Vikan - 20.07.1999, Side 40
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Heilsumolar
Ertu að berjast við sykurlöngunina?
Sumarið er upplagður tími til að byrja
að hreyfa sig af alvöru
• Tyggðu sykurlaust
tyggigúmmí. Þú getur
blekkt magann í smá-
stund með því að láta
munninn vinna.
• Skerðu greip niður í
þunnar sneiðar og
geymdu í ísskápnum.
Þegar sykurlöngunin
vaknar er um að gera að
sjúga eina greipsneið.
Greip endist vel og þú
finnur greinilegt sykur-
bragð. Ef þú getur hald-
ið þig við greipið, ertu í
góðum málum því í einni
þunnri sneið eru einung-
is 4 kaloríur.
• Bættu strásætu út í
ávaxtate, þar með færðu
sykurbragð í munninn.
• Að drekka vatn er frá-
bær megrunaraðferð.
• Að ganga, hlaupa og synda er allt mjög góð hreyfing.
Reyndu að skipuleggja þá hreyfingu sem hentar þér
best. Gott er að fara út á sama tíma og haga öðrum
verkefnum eftir því. Næst þegar vinkonan eða eigin-
maðurinn biður þig að koma með sér í bæinn á sama
tíma og þú ætlar að hreyfa þig, þá getur þú svarað því
til að því miður sért þú upptekin.
• Ef þú ert á leiðinni í meiriháttar megrun og ætlar að
losna við mörg kíló þarftu að hreyfa þig 5-6 sinnum í
viku, í allt að 20-60 mínútur í hvert skipti. Finndu ein-
hverja íþrótt sem þér finnst skemmtileg, þannig að þú
hafi gaman af því að takast á við verkefnið.
Passaðu þig á að ofreyna þig ekki. Það er miklu
betra að byrja hægar og hafa skýr markmið en að vera
hlaupandi í tíma og ótíma og gefast svo upp.
Ef þú kemst ekki í líkamsræktina þá getur
þú gert ýmislegt til að halda þér í formi.
Margir rugla saman
hungri og þorsta. Með
því að drekka mikið af
vatni kemur þú í veg fyr-
ir hungurtilfinningu auk
þess sem vatnsdrykkja
er bráðholl. Allir helstu
megrunarkúrar og öll
heilsuræktarprógrömm
mæla með mikilli vatns-
drykkju, helst einum til
tveimur lítrum á dag.
• Varastu litlu bitana sem
þú nartar í yfir daginn.
Þegar þú leggur
saman allt það sem
þú hefur í þig látið
gæti þér brugðið.
Reyndu að borða
skipulega: Morg-
unverð, hádegis-
mat, síðdegis- og
kvöldmat og
sleppa öllum milli-
bitum.
• Mundu að við
30 mínútna, mikla
hreyfingu brennir
þú 300 hitaeinung-
um sem er jafn
mikið og venjuleg
samloka inniheld-
ur. Reyndu að gera
þér grein fyrir hita-
einingafjöldanum
sem þú innbyrðir.
• Gakktu hratt á leiðinni
út í búð eða á barna-
heimilið. Hröð ganga
eykur brennsluna í lík-
amanum.
• Ef þú ert mjög tíma-
bundin, skaltu reyna að
losna tíu mínútum fyrr
úr hádegismatnum og
fara út í göngutúr. Þú
getur líka farið út að
hjóla á meðan kartöfl-
urnar sjóða.
• Fyrir þá sem eru yngri
en 35 ára er nauðsynlegt
að hreyfa sig a.m.k.
þrisvar sinnum í viku í
20 mínútur í hvert skipti.
Mælt er með hlaupum,
kraftgöngu, tennis, bad-
minton eða að hjóla
hratt. Hinir yngri
ifegj
Mælt er með golfi, hjól
reiðum, sundi og léttri
göngu.
Að sjálfsögðu verður
hver og einn að finna sér
sinn hraða og haga æfing-
um eftir getu.
betur mikla áreynslu og
að sjálfsögðu styrkist
hjartað í leiðinni.
• Fyrir þá sem eru eldri en
35 ára er líka nauðsyn-
legt að hreyfa sig a.m.k.
þrisvar sinnum í viku. Á
meðan fólk er að koma
sér í gott form er mælt
með töluverðri brennslu
en fyrir hina sem eru að
halda sér í formi er um
að gera að finna sér
hreyfingu við hæfi.