Vikan - 06.07.1999, Qupperneq 22
Texti: Hrund Hauksdóttir
X ^ v '
Ertu orðin f^pt á að maula sam-
loku við skrifborðið í hádeginu eða
hita þér núðlusúpu inni á loftlausri
kaffistofunni? Slepptu því þá! Lög-
um samkvæmt er hádegishiéið í
vinnunni þinn eigin tími og þú
ræður því fuilkomiega hvernig þú
kýst að eyða honum. Rannsóknir
hafa sýnt fram á að ef fólk yfirgef-
ur vinnustað sinn í hádeginu kem-
ur það mun hressara aftur til vinnu
eftir hádegi. Það er okkur nauð-
synlegt að skipta um umhverfi til
að okkur líði vel og það skilar sér
líka í auknum afköstum.
En það er iika hægt að gera margt
skemmtilegra í hádeginu en að
bíða hálfan matartímann eftir
þjónustu á veitingahúsum. Maður
hreinlega nýtur ekki fritímans síns
með því að gleypa í sig mat í
stresskasti og reka á eftir sveittum
þjónum með reikninginn.
Hér á eftir koma 15 hugmyndir um
hvernig megi njóta hádegisins:
hadegisms!
Drifhvítar strendur, pálmatré og spenn-
andi strákar til aö daðra viö ... Eftir hverju
ertu aö bíöa? Drífðu þig á næstu ferðaskrif-
stofu og pantaðu ferð til suðrænna landa
fyrir þig og vinkonurnar. Ef þú hefur ekki
efni á því þá skaltu allavega taka með þér
litskrúðuga ferðabæklinga til að hafa í
skrifborðsskúffunni og skoða þegar þú vilt
láta þig dreyma.
Hádegið er kjörinn tími til að fara í líkams-
rækt. Þá losnar þú við að þurfa að vakna
fyrir allar aldir til að hamast áður en vinnan
hefst eða að mæta dauðþreytt í ræktina að
vinnudegi loknum. Flestallar líkamsræktar-
stöðvar bjóða upp á tíma í hádeginu sem
eru sniðnir að þörfum vinnandi fólks. Með
því að leggja stund á líkamsrækt í hádeg-
inu kemst þú líka hjá þeirri freistingu að
borða mikla máltíð, það gefst einfaldlega
ekki tími til þess. Að auki er líklegt að þú
tímir ekki að spilla jákvæðum áhrifum lík-
amsræktartímans með óhóflegu áti.Tvær
flugur slegnar hér í einu höggi!
Farðu á hárgreiðslustofu og láttu snyrta
hárið. Sláðu til og fáðu þér djúpnæringu í
leiðinni.
Taktu góða gönguskó með þér í vinnuna
og sprettu úr spori í hádeginu. Gakktu
rösklega og sveiflaðu handleggjunum með.
Taktu með þér vasadiskó til að fjör færist í
leikinn og vatnsbrúsi er nauðsynlegur til að
svala þorstanum þegar þú ferð að svitna.
Holl hreyfing og ferskt loftið munu bæta
líðan þína og hressa þig á alla lund. Ekki er
verra að hafa með sér banana ef svengd
gerir vart við sig því þeir eru miklir orku-
gjafar.
Pantaðu þér naglasnyrtingu á snyrtistofu
í nágrenninu. Á meðan getur þú slappað af
og látið hugan reika eða átt skemmtilegt
samtal við snyrtifræðinginn.
Er vikan búin að vera erfið og þér finnst allt
ómögulegt? Þá skaltu skyggnast inn í
framtíðina með aðstoð tarotspila. Keyptu
þér spilastokk með leiðbeiningum um
hvernig skuli lesa úr spilunum eða farðu til
spennandi spákonu. Það er alltaf hægt að
krydda tilveruna með dularfullum spádóm-
um sem lofa ferðalögum, peningum og fal-
legum mönnum...
Lestu góða bók. í hádeginu er tilvalið að
setjast inn á bókakaffihús eins og Súfist-
ann, sem er á annarri hæð í Bókabúð Máls
og menningar á Laugaveginum. Kaffihúsið
er reyklaust og andrúmsloftið einkennist af
kaffi, góðum bókum og spennandi tímarit-
um.
Húðhreinsun í hádeginu er frábær hug-
mynd. Þú getur lagst út af á þægilegum
bekk, vafin inn í dúnmjúktteppi og látið
hreinsa og nudda á þér húðina. Hvað með
það þótt þú verðir svolítið þrútin þegar þú
kemur aftur til vinnu? Það jafnar sig fljótt
og húðin mun launa þér hugulsemina.
Skrepptu í Ijós. Það er fátt sem jafnast á
við að slaka á eða jafnvel blunda í smá-
stund á Ijósabekk. Heitt steypibað á eftir og
gott rakakrem lætur þér líða sem þú sért
endurnærð. Að auki ertu komin með
hraustiegra útlit.
10. Hittu manninn þinn heima hjá ykkur ef
þið búið ekki langtfrá vinnustað. Þú munt
mæta til vinnu eftir hádegi með roða í
kinnum og aðeins úfið hár. Þú segist bara
hafa verið á Ijósastofunni!
11 Fáðu samstarfsfélaga með þér í að útbúa
körfu með gómsætu nesti, takið svo með
ykkur teppi og komið ykkur vel fyrir í
Hljómskálagarðinum eða Grasagarðinum.
Við eigum það til að gleyma þessum perl-
um sem skarta sínu fegursta á sumrin.
Sannkallaðir sælureitir innan höfuðborgar-
innar. Að sjálfsögðu veljið þið sólríkan dag
til að gera þetta.
12. Hafðu samband við gamla vinkonu
sem þú hefur ekki heyrt í lengi og stingdu
upp á að þið hittist á kaffihúsi í hádeginu.
Þið getið skemmt ykkur konunglega við að
rifja upp liðna tíð. Ef þú nærð ekki í hana
eða ef hún er flutt af landinu þá er tilvalið
að fara ein á kaffihús og skrifa henni al-
mennilegt bréf.
13. Gefðu blóð. Hringdu í Blóðbankann og
kynntu þér hvernig þú eigir að bera þig að.
Það er góð tilfinning að leggja sitt af mörk-
um til að hjálpa öðrum.
Notaðu hádegið til að skoða alla sætu
strákana sem virðast skríða út úr hverju
skoti þegar sumarið kemur. Fáðu kven-
kynsvinnufélaga með þér, finnið ykkur
heppilegan „útsýnispall", setjið upp sól-
gleraugun og mælið gæjana út. Þetta gera
þeir við okkur!
15. Víða er hægt að kaupa mjög falleg, af-
skorin blóm. Láttu eftir þér að kaupa
bústinn blómvönd og hafðu hann á skrif-
borðinu þér til yndisauka og ánægju.