Vikan - 14.06.1999, Síða 50
Hvað segja svefnvenjur þínar um þig?
Sumir segja að svefn-
venjur fólks segi allt
sem þarf um persónu-
leika þess. Hér á eftir
er próf sem ætti að
varpa Ijósi á hvernig
persóna þú ert með
hliðsjón af því hvernig
þú sefur. Veldu þann
möguleika sem á bet-
ur við þig.
Þú manst drauma þína:
a) Oftast.
b) Einstaka sinnum.
a) sefur áfram án þess að
rumska.
b) hrekkur upp af værum
blundi.
Þegar þú ert komin upp í og
búin að slökkva hvað tekur
það þig yfírleitt langan tíma
að sofna?
a) Þú sofnar um leið og þú
leggur höfuðið á kodd-
ann.
b) Tuttugu mínútur að
minnsta kosti og þú þarft
að snúa þér og velta þér
ofurlítið áður en þú finn-
ur góða stellingu til að
sofna í.
Vekjaraklukkan þín er
stillt á...
a) uppáhaldsútvarpsstöðina
þína.
b) hringingu.
Þægilegasta svefnstellingin
er að þínu mati...
a) á bakinu.
b) á maganum eða hliðinni.
Eftir að þið hafið kysst
hvort annað góða nótt, sofn-
ið þið hjónin oft...
a) í faðmlögum þétt upp við
hvort annað.
b) langt frá hvort öðru í
ykkar helmingi af rúm-
inu.
Uppáhaldsnáttfötin þín
eru úr...
a) silki eða satíni.
b) bómull eða flóneli.
Ef þú verður syfjuð yfir dag-
inn ferð þú...
a) og leggur þig litla stund
og vaknar endurnærð.
b) færð þér bolla af sterku
kaffi til að hressa þig við.
Hefur þú vaknað um miðja
nótt og munað eftir erindi
sem þú gleymdir að sinna
yfir daginn og farið á fætur
og skrifað sjálfri þér miða til
að minna þig á að sinna því
þegar morgnar?
a) Nei.
b) Já.
Aður en þú sofnar á kvöldin
þykir þér gott að...
a) koma þér vel fyrir í rúm-
inu og lesa góða bók.
b) horfa á sjónvarpið litla
stund.
A morgnana eru rúmfötin
þín yfirleitt...
a) enn snyrtilega breidd yfir
þig-
b) öll í kuðli einhvers staðar
í rúminu eða á gólfinu.
Svarlykill
Fleiri A svör en B
Þú sefur eins og engill
Þú ert sannkölluð Þyrnirós.
Þú nýtur þess að sofa og vilt
helst sofa sem lengst. í lok
hvers vinnudags hlakkar þú
Að meðaltali scfur þú...
a) 8-10 tíma á sólarhring.
b) 5-7 tíma á sólarhring.
Nágranni þinn er með sam-
kvæmi í gangi og hávær tón-
list berst um nágrcnnið.
Þú...
50 Vikíin
til að koma heim, koma þér
þægilega fyrir í rúminu og
sofna, enda elskarðu að láta
þig dreyma. Ekki er að
undra að þú ert að mestu
laus við allt stress. Þú ert
alltaf til í að fá þér örlitla
kríu yfir daginn eða loka
augunum og dreyma nokkra
ljúfa dagdrauma. Þú ert einn
þeirra sem alltaf veit hvern-
ig best er að slaka á og leyfa
huganum að reika. Ef þú
eyddir þó ekki væri nema
hluta af þeirri orku sem fer í
að láta þér líða vel í að
koma þér áfram í lífinu væru
því engin takmörk sett hve
langt þú gætir náð.
Fleiri B svör en A
Þú lætur drauma þína
rætast
Þú ert einn þessara sem ætla
sér mikið og alltaf ná mark-
miðum sínum.'Um leið og
klukkan hringir stekkur þú
framúr og hendist í sokkana.
Aðferð þín við að ná árangri
er einföld, hvort sem verið
er að sinna heimilinu eða
vinnunni, þú einbeitir þér að
því verkefni sem þarf að
vinna og lýkur því. Aðrir
eru bókstaflega undrandi á
hvað þú afkastar miklu og
hafa oft orð á því, ekki hvað
síst þeir sem vita hversu lít-
inn svefn þú kemst af með á
sólarhring. En þér hættir til
að gleyma að iðjuleysi er
ekki endilega af hinu illa.
Tíminn sem fer í slaka á er
ekki endilega tími sem sóað
er í vitleysu og ef þú gerðir
meira af því að sóa tíma þín-
um á þann hátt gæti það
skilað meiri orku og jafnvel
enn betri afköstum. Vendu
þig á að leggjast fyrir af og
til, slaka á og njóta lífsins.
Þú kannt að komast að því
að það borgar sig.