Vikan


Vikan - 14.06.1999, Síða 18

Vikan - 14.06.1999, Síða 18
Garðhúsgögn SuÓrœn og seiðandi Blómaval er með þessi glæsilegu garðhúsgögn til sölu. Þetta eru hlýleg og vönduð húsgögn sem sóma sér vel hvar sem er en taka sig einstaklega vel út í gamal- grónum og rækt- arlegum görðum. Það gefur þeim enn meira nota- gildi að bekkur fylgi með, því það býður upp á ýmsa möguleika í upp- röðun. Glæsileg garðhúsgögn. Hér erum við með öðruvísi hugmynd að garðhús- gögnum en þetta er finnsk hágæðvara frá fyrirtæk- inu Lappset sem unnið hefurtil fjölda verðlauna á sínu sviði. Það er Jóhann Helgi & Co ehf. sem sel- ur þessar vörur. Eins og sést á myndinni eru bekkirnir áfastir við borðið og því lítil hætta á að það fjúki út í veður og vind í hvassviðri sem hrellir garðeigendur stundum þótt hásumar sé. Þetta er ekta „þicnic" borð í amerískum stíl sem gaman er að setja út í miðjan garð, undir tré eða hvar sem sólin skín. Litríkir dúkar setja skemmtilegan sviþ á svona borð og eins er fallegt að setja á það stóra, grófa þlómaþotta þegar það er ekki í notkun. Afar vönduð finnsk hönnun sem á vel við íslenskar aðstæður. Hér höfum við tvenns konar bekki sem fylgja með borðinu og annar er með baki. Lappset- garöhúsgögn eru hönnuð með það í huga að skaþa líf og lit í garða, skrúð- garða, almenningsgarða, götur og verslunarsvæði. Húsgögnin eru gerð úr gagn- fúavarinni finnskri furu og þau eru bæði endingargóð og þolin. 18 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.