
stúlku. Ég horfði hins vegar
vandlega í kringum mig
þegar búið var að loka og
starfsfólkið var að yfirgefa
vinnustaðinn. í hópnum var
enginn sem líktist unga
manninum.
Ég verð að játa að ég var
svolítið spennt og eftirvænt-
ingarfull þegar ég hélt út á
)tu morguninn eftir og var
svo annars hugar þegar
ég var að taka niður
svör vegfarenda að ég
stóð sjálfa mig að
því merkja í vit-
lausa reiti. Ég leit
stöðugt í kringum
mig.
Það var komið
fram undir hádegi þegar ég
kom auga á hann aftur. Nú
var hann greinilega varari
um sig en áður. Var inni í
húsasundi og gægðist fram
úr því öðru hverju. En það
var ekki um að villast. Það
var ég sem athygli hans
beindist að. Hann var
klæddur eins og daginn áður
og enn var hann með segl-
dúkstöskuna á öxl. Ég
skynjaði innra með mér að
hann vissi að ég hafði orðið
hans vör og það var greini-
legt að hann lagði mikla
áherslu á að fara varlega.
Vlkan 4i