Vikan - 16.02.1999, Síða 52
TEXTI: SÆVAR HREIÐARSSON
MÆTTI EKKI í EIGIN VEISLU
Johnny Depp mætti ekki á opnun næturklúbbs í París þrátt fyrir að hafa flogið til
Frakklands til að vera viðstaddur opnunina. Depp er einn eiganda La Man Ray
næturklúbbsins en auk þess eiga leikararnir Michael Keaton og Sean Penn hlut í
honum. Þegar stóra stundin rann upp ákvað Depp hins vegar að halda sig fjarri, ef
til vill vegna þess að gamla kærastan hans, Kate Moss, var á staðnum. Gestirnir
hvísluðu því sín á milli að Depp væri í felum með nýju kærustunni sinni, frönsku
leik- og söngkonunni Vanessu Paradis, en þau eiga von á barni saman. Meðal
gesta voru Bono úr U2 og Mick Hucknall, söngvari Simply Red. Depp er ekki
ókunnugur næturklúbbsrekstri því hann er aðaleigandi hins vinsæla Viper Room í
Los Angeles. Undanfarnar vikur hefur leikarinn verið í Englandi þar sem hann leikur
í myndinni Sleepy Hollow undir leikstjórn Tims Burton.
EKKI ANGRA DIVUNA
Söng- og leikkonan Madonna var gestur í spjallþætti Larry King á
CNN fyrir skömmu og yfirmenn stöðvarinnar höfðu allan varann á
áður en dívan mætti í viðtalið. Öllum starfsmönnum var sendur
tölvupóstur um að haga sér vel og halda sig í hæfilegri fjarlægð frá
stjörnunni á meðan hún staldraði við í stúdíóinu. “Það mátti enginn
fara inn í förðunarherbergi, jafnvel ekki förðunarfólkið,” segir einn
starfsmanna.
TRYLLTUR TANGO
Stórstjarnan Robert De Niro lærði að
dansa tangó fyrir hlutverk sitt í mynd-
inni Flawless en tökum á henni lauk
fyrir skömmu. Þar leikur hann mann sem er að ná sér eftir að hafa fengið
hjartaáfall en De Niro leit ekki út fyrir að vera veill fyrir hjarta í lokahófi
starfsfólksins á dögunum. Leikarinn bauð ungri dömu upp í dans og
leiddi hana í gegnum ástríðufull spor við mikinn fögnuð viðstaddra. Síð-
astliðið ár var erfitt fyrir De Niro sem var m.a. bendlaður við vændishring í
Frakklandi. Hann var yfirheyrður vegna málsins en neitaði ásökunum um
að hann væri fastakúnni rándýrra vændiskvenna. í janúar var dæmt í mál-
inu og melludólgurinn, Jean-Pierre Bo
urgeois, hlaut fimm ára fangelsis-
dóm.
GAT EKKI BEÐIÐ
Breska leikkonan Alex
Kingston, þessi rauðhærða
í Bráðavaktinni, hefurfund-
ið hamingjuna á ný. Hún
giftist ástmanni sínum,
þýska blaðamanninum
Florian Haertel, í Santa Fe í
Nýju Mexíkó fyrir skömmu.
Þau höfðu ráðgert að láta
pússa sig saman næsta
sumar en þoldu ekki bið-
ina og fengu dómara í
Santa Fe til að gefa sig
saman. Kingston kynnt-
ist Haertel á “blindu
stefnumóti” skömmu eft-
ir að hún skildi við
breska leikarann Ralph
Fiennes fyrir tveimur
árum. Fiennes hafði þá
fundið sér frillu, bresku
leikkonuna
Francescu Annis,
eftir tólf ára sam-
band með
Kingston. “Hún átti
mjög erfitt eftir
skilnaðinn en Flori-
an hefur reynst
henni vel,” segir
Margarethe
Kingston.
Afmælisbörn vikunnar
16. feb.: Ice-T (1958) 17. feb.: Denise Richards (1972), Lou
Diamond Phillips (1962), Michael Jordan (1963), Rene Russo
(1954) 18. feb.: Molly Ringwald (1968), Matt Dillon (1964),
Greta Scacchi (1960), John Travolta (1954), Cybill Shepherd
(1950), Milos Forman (1932) 19. feb.: Beniciio Del Toro
(1967), Seal (1963), Jeff Daniels (1955) 20. feb.: Lili Taylor
(1967), Andrew Shue (1967), Cindy Crawford (1966), Charles
Barkley (1963) 21. feb.: Jennifer Love Hewitt (1979), William
Baldwin (1963), Kelsey Grammer (1955), Alan Rickman
(1946) 22. feb.: Drew Barrymore (1975), Kyle MacLachlan
(1959) 23. feb.: Veronica Webb (1965), Peter Fonda
(1940) 24. feb.: Billy Zane (1966), Edward James Olmos
(1947) 25. feb.: Téa Leoni (1966), Neil
Jordan (1950) 26. feb.: Michael Bolton
(1954), Johnny Cash (1932) 27. feb.:
" » Elizabeth Taylor (1932), Joanna
Woodward (1930) 28. feb.: Rea Dawn
Chong (1962), John Turturro (1957),
Bernadette Peters (1948), Mercedes
Ruehl (1948) 1. mars: Ron Howard
(1954).
Drew Barrymore verður 24 ára hinn 22. febrúar.
EKKI MEIRI NEKT
Þokkadísin Bridget Fonda hefur aldrei
verið feimin við að fækka fötum í
kvikmyndum en nú er hún farin að
efast um ágæti þess. “Nú hef ég
alltaf varann á áður en ég leik í
nektarsenum,” segir Fonda. “Þær
eru orðnar það sem mest er talað
um í myndunum. Áður fyrr fannst
mér nekt bara eðlilegur hluti af líf-
inu og ég átti aldrei í vandræðum
með nektarsenur. En þær eru
svo oft misnotaðar. Þær
eru notaðar sem gjald-
miðill.” Fonda, sem hætti
með Eric Stoltz á síðasta
ári og tók saman við
sveitasöngvarann Dwight
Yoakam, segist einnig
vera að hægja ferðina í
einkalífinu og sé ekki
eins villt og áður fyrr.
“Ég var drykkfelld og
fiktaði með fíkniefni en
ég fékk leið.á þvLog
ákvað að halda áfram að
lifa lífinu.”
52
Vikan
A
A