Vikan


Vikan - 06.07.1999, Blaðsíða 62

Vikan - 06.07.1999, Blaðsíða 62
RQ& unnar Ekki missa af... ... verðlaunasmásögunni sem við birtum í næstuViku! Okkur bárust fjölmargar frábærar sögur og dómnefndin hefur setið með sveittan skallann við að velja þá bestu. Eftir standa fjórar þeirra og við mælum eindregið með því að enginn missi ekki af verðlaunasögunni sem verður í næsta tölublaði Vikunnar. í þessari viku er það lögreglan í Reykjavík sem fær Rós Vikunnar. Það er Sigríður Guðmundsdóttir sem sendir henni kærar kveðjur og þakklæti og telur að lögreglan eigi skilið að fá Rós Vikunnar. „ Satt þest að segja sé ég sjaldan lögregluþjón á göt- um þorgarinnar, en ég komst að því um daginn, með- an ég hafði tvo Þjóðverja í heimsókn, að lögregluþjón- ar eru sjáanlegir í borginni og mjög hjálpsamir og elskulegir að auki. Þessir gestir mínir þvældust mikið um miðbæinn á eigin vegum, þeir notuðu strætisvagn- ana og gengu mikið innan þorgarinnar og utan. Þeir höfðu sérstaklega á orði að lögreglan hér væri svo hjálpleg og þægileg að það væri ekkert vandamál að rata; ef maður villtist væri bara að snúa sér til lögregl- unnar og hún gæti alltaf leiðbeint manni. Ég minntist á þetta við tengdadóttur mína sem vinnur í ferðamanna- geiranum og hún sagði að hún hefði oft heyrt þetta frá útlendingum." Mæli Sigríður kvenna heilust og við á Vikunni vonum og trúum að lögreglan á íslandi haldi þessari einkunn, þæði meðal útlendinga og landa sinna, í framtíðinni. Rós Vikunnar Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá rós Vikunnar? Ef svo er, hafðu þá samband við „Rós Vikunnar, Seljavegi 2,101 Reykjavík" og segðu okkur hvers vegna. Einhver heppinn verður fyrir valinu og fær sendan glæsilegan rósavönd frá Blómamiðstöðinni. ... lautarferðum. Ef sólin skyldi nú heiðra okkur íslendinga með nærveru sinni í sumar er tilvalið að nota tækifærið og skella sér í lautarferð með elskunni sinni eða fjölskyldunni. Það þarf ekki að fara langt til að ferðin nái tilgangi sínum. Þingvellir eða Heiðmörk eru sígildir útivistarstaðir með fjöldann allan af iautum en einnig er hægt að fara upp í Öskjuhlíð. Smyrjið gott nesti, takið með fallegan dúk og stingið flösku af góðu rauðvíni ofan í körfuna. Njótið dagsins. ... Dior varalitunum sem haldast glerfínir á vörunum allan daginn. Þeir fást í ýmsum litum og hafa góða áferð. Þú getur bókað að þú verðir með kyssilegar varir langt fram eftir degi og enginn hætta er á því að hann verði samferða hádegismatnum þínum. Þessi litur held- ur sig á sínum stað! no ... brúnkuán SÓIar! Langflestir eru orðnir meðvitaðir um skaðsemi Ijósabekkja fyrir húðina en finnst samt tilheyrandi að vera brúnir og hraust- legir á sumrin. Næg útivera hjálpar til þess að fá lit á húðina en til er annar kostur og það eru Tan Towel blautþurrkurnar sem framkalla brúnan húðlit. Þær eru ein- faldar í notkun og gera húðina hvorki skellótta né appel- sínugula. Blaut- þurrkunni er nudd- að á húðina og ár- angurinn kemur í patent pending , . IjÓS eftir U.þ.b. tvær ......... .. 'í '; klukkustundir. Þetta er frábær lausn fyrir þá sem vilja fá hraustlegt og gott útlit en hafa ekki tíma fyrir sólböð eða þola þau illa. Tan Towel er viðurkennt af Hollustuvernd íslands. strsakii^S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.