Vikan - 06.07.1999, Page 51
klóna lífverur er ekki hægt að
finna upp lyf án aukaverkana
við morgunógleði.
Sumar konur geta þó haldið
ógleðinni í skefjum að nokkru
leyti og koma í veg fyrir upp-
köst.
Á þessu erfiða tímabili er
nauðsynlegt að eiga skilnings-
ríkan maka. Hafi hann ein-
hvern tímann þurft að leggja
sig fram, þá er tíminn runinn
upp.
Ráð fyrir tilvonandi feður:
Gerið ekki lítið úr ógleðinni
sem hrjáir konuna ykkar. Ver-
ið virkilega skilningsríkir.
Reynið eftir fremsta megni að
sinna öllum þeim heimilisstörf-
um sem geta framkallað ógleði
þ.e. allt sem viðkemur vondri
lykt. Pið getið þrifið klósettið,
séð um að tæma ruslið, þrífa
ruslaskápinn og jafnframt séð
til þess að ekki séu matarleifar
í ísskápnum eða óhreint leirtau
í vaskinum. Reykingalykt get-
ur verið algjört eitur fyrir
ófrískar konur. Ef þið reykið
sjálfir en ekki konan, vogið
ykkur ekki að reykja nálægt
henni!
Tilvonandi mæður þurfa að
hvfla sig vel. Leyfið ykkur að
sofa lengur jafnvel þótt að stof-
an sé full af drasli. Stress og
svefnleysi getur aukið ógleð-
ina. Hugsið vel um líkamann,
borðið hollan mat og hreyfið
ykkur.
Sem betur fer rjátlar morg-
unógleðin af flestum þegar líða
tekur á 13.-14. viku meðgöng-
unnar. Þá fyrst geta margar
konur farið að njóta þess að
vera barnshafandi. Nýtið tím-
ann og orkuna því meðgangan
líður ótrúlega hratt séu verk-
efnin mörg.
Lfm leið og litla krflið er
komið í fang ykkar, gleymið
þið öllum óþægindum og
morgunógleðin verður bara
hluti af minningunni um með-
göngu!