Vikan - 14.06.1999, Síða 24
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Myndir: Bragi Þ. Jósefsson
Glæsilegur garður
Kofinn á myndinni á sér sína sögu eins og svo niargt annað í garðinum. Hafíst var
handa við viðbyggingu hússins í kringum 1978. Stefán er nýtinn maður og notaði efnið
sem var í milliveggjum hússins til að smíða leikkofa fyrir börnin. Hver einasta spýta í
kofanum kemur úr upprunalcga húsinu. Járnið á þakið fengu þau hjá nágrönnum sín-
um sem voru að skipta um þakklæðningu á sama tíma.Til að forðast slys settu þau
plasthlera í staðinn fyrir glerglugga. Að sjálfsögðu þarf að halda kofanum fínum og því
er dyttað að honum reglulega eins og öllu öðru í garðinum. A sínum tíma var kofínn
mikið notaður og ákveönar reglur giltu sbr. að ekki mætti fara inn á skónuin. I dag er
yngsta barniö, níu ára drengur, einn eftir í hreiðrinu og hættur að leika í kofanum.
Ömmu- og afabörnin njóta hins vegar góðs af. A pallinum við hliðina á kofanuin er
sandkassi sem lokaður er dags daglega með hlerum. Þegar búa á til sandköku eða fara
í „bfló" er lítið mál að opna hlcrana og þá er kominn þessi fíni sandkassi.
Hulda Cathinca Guðmundsdóttir
fæddist i húsinu sem stendur við
Krosseyrarveg 7 í Hafnarfirði en
upphaflega hét húsið Sólvangur.
Hún lék sér i brekkunum unhverfis
húsið og lóðin var einungis grjót
og gras þegar hún ólst upp. Amma
hennar flutti í húsið stuttu eftir
byggingu þess og síðan bjó móðir
Huldu þar alla sína ævi. Eftir að
hún lést fluttist Huida ásamt fjöl-
skyldu sinni aftur á fornar slóðir, i
gamla húsið við Krosseyrarveginn.
Eiginmaður Huldu, Stefán H. Finn-
bogason er þúsundþjalasamiður og
áður en langt um leið voru þau far-
in að bæta og breyta ibúðarhúsinu
og garðinum umhverfis það.
Hulda og Stefán njóta þess að drekka kaffíð úti á
pallinum og horfa yfír garðinn sinn.
Garðurinn þeirra er
ekki stór í metrum
talinn en hann er
eitt listaverk. Þar má finna
skemmtilegan gosbrunn sem
hannaður og steyptur er af
Stefáni, kofa, kirkju, torfbæ
svo eitthvað sé nefnt. Um-
hverfis húsið er grjótgarður
sem var upphaflega hlaðinn
þegar amma Huldu bjó í
húsinu en fjölskyldan hefur
verið dugleg að halda hon-
um við. Hvergi er steypt á
milli steinanna eins og
tíðkast oft við hleðslu slíkra
garða.
Húsið stendur í halla og
umhverfis það var mikið
grjót. Þau ákváðu strax að
taka eitt horn fyrir í einu og
breyttu því í rólegheitunum.
Gríðarlega mikil vinna fór í
að endurhanna garðinn
bæði vegna grjótsins og hall-
ans.
Séð yfír hluta af garðinum. Að sjálfsögöu smíðaði Stefán bekk-
ina og borðiö og alls staðar má sjá lítil listaverk eftir hann.
Krukkan á borðinu cr öskubakki, steypt eftir móti af Kókflösku!
24 Vikan
Öll vinnan við garðinn
hefur verið unnin af þeim
hjónum og börnunum sem
eru sex að tölu. Þar hafa
garðarkitektar og hönnuðir
hvergi komið nærri.
Augljóst er að garðurinn
er þeim afar hjartfólginn og
vinnan sem hann útheimtir,
ekki kvöð heldur ljúf skylda.
Árið 1990 fengu þau við-
urkenningu frá Hafnarfjarð-
arbæ fyrir fallegan garð,
unnin við erfið ræktunar-
skilyrði. Óhætt er að taka
undir þessi orð bæjarstjórn-
ar Hafnarfjarðarbæjar því í
augum blaðamanns hafa
þau hjón unnið mikið þrek-
virki.