Vikan


Vikan - 16.02.1999, Side 47

Vikan - 16.02.1999, Side 47
Mynd 5 Einbeittur, starfssamur og viljasterkur Þú tekur fullkomna ábyrgð á lífi þínu og treystir á þínar eigin gerðir fremur en lukkuna. Þú leysir vandamálin á einfaldan og skynsamlegan hátt. Þú ert aldrei í vafa um hvernig þú eigir að bregðast við daglegum viðfangsefnum og ert því valinn til ábyrgðarstarfa vegna þess að fólk finnur til öryggis þíns. Þú ert aldrei sáttur fyrr en þú ert búinn að koma áætlunum þínum í kring og viljastyrkur þinn hefur góð áhrif á aðra. Mynd 6 Rólegur, kurteis og friðelskandi Þú ert mjög afslappaður og þægilegur í umgengni. Þú átt auðvelt með að eignast vini þótt þó gætir þess vel að halda einkalífi þínu fyrir sjálfan þig. Þér finnst gott að komast í burtu öðru hverju til að auðga andann og hugsa um tilgang lífsins. Þú þarft mikið pláss og frjálsræði en þú þarfnast samt félagsskapar. Þú ert sáttur við lífið og tilveruna og kannt að njóta þess sem það hefur að bjóða þér. Mynd 7 Traustur, athugull og fágaður Hin næma athygli þín skynjar gæði og endingu sérstaklega vel. Þú safnar að þér alls konar gersemum sem öðrum yfir- sést. Menning skipar talsverðan sess í lífi þínu. Þú finnur þér þinn persónulega stíl sem einkennist af fágun og gæðum en tíska hefur engin áhrif þar á. Þú vilt umgangast fólk sem þú getur rætt við og kann að njóta með þér lista og fegurðar. Vinnið Mynd 8 Rómantískur, dreyminn og tilfinninganæmur Þú ert mikil tilfinningavera. Þú neitar að skoða hlutina eingöngu út frá raunsæissjónarmiði og vilt láta innsæi þitt ráða. Þú getur ekki lifað án drauma og tilfinningar þínar skipta þig mestu máli í lífinu. Þú afneitar fólki sem ekki ber skynbragð á rómantík og lætur engan trufla hið óvenju frjóa ímyndunarafl þitt. Þú er mjög næmur fyrir tónlist og getur breytt hugarástandi þínu með henni. Mynd 9 Kraftmikill, duglegur og mannblendinn Þú ert alltaf tilbúnn að taka áhættu og tekur stundum á þig mikla ábyrgð við að reyna eitthvað nýtt. Rútína hefur lam- andi áhrif á þig og þú forðast að koma þér í þá aðstöðu að þurfa að vinna sama verkið aftur og aftur. Þú vilt helst geta unnið að rannsóknarverkefnum og aðrir leita gjarnan til þín þegar þeir hyggja á breytingar og frumkvöðulsstarf. Ví ’æri ekki gaman að eignast framandi og spennandi hlut til að fegra heimilið? Einn þessara þriggja hluta gæti oröið þinn ef þú svarar eftirfarandi spurningum rétt og sendir svarið til: Vinnið! Vikan, Seíjavegi 2,101 Reykjavík fyrir 1. mars 1. Hvað heitir heimilislæknir Vikunnar? 2. Hvers konar vörur er verslunin Ego Dekor með? Þessir fallegu hlutir eru frá versluninni Ego Dekor, Bæjarhrauni 141 Hafnafirði. Hún var opnuð 14. november 1998. EgO Dekor, selur vönduð húsgögn og smávöru úr smíðajárni, einnig myndaramma og spegla úr gegnheilum við. Seinnihluta febrúar hefur svo verslunin sölu á massívum gegnheilum húsgögnum úr mahóní, tekki og úr viðartegund sem heitir durian. &}& Dekor Vikan 47

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.