Vikan


Vikan - 16.02.1999, Page 51

Vikan - 16.02.1999, Page 51
verðlauna fyrir myndlist og verið kjörinn borgarlista- maður í heimabæ sínum. „Eg vil samt ekki láta kalla mig list- málara” segir hún. „Ég er alhliða mynd- listamaður og vinn einnig skúlptúra í tré og jgifs. Ég er búin að vera að teikna og mála síðan ég man eftir mér og Island og íslensk menning hefur alltaf verið mér myndefni. Ég var alin upp sem Islendingur og við ís- lenskar þjóðsögur, mamma las fyrir mig þjóðsögur Jóns Árnasonar og sa^ði mér alls konar sögur frá Islandi, bæði af mönnum, tröllum, draugum og huldufólki og ég drakk þetta allt í mig. Þegar ég varð fullorðin fór ég að lesa allar bækur sem ég fann um ísland og síðan allar þær bækur sem ég fann og voru þýddar á ensku. Ég er búin að lesa Snorra __ - Eddu mörgum sinn- um því þar finn ég svo vel fyrir þjóðarsálinni. Móðir mín var mikill íslendingur og hún tók mig með sér heim í fyrsta skipti þegar ég var þrítug og síðan tvisvar aftur áður en hún dó. Ég varð ást- fangin af landinu eins og skot, ég fann að þetta var mitt land og ég reyni að koma eins oft og ég get til íslands. Ég drekk í mig landslagið. Ég sé allar þessar verur sem mamma var búin að segja mér frá í stokkum og stein- um. Ég skildi strax hvernig þessar sögur urðu til. Þær eru raunveruleiki þeirra sem horfa í landslagið og eru einir með náttúrunni”. /Evintýrið Island Það er greinilegt á myndun- Vintage House er í Funkstown, sem er elsti hluti Hagerstown í Marylandfylki. Elísabet og eiginmaður hennar, Robert Hurley, hafa breytt húsinu í lítið og laglegt gallerí þar sem hún sýnir og selur verk sín. Margir þekktir listamenn hafa fengið aðstöðu í hús- inu um lengri eða skemmri tíma. um að Elísabet elskar ís- land. „Jú, það er satt. Sendi- herrann í Bandaríkjunum, Jón Baldvin Hannibalsson, kom á sýninguna ásamt eig- inkonu sinni og sagði þetta sama. Ég neita því ekki að ég elska þetta land. Kannski kann ég betur að meta landið en þeir sem búa þar að staðaldri og hafa það fyrir augunum allan daginn, alla daga. Þegar hlutirnir verða hverdagslegir yfirsést fólki þær dásemdir og for- réttindi sem það býr við. Elskar íslenska fjárhundinn. Maturinn engu líkur og náttúran eitt allsherjar ævintýri. Ég nýt þessara hluta hins vegar alveg fram í fingur- góma af því að ég sé þá svo sjaldan. Náttúran er stór- fengleg, bæði fögur og ægi- leg í senn og hún bæði gefur og tekur. Ég vil svo gjarna hafa þetta ævintýri nálægt mér og reyni það af fremsta megni. Ég á t.d. þrjá íslenska fjár- hunda, þetta eru frábærir hundar; greindir, tryggir og vinalegir og alltaf í góðu skapi. Ég hef átt margs kon- ar hunda um ævina en þessir veita mér sérstaka gleði af því að þeir eru svo sterkir persónuleikar. Maturinn á íslandi er heldur engu líkur, kjötið, fiskurinn og ómengaða grænmet- ið. íslendingar borða hollan mat og þeir kunna að mat- reiða hann á besta hátt. Betra getur það ekki orðið og ég borða aldrei meira en þar. Öll náttúran á ís- landi er eitt allsherjar ævintýri. Ég geri mér samt fulla grein fyrir því að það er ekki allt gott þar frekar en annars staðar og lífið getur verið erfitt. Heimurinn er ekki allur góður og við megum aldrei gleyma hinum illu öflum og ýmsu öðru sem okkur er ekki sýnilegt með berum augum. Náttúran á íslandi er full af hættum og það er ekkert skrítið að þær hafi birtst for- feðrum okkar í tröll- um og forynjum því landslagið býður upp á það. Ég sé þessar ver- ur alls staðar í landinu og mér finnst að við megum aldrei gleyma þeim, aldrei hætta að sjá þær og varast þær. Þær eru hluti af okkar þjóðararfi og við eigum að bera virð- ingu fyrir honum.” Fjölhæfur listamaður Ég sæki myndefnið í náttúr- una og söguna. Hér í Bandaríkjunum eru tré, dýr og mitt nánasta umhverfi mér myndefni, en á íslandi er það landslagið, sagan og dýrin. En ég mála ekki bara það sem ég sé, heldur það sem ég skynja og birtist mér í landslaginu. Tilveran er ekki eins einföld og hún virðist í fljótu bragði og það er ekki hægt að skoða hana bara með augunum”. Elísabet var hér síðast fyr- ir tveim árum og málaði þá „Betwixed” „Eg sá strax og skildi hvernig þessar sögur urðu til. Ég sé alls konar verur í landslaginu á íslandi og við megum ekki gleyma þeim, þær eru hluti af arfleifð okkar”. Furðuverur skjóta oft upp kollinum í myndum Elísabetar frá óbyggðum ís- lands. mikið. „ Ég þrái að komast fljótt aftur til íslands. Mig hefur alltaf langað til að sýna á ís- landi bara til að athuga hvort ég á erindi til íslend- inga með verkin mín, en mér hefur ekki orðið ágengt með það ennþá. En ég kem samt aftur þótt það verði ekki til að sýna. Ég þarf ekki að heim- sækja ísland til að finna myndefni því landslagið er greypt í mig, ég kem aðal- lega til að efla sjálfa mig og safna þreki. Ég er alltaf svo full af orku og dugleg þegar ég kem þaðan”. Vikan 5/

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.