Vikan - 14.06.1999, Page 59
Blaðamaður Vikunnar var nýlega
að gramsa uppi á háalofti en á
slikum stöðum kennir oft ýmissa
grasa. Þar fann hann meðal
annars þessa yndislega hallæris-
legu bók sem er frá árinu 1950
og er hún nokkurs konar hand-
bók um þá list „ að vinna hylli
karlmanna." Væmni, bleiki litur-
inn á bókarkápunni, myndskreyt-
ingin og síðast en ekki síst titill-
inn, var nóg til að hrollur færi um
nútimakonuna. Eigi að síður var
forvitnin vakin. Bókin reyndist
vera samansafn af leiðbeining-
um fyrir konur varðandi það
hvernig á að vinna hylli karl-
manna og hefst hún á þessum
formálsorðum: „Heimurinn er si-
felldum breytingum undirorpinn
en samt er þess alltaf og mun
alltaf verða vænst af þér að þú
sért kvenleg." Það var nefnilega
það og ekkert öðruvísi! Tilgang-
ur bókarinnar er sagður vera sá
að veita konum leiðbeiningar á
hinum hálu vegum ástarinnar.
Tekið er fram að við lesturinn fái
konur innsýn i sálarlíf karl-
mannsins og geti einnig lært
góða siði og framkomu i leiðinni.
„Heilbrigð skynsemi
segir þér að þú megir
ekki alltaf hafajafnt
frumkvæði á við karl-
manninn.“
Var þetta talin heilbrigð skyn-
semi fyrir aðeins tæpum fimmtíu
árum síðan?
Ein af gullnu reglum bókarinn-
ar er þessi: „Gefðu gaum að öllu
sem þú kemst á snoðir um hon-
um viðvíkjandi, allt frá sokkanúm-
erinu hans upp í innistæðu hans í
bankanum. Örugg vissa um
þetta og annað þvíumlíkt mun
verða þér dýrmætt leiðarljós í
'jj umgengni við hann." Við getum
£ skilið þetta með bankabókina og
JS verið sammála um að ekki sé
« verra að hugsanlegur maki sé
1 alla vega ekki gjaldþrota eyðslu-
e seggur eða kannski skelfilegur
^ nirfill. Slíkar upplýsingar geta
„ gefið vísbendingar um þersónu-
í leika eða venjur verðandi eigin-
|2 manns. En þetta með sokka-
hylli
„Enginn er fullkomlega ánægður með sjálfan sig nema hálfvitinn.“
númerið erannað mál. Hvernig í
ósköþunum getur slík vitneskja
komið að góðum notum?
,,Glæsileiki hefur mikil áhrif,
sérstaklega við fyrstu kynni. Ef
um gáfaðan mann er að ræða er
ekki ólíklegt að honum sé greind
hugleiknust. Glaðværir piltar
sækjst eftir kátum stúlkum. Að-
lögunarhæfni hlýtur því að vera
höfuðatriöi fyrir þig." Sem sagt,
ekki vera þú sjálf og guð forði þér
frá því að vera sjálfstæður ein-
staklingur. Samkvæmt forskrift
bókarinnar munt þú þá örugglega
piþra og er það álitið hræðileg-
asta hlutskipti nokkurrar konu.
Því átt þú bara að bíta í það súra
og aðlaga atferli þitt, áhugamál
og þersónuleika að honum.
„Þú ættir að einsetja þér að
láta hann aldrei eyða meiru en
hann hefur ráð á. Hafir þú það
ekki hugfast, kann hann að
sleppa af þér hendinni vegna
þess að þú sért of dýr í rekstri
fyrir hann. Karlmönnum
gedjast ekki vel ad eydslu-
sömu kvenfólki." Farið öðru
hvoru í stuttar ferðir á reiðhjólum.
Farið á skauta saman. Þessar
skemmtanir eru honum ódýrar og
auk þess veitist honum tækifæri
til að sýna þér dugnað sinn." Vá!
Rosalega yrði maður hrifinn af
manni sem gæti staðið á skaut-
um.... Það verður að sjálfsögðu
að negla slíkan hæfi-
leikamann á stund-
inni.
Karlmenn kunna
að meta gullhamra
ekki síður en konur
og það er ekki bundið
neinu tímabili í sög-
unni. En lítum á ráð-
leggingar frá 1950
hvernig skuli hrósa þeim: „Ein
leiðin er að spyrja karlmann álits
á einhverju, leita ráða hjá honum
eða óska aðstoöar hans. Þetta
er audvitad sama og ad
vidurkenna ad hann sé þér
meiri. Biddu hann að opna
gluggann ef hann situr fastur í
karminum - hann hlýtur að
minnsta kosti að vera nógu mikið
karlmenni til þess."
Uppskrift af andlegri
kugun og þiáningu
fyrir iífstíð.
Kaflinn sem nefnist ástarhót er
grátbroslegur:,,Gerðu honum til
geðs. Ef hann stingur uþp á ein-
hverju skaltu lýsa þig samþykka.
Ef honum finnst rauður kjóll fara
þér betur en svartur, skaltu vera í
rauða kjólnum og láta hann verða
þess varan að þú gerir það
fyrir hann. Komdu þeirri *
trú inn hjá honum að það \
sé hann sem ráði." Þetta \
\
eru hræðilegar ráðleggingar. w
Uppskrift af andlegri kúgun V'
og þjáningu fyrir lífstíð.
í kafla um persónuleika
stendur eftirfarandi: ,,Enda þótt
við gerum greinarmun á stúlkum
með persónuleika og stúlkum
sem skortir hann, fer því fjarri að
hægt sé að draga skýr mörk þar
á milli. Við eigum við, með þess-
ari skilgreiningu okkar, að sumar
stúlkur séu aðlaðandi og geð-
þekkar, en aðrar leiðinlegar og
sljóar." Ekki beint verið að byggja
upp sjálfsálit kvenna hér.
„Vendu þig á að hlusta með
samúö á mál annarra, að vekja
hjá þér áhuga á fólkinu sem þú
umgengst, jafnvel þótt þú verðir
að gera þér það upp í fyrstu. Með
því ávinnur þú þér dýrmæt per-
sónuleikaeinkenni sem borga sig
margfaldlega í um-
gengni þinni við karl-
menn." í dag mynd-
um við orða þetta á
þann veg að konan
ætti að halda sér
saman og hlusta.
„Enginn er fullkom-
lega ánægður með
sig nema hálfvitinn."
Þetta spakmæli (eða málshátt-
ur?) eru þveröfug við það sem
nýaldarspekin hefur verið að
boða og byggir á því við eigum
að vera fullkomlega sátt við allt í
fari okkar og elska okkur sjálf út
af lífinu. En samkvæmt litlu,
bleiku bókinni værum við hálfvitar
ef við gerðum það.
„Borðaðu hægt og yfirlætis-
laust. Kámaðu ekki andlit þitt
eða föt með matnum og útbíaðu
ekki allan diskinn með honum.
Blettaðu ekki borðdúkinn. Talaðu
ekki með munninn fullan af mat
því slík orðræða er lítt skiljanleg
og auk þess er sú athöfn í meira
lagi ógeðsleg á að horfa." Stund-
um verður maður bara orð-
„Þér er
best ad venja þig á
ad umbera galla hans,
hverjir sem þeir kunna ad
vera." En þú sjálf átt að sjálf-
sögðu að vera fullkomin.
„Fordastu klúra fyndni!
Hann treystir því ad þú
sért yndisleg, saklaus og
hrein.
„Hann mun snúast önd-
verdur vid hvers konar
skerdingu á frelsi sínu. Ef
það kemur í Ijós að nokkrum tíma
liðnum að menntunarskortur
þinn, samanborið við hans, verði
þér til skammar, verður þú að afla
þér meiri menntunar. Vendu þig á
að lesa og fara öðru hvoru á tón-
leika, þó þú botnir ekkert í tónlist-
inni." Þú átt sem sagt að auka
menntun þína til að öðlast meiri
færni í samræðum við hann en
ekki til að víkka þinn eigin sjón-
deildarhring. Ekkert sem konan
á að gera miðar að aukinni sjálfs-
þekkingu hennar eða betra sjálfs-
mati. Hún er ekkert annað en rif-
beinsflís af Adam og hefur engan
sjálfstæðan vilja í þokkabót.
„Forðastu
klura fyndni.
Hann treyst-
ir Jþvi að Jþú
sert yndis-
leg, saklaus
og hrein..."
Vikan 59