Vikan


Vikan - 06.07.1999, Qupperneq 14

Vikan - 06.07.1999, Qupperneq 14
íslendingar hafa löngum þótt duglegir að ferðast, líka ffyrir daga bilsins. Bilafloti lands- manna stækkar óðum og má þvi ætla að margir noti sumarið til að ferðast um landið á nýja bílnum. Fjölskyldur á ferðalagi þurfa að huga að hin- um ýmsu þáttum til að fullkomna ferðalagið. Sumir eru mjög skipulagðir í eðli sínu og standa klárir á hverju einasta smáatriði þegar brott- farardagurinn rennur upp. Aðrir treysta á Guð og lukk- una. Hinir síðarnefndu ættu kannski að renna yfir eftirfar- andi atriði, það gæti komið að gagni í ferðalaginu. Nokkur atriði sem allir ferðalangar ættu að hafa í huga og/eða taka með sér: .= C S 0 5 2 ra iC 9) ra *f 5* 'Ö) oi w n 5 S L n x E • Sjúkrakassi í bílinn. Slysin gera ekki boð á undan sér og því er nauðsynlegt að hafa slíkan kassa við hönd- ina. Varadekk, verkfæri og áhöld til að skipta um dekk. • Landakort eða vegahand- bók, sérstaklega fyrir þá sem eru að fara í lengri ferðalög og á óþekktar slóðir. • Vatn í plastflösku. Getur bæði komið sér vel fyrir þyrsta ferðalanga og bílinn. Sundföt, handklæði og kúta fyrir þá sem eru ósyndir. Hvort sem gist er í sumar- húsi, tjaldi eða á hóteli er alltaf hægt að finna sund- laug í nágrenninu. Fátt gleður börnin meira en óvænt sundferð. • Pollagallar á alla fjölskyld- una. Við búum nú einu sinni á íslandi og getum því alltaf búist við hinu versta þegar veðrið er annars veg- ar. Gerum veðrið að vini okkar og njótum þess að ferðast, í hvaða veðri sem er. • Gott vasaljós eða lugt. • Leikföng fyrir börnin, magnið er háð því hversu lengi á að ferðast. Sé um mjög langa ökuferð að ræða er nauðsynlegt að stoppa öðru hverju, leyfa börnunum að teygja úr sér og komast á klósett eða til að skipta á þeim. • Sólarvörn fyrir börn. ís- lenska sólin getur leynt á sér og því er gott að bera sterka vörn á andlitin þegar vel viðrar. • Nóg af aukafatnaði fyrir yngri kynslóðina, sérstak- lega ef ferðalagið á að standa í nokkra daga. Drullupollar hafa ótrúlegt aðdráttarafl og því er betra að hafa nóg af fötum til skiptanna. Tjaldútilega Aðalmálið í tjaldútilegunni er að vera í vatnsheldu tjaldi. Pað er mjög gott að yfirfara tjaldið nokkrum dögum áður en haldið er af stað og sjá hvort einhver göt eða misfell- ur leynast í því. Svefnpokar og sængur þurfa að sjálfsögðu að vera í lagi og ekki er verra að kippa dýnum með. Á markaðnum er mikið úrval af alls kyns dýnum sem eru fyrirferðarlitlar og því þægilegt að henda þeim með í bflinn. Margir eru vanafastir og vilja bara sofa með sinn eigin kodda sem er líka í góðu lagi í tjaldinu. Ef gista á í tjaldinu í fleiri en eina nótt er nauðsynlegt að hafa með sér einhvers konar hitaútbúnað svo sem prímus. Varast ber alla meðferð elds í kringum prímusinn því mörg alvarleg slys hafa orðið af völdum gassprenginga. Kælibox eru mjög hentug geymsla undir matinn. Hægt er að kaupa pakkningar sem settar eru í frysti og síðan stungið ofan í boxið. Pakkn- ingarnar halda matnum lengur ferskum og köldum. Kælibox- in fást í mörgum stærðum og gerðum. Pappadiskar og glös þurfa að vera í farangrinum en margir eiga mataráhöld úr harðplasti sem endast mun lengur. Gallinn við þau er uppvaskið! Nauðsynlegt er að hafa grill eða litla hellu til að geta eldað mat. Hægt er að fá lítil, einnota grill á 300 kr. og allt upp í tugi þúsunda króna gas- grill á bensínstöðvum. Það er ekki hægt að borða eingöngu samlokur og snakk í útilegu, eitt alvöru grillkvöld er algjört lágmark! í sumarbústaðinn Sumarbústaðir sem eru í leigu á vegurn verkalýðsfélaga og einkaaðila eru misjafnlega vel útbúnir. Gott er að hringja í staðarhaldarann eða við- komandi félag og fá nákvæm- ar upplýsingar um hvaða fylgi- hlutir eru í bústaðnum. í flest- um bústöðum er að finna sængur og kodda en sængur- ver og koddaver í fæstum til- vikum. Það getur orðið dýrt spaug að þurfa að kaupa kodda- og sængurver fyrir fimm manna fjölskyldu! Handklæði, viskastykki og hreinlætisvörur er að finna í einstaka bústað. Gerið samt frekar ráð fyrir að þetta sé ekki til staðar. Það er betra að hafa of mikið en of lítið ef þið eruð langt frá verslun. Sykur, krydd og kaffi vill oft gleymast þegar verslað er inn í sumarbústaðarferðina en reynið að hugsa um alla þá hluti sem þið notið á einum 14 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.