Vikan


Vikan - 16.02.1999, Qupperneq 50

Vikan - 16.02.1999, Qupperneq 50
texti: ióhanna Harðardóttir, myndir: Sigurður Ingólfsson og fleiri Elisabet Stacy- Hurley (Elísabet Unnardóttir) Kynnir Island í verkum sínum Hún er meiri íslendingur en margir þeir sem hafa alið allan sinn aldur á Islandi. Hún er hálf feimin þótt hún sitji heima hjá sér með íslenska fjárhunda í kringum sig og hrafna Óðins, Huginn og Muninn, um hálsinn. Hún málar einhverjar rammíslenskustu myndir sem maður hefur séð eftir nútímalistamann og segir að sér veiti ekkert af auka skammti af huga og minni eins og Óðni og þess vegna beri hún hrafnana um hálsinn. s g kann Jdví mið- ur ekki Islensku þótt ég lærði hana áður en ég fluttist til Bandaríkjanna tveggja ára með móður minni, Unni Loftsdóttur og bandarískum föður. Það voru engir aðrir fslendingar í nágrenninu svo ég hélt málinu ekki við. Ég er alin upp í Bandaríkjunum og hef búið þar alla mína ævi. Samt er ísland land móður minnar og greypt í sál mína. Mér finnst ég ekki vera gestur þar”. Elísabet Stacy- Hurley heldur nú einkasýningu á málverkum og skúlptúrum í Museums of Fine Arts í Washington County í Mary- landfylki, en það er fallegt og virðulegt hús sem hýsir sögulega listmuni fylkisins. Á sýningunni eru margar myndir frá íslandi og unnar á fslandi og það er greini- legt að þær vekja feikilega athygli gestanna. Það er mikill heiður að vera boðið að halda sýningu í þessu safni og fáir núlif- andi listamenn hafa sýnt þar. Auk þess að sýna verk sín í safninu heldur Elísabet fyrirlestra um list sína sem hún kallar „dansað í elding- um” (dansing with lightn- ing) nokkra laugardaga meðan sýningin stendur yfir. Málverk og skúlptúrar í Vintage House Elísabet á og rekur lítið gallerí „The Vintage Hou- se” í Funkstown, Maryland þar sem hún sýnir og selur málverk og skúlptúra eftir sig og aðra. Hún hefur hald- ið nokkrar einkasýningar auk þess hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga í Washington og nágrenni. Hún hefur unnið til ýmissa J 50 Vikan

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.