Vikan - 14.06.1999, Qupperneq 62
Texti: Anna Kristine Magnúsdóttir
Myndir: Hreinn Hreinsson
Itaha netur lengi neiiiað, enöa par að tinna voggu toniistar og
menningar. ítalski maturinn er rómaður og á sumrin gefst (s-
lendingum kostur á að komast beint í ítölsku stemmninguna á
fáeinum klukkustundum, því Flugleiðir bjóða beinar ferðir til
Mílanó frá maílokum fram á haust. Þótt Mílanó sé vissulega stór-
borg er hún auðveld yfirferðar. Lestarsamgöngur eru sérlega góð-
ar og neðanjarðarlestirnar flytja ferðamanninn milli hverfa á örfá-
um mínútum. Verslanir bjóða upp á vandaðan fatnað, enda ítalir
heimsfrægir fyrir góða hönnun og vandaðar flíkur. [ Mílanó er
hægt að upplifa allt; menningu, listir, næturlíf, verslunarferð,
markaði og kaffihúsastemmningu. Og alls ekki missa af:
Brera: Listamannahverfið Brera tekur stakkaskiptum þegar
dimma tekur. Alls staðar eru lítil, falleg kaffihús og stemmningin áVia
Fiori Chiari á kvöldin er engu lík. Þar sitja spákonur og spámenn og
alls konar varningur fæst á góðu
verði, t.d. töskur og handgerð
kerti. Þegar gengið er upp Via
Fiori Chiari og beygt til hægri
liggur leiðin á Corso Garibaldi.
Við þá götu máfinna bráð-
skemmtilegan bar, Le Trottoir.
þar sem sjá má rithöfunda og
verðandi fyrirsætur rabba við
hverfisbúa, einnig er þarna veit-
ingastaðurinn Grand Italia
(Corso Garibaldi 9) sem selur
ekta, ítalskan, góðan og ódýran
mat og elsti barinn í Mílanó,
Moscatelli, sem er rekinn af
Herra Moscatelli sem er að
verða níræður!
Scala óperunni: Þetta
fræga óperuhús er rétt
við Galleria Vittorio
Emanuele sem er full af
skemmtilegum kaffihús-
um. í Scala eru fluttar
óperurfrádesember
fram á vor, en á sumrin
eru settir upp tónleikar í
óperuhúsinu og/eða ball-
ettsýningar. Þaðervel
þess virði að heimsækja
þessa glæsilegu bygg-
ingu og enda kvöldið á
veitingastaðnum Savini
í Galleríunni. Þangað
kemur fólk sem vill sýna sig og sjá aðra og maður veist aldrei á hvern
maður getur rekist þar!
Síkjahverfinu: I Navigli. Allt öðruvísi heimur þar sem finna má ótal