Vikan - 14.06.1999, Page 18
Garðhúsgögn
SuÓrœn og
seiðandi
Blómaval er með
þessi glæsilegu
garðhúsgögn til
sölu. Þetta eru
hlýleg og vönduð
húsgögn sem
sóma sér vel hvar
sem er en taka
sig einstaklega
vel út í gamal-
grónum og rækt-
arlegum görðum.
Það gefur þeim
enn meira nota-
gildi að bekkur
fylgi með, því það
býður upp á ýmsa
möguleika í upp-
röðun. Glæsileg
garðhúsgögn.
Hér erum við með öðruvísi hugmynd að garðhús-
gögnum en þetta er finnsk hágæðvara frá fyrirtæk-
inu Lappset sem unnið hefurtil fjölda verðlauna á
sínu sviði. Það er Jóhann Helgi & Co ehf. sem sel-
ur þessar vörur. Eins og sést á myndinni eru
bekkirnir áfastir við borðið og því lítil hætta á að
það fjúki út í veður og vind í hvassviðri sem hrellir
garðeigendur stundum þótt hásumar sé. Þetta er
ekta „þicnic" borð í amerískum stíl sem gaman er
að setja út í miðjan garð, undir tré eða hvar sem
sólin skín. Litríkir dúkar setja skemmtilegan sviþ á
svona borð og eins er fallegt að setja á það stóra,
grófa þlómaþotta þegar það er ekki í notkun.
Afar vönduð finnsk hönnun sem á vel við íslenskar aðstæður. Hér höfum við
tvenns konar bekki sem fylgja með borðinu og annar er með baki. Lappset-
garöhúsgögn eru hönnuð með það í huga að skaþa líf og lit í garða, skrúð-
garða, almenningsgarða, götur og verslunarsvæði. Húsgögnin eru gerð úr gagn-
fúavarinni finnskri furu og þau eru bæði endingargóð og þolin.
18 Vikan