Vikan - 14.06.1999, Qupperneq 61
f FYRIRGEFNING 'N
SYNDANNA
Baywatch gellan Yasmine
Bleeth var ekki par hrifin þegar
hún komst að því að sambýlis-
maður hennar, leikarinn Ric-
hard Grieco, væri hugsanlega
orðinn pabbi. Bleeth og Grieco
hafa verið saman í þrjú ár en
nú hefur ung leikkona og fyrir-
sæta, Kimber Sissions, höfðað
faðernismál gegn honum.
Sissions sagðist alveg viss um
að barnið hefði komið undir
eftir nótt með Grieco í ágúst en
hann þvertók fyrir það. Hann
samþykkti þó að gangast undir
DNA próf. Kunningjar Bleeth
segja að hún hafi fyrirgefið
Grieco hliðarsporið og hún ætli
að standa með sínum manni,
hver sem útkoma faðernis-
málsins verði. Kannski hún
hafi sjálf eitthvað misjafnt í
pokahorninu en í vetur heyrð-
ust sögur af henni á ástarfundi
á
f SÝKTUR SÖNGVARI
Barry Manilow er einn ástsælasti tónlistarmaður Bandaríkj-
anna. Hann er nú að undirbúa tónleikaferð í sumar en að-
dáendur hans fengu vægt sjokk þegar þeir fréttu að hetjan
hefði verið flutt í skyndi á spítala í Los Angeles á dögunum
Hann var með alvarlega sýkingu í munni eftir að hafa heim
sótt tannlækni. Manilow fékk þó að fara heim af sjúkrahús
inu tveimur dögum síðar og heldur ótrauður áfram að und-
l irbúa tónleikaferðina, sem hefst í júlí.
Rós Vikunnar
Aö þessu sinni fær fulltrúi íslenskra mæöra,
Anna Jóna Jónsdóttir, Rós Vikunnar.
Þaö er greinilegt aö börn sem hafa notið
móöurástarinnar vilja heiöra hana meö rós-
um. Fjöldi barna og fullorðinna hafa sent okk-
ur bréf þar sem mæöur þeirra hafa verið til-
nefndar til Rósar Vikunnar fyrir hversu vel
þær hafa brugðist viö vanda, bæöi sinum og
barna sinna. I þessum fjölmörgu bréfum hafa
þakklæti, aödáun og ást verið aöaluppistaö-
an.
Því miöur hafa þessi bréf flest átt þaö sam-
eiginlegt, aö þau hafa ekki gefið neinar nánari
útskýringar á því hvers vegna móðirin á rós-
irnar skiliö, né heldur hefur fylgt þeim mynd af
viðkomandi. Okkur hefur reynst erfitt aö velja
eina þeirra úr hópnum til aö heiðra fyrir móö-
urástina. Helst hefðum viö viljaö bregöast viö
öllum þessum bréfum og þakka hverri einustu
móöur, en því miður er þaö ekki hægt.
Við sendum Önnu Jónu rósirnar meö kveöju
frá Þrúöi Maren sem sendi okkur bréfiö. Viö
birtum einnig mynd af Önnu sem dóttir henn-
ar Harpa Rún teiknaði og erum vissar um aö
fleiri mæöur hafa verið teiknaöar á svipaöan
hátt gegnum tíöina.
Þrúöur Maren gleymdi aö senda okkur heimil-
isfang og viö biðjum hana að hafa samband
viö okkur á Vikunni svo viö getum komiö
blómunum til skila á réttan staö.
Rós Vikunnar
Þekkir þú einhvern sem á skiliö að fá rós
Vikunnar? Ef svo er, haföu þá samband
við „Rós Vikunnar, Seljavegi 2,101
Reykjavík" og segöu okkur hvers vegna.
Einhver heppinn veröur fyrir valinu og fær
sendan glæsilegan rósavönd frá