Vikan


Vikan - 06.07.1999, Page 8

Vikan - 06.07.1999, Page 8
að finna um fasteignaviðskipti. Það skýtur skökku við að til skuli vera lög sem vernda neyt- endur ef þeir kaupa gallað smjör, en engin ef þeir kaupa gallaða fasteign!" Samskipti í gegnum tölvupóst Maður ímyndar sér að starf- inu fylgi oft leiðindi og erill. Hvað er nú skemmtilegast við að starfa sem fasteignasali? „Mér finnst mjög skemmti- legt að reka mitt eigið fyrirtæki og fá tækifæri til að byggja það upp. Ég hef ekki yfirmann sem segir mér hvernig ég á að gera hlutina. Ég ber ábyrgðina og mæti þar með örlögum mínum. Auðvitað getur þetta verið mjög erilsamt og í rauninni stimplar maður sig aldrei úr vinnunni. Það er hringt heim til okkar langt fram eftir kvöldi og síminn byrjar að hringja eldsnemma á morgnana. Draumastarfið er ekki til fyr- irfram, maður verður sjálfur að gera starfið sitt að draumastarf- inu. Ég þarf að geta metið hvort ég hafi gert mitt besta í hvert sinn sem ég lýk við ákveðið verkefni og hafi ég gert það er ég sátt og vonandi einnig viðskiptavinir mínir.“ Hvernig gengur að hafa eig- inmanninn sem sinn nánasta samstarfsmann? „Það gengur mjög vel. Reyndar vinnum við aðskilin störf innan fyrirtækisins þannig að við vinnum mjög lítið saman yfir daginn. Oft komum við á sitt hvorum bflnum í vinnuna, ég sinni mínum verkefnum sem tengjast mest skjalafrágangi á meðan hann verðmetur eignir og er í sölunni. Samskipti okkar yfir daginn eru oft ekki mikil og mikið í formi tölvupósts. Oft vill það verða þannig, að rétt fyrir fimm hringjumst við á og ákveðum hvort okkar fer heim að sinna börnunum. Mér finnst það reyndar kostur frekar en galli að vinna svona mikið sam- an og það truflar mig ekki neitt.“ Ert þú hinn eiginlegi yfirmað- ur Húsakaupa eða deilið þið stjórnunarstöðunni? „Meginreglan hjá okkur er að hér ganga allir í öll störf ef þörf er á. Við erum alveg laus við að vera í einhverjum forstjóraleik en auðvitað taka eigendur allar stærri ákvarðanir. I fyrra sam- einuðumst við annarri fast- eignasölu og til okkar komu önnur hjón sem höfðu unnið saman lengi. Þau voru vön svip- uðu fyrirkomulagi og samstarfið hér gengur mjög vel. Ég ber hins vegar ábyrgðina á rekstrin- um sem löggiltur fasteignasali." Hvernig sérðu þróunina fyrir þér á fasteignasölumarkaðnum? „Ég vill sjá færri og öflugri fasteignasölur. Hérlendis starfa margar litlar fasteignasölur á meðan önnur fyrirtæki eru að sameinast til að ná fram hag- ræðingu. Ég tel að öll framþró- un verði erfiðari sökum smæðar fyrirtækja í greininni auk þess sem lausnir á tæknivandamál- um verða dýrari og erfiðari í framkvæmd. Fasteignasölur eru fyrst og fremst þjónustufyrir- tæki og með því að sameinast er möguleiki á að bjóða upp á víð- tæka þjónustu. Ég get tekið sem dæmi að endurskoðunarfyrir- tæki og lögfræðistofur eru að breytast mikið, þau sameinast og sérhæfast. Ég held að það sama muni gerast á fasteigna- sölumarkaðnum á komandi árum.“ Guðrún hefur ákveðnar skoðanir á málunum og er ófeimin við að koma þeim á framfæri. Hvernig stóð á þvf að hún bauð sig fram til for- mennsku í Félagi fasteignasala? „Ég starfaði árið áður sem ritari í stjórninni. Þáverandi formaður félagsins hafði setið sex ár í formannsembætti og unnið gott starf en taldi tíma- bært að leita að arftaka. Hann kom að máli við mig og satt best að segja tók ég hann ekki alvarlega í fyrstu. Ég fann þó fljótlega fyrir stuðningi margra félagsmanna í minn garð og því bauð ég mig fram. Formanns- starfið er þess að eðlis að því fylgir mikil vinna og því ekki mjög eftirsóknarvert í sjálfu sér til viðbótar við fullt starf með- fram eigin rekstri.“ Hvernig er kynjahlutfallið á meðal félagsmanna? „Ég held að við séum 5-6 konurnar, en karlmennirnir í kringum 50.“ Hver eru svo helstu verkefni nýkjörins formanns? „Það er að halda áfram því starfi sem hefur verið unnið fram til þessa. Við erum að vinna að því að setja upp heimasíðu félagsins og almennt að bæta tölvu- og upplýsinga- málin. Á vegum félagsins starfa margar nefndir sem vinna að ýmsum hagsmunamálum og því miður hefur seinagangur við af- greiðslu umsókna hjá íbúða- lánasjóði tekið alltof mikið af okkar tíma frá áramótum. Ég er hins vegar bjartsýn á lausn þeirra mála nú þegar nýr yfir- maður er kominn til starfa. Ég vil líka sjá vinnu við fasteigna- löggjöfina hefjast, enda er það brýnt hagsmunamál fyrir alla aðila sem tengjast fasteignavið- skiptum." Við látum þetta vera lokaorð Guðrúnar því umsvifamiklar kaupsýslukonur hafa nóg að gera og tíminn er dýrmætur. „ Draumastarfið er ekki til fyrirfram, maður verður sjálfur að gera starfið sitt að að draumastarfinu.“

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.