Vikan - 19.10.1999, Qupperneq 13
k v n I í f s i n s
gamalt áður en það greinist.
Þúsundir hafa smitast af
klamydíu hér á landi á undan-
förnum árum. Starfsfólk Kyn-
sjúkdómadeildar segir að þeim
sem eru „á markaðnum", eins
og það er kallað, og stundi
óvarið kynlíf sé nauðsynlegt að
koma af og til og láta ganga úr
skugga um að þeir séu ekki
smitaðir af klamydíu. Þá er tek-
in þvagprufa og niðurstöður
hennar ættu að liggja fyrir inn-
an tíu daga. Klamydía er með-
höndluð með ákveðnum sýkla-
lyfjum í töfluformi. Pensillín-
meðferð dugar þó ekki. Þau lyf
sem oftast eru notuð nú á dög-
um þarf aðeins að taka í einum
skammti eða einu sinni á dag í
viku tíma. Rannsóknir eru ekki
alltaf öruggar og fyrir kemur að
einstaklingur geti verið smitað-
ur án þess að sýkillinn finnist í
þvagi. Því er mikilvægt að með-
höndla alla sem grunur leikur á
að séu smitaðir, jafnvel þótt
niðurstöður rannsókna hafi
ekki staðfest smit.
Herpes sársaukafullur
og hvimleiður sjúk-
dómur
Herpes simplex II veiran
veldur einnig algengum kyn-
sjúkdómi. Þótt hann hafi sjald-
an jafnalvarlegar afleiðingar í
för með sér og klamydía er
hann þó bæði hvimleiður og
sársaukafullur. Fjölmargir lifa
með herpes simplex veiruna í
líkamanum en hún orsakar
áblástur á vörum. Þeir sem
þekkja kláðann, óþægindin og
sársaukann sem fylgir því þegar
frunsur myndast geta ímyndað
sér hvernig það er að fá áblást-
ur á viðkvæma staði á kynfær-
um. Ekki er vitað með vissu
hversu margir smitast af herpes
hér á landi, né hversu margir
bera sjúkdóminn. Ástæða er til
að ætla að sjúkdómurinn sé
talsvert útbreiddur.
Fyrstu einkenni smits eru sár
á eða við kynfærin sem koma í
ljós 2-20 dögum eftir samfarir
sem leiddu til smits. Upphaf-
lega kemur í ljós lítill blettur og
fylgir honum stundum tölu-
verður kláði eða sviði. Síðan
koma í ljós smáar blöðrur sem
springa eftir u.þ.b. 2 daga. Oft
vætlar úr sárinu og eftir verður
samhangandi hrúður. Eitlar í
nára bólgna og verða aumir, að-
allega við fyrstu sýkingu.
Stundum fylgir þessu hiti. Sárin
gróa eftir u.þ.b. 3 vikur. Hjá
flestum sem smitast koma sárin
þrisvar til fjórum sinnum á ári
fyrstu árin eftir smit. Þegar sár-
in koma aftur eru einkennin
oftast vægari en í fyrsta sinn og
blöðrurnar hverfa eftir 3-7
daga. Eftir 10-15 ár hverfa ein-
kennin oftast alveg. Ennþá er
engin lækning til við herpes.
Óþægindunum er hins vegar
hægt að halda í skefjum, t.d.
með sótthreinsunarböðum eða
deyfandi kremum.
Kynfæravörtur sjúk-
dómur unga fólksins
Kynfæravörtur, öðru nafni
kondylóma, orsakast af veirum
(Human Papilloma Virus -
HPV). Margar tegundir af
vörtuveirum eru til og valda
sumar þeirra m.a. vörtum á
höndum og fótum. Kynfæra-
vörturnar eru hins vegar kyn-
sjúkdómur sem smitast við sam-
farir. Hundruð einstaklinga
leita lækninga vegna kynfæra-
vartna á ári hverju og áberandi
er að tíðni þessara vartna er
mest í aldurshópnum 15-18 ára.
Veiran veldur Ijósbleikum
eða húðlitum vörtum á og við
kynfærin og endaþarmsopið.
Venjulega er yfirborð vartn-
anna flipótt og þær vaxa í klös-
um sem geta orðið frekar stórir.
Þegar vörturnar hafa þetta útlit
er auðvelt að sjá þær en þegar
þær eru sléttar getur það verið
mjög erfitt. Stundum myndast
einungis húðlitar hrufur eða
bólgur og e.t.v. fylgir þeim örlít-
ill kláði sem er þá eina einkenni
sjúkdómsins. Hjá konum er oft
erfitt að uppgötva vörturnar ef
þær eru í leggöngum eða leg-
hálsinum. Vörturnar birtast yf-
irleitt 1-3 mánuðum eftir smit
en allt að 12 mánuðir geta þó
liðið. Hinn langi meðgöngutími
smitsins gerir það að verkum að
erfitt getur verið að rekja slóð-
ina til rekkjunautanna sem
nauðsynlegt er að gera til að
geta skoðað þá og meðhöndlað.
Fáeinar af þeim sem þekktar
eru af gerðinni HPV hafa verið
tengdar aukinni hættu á frumu-
breytingum ogjafnvel krabba-
meini í leghálsi kvenna. Af
þessum ástæðum er mikilvægt
að taka frumustrok reglulega
frá leghálsi þeirra kvenna sem
hafa fengið kynfæravörtur.
Kynfæravörtur eru greindar við
skoðun hjá lækni og stundum er
nauðsynlegt að skoða þær í
smásjá. Algengasta meðferð er
að pensla podophyllini á vört-
urnar. Þetta er mjög sterkur
vökvi sem brennir húðina ef
hann er ekki þveginn af eftir fá-
einar klukkustundir. Hægt er að
endurtaka þá meðferð í nokkur
skipti en ef það dugar ekki
verður að grípa til annarra
ráða, t.d. að brenna vörturnar
eða frysta og í vissum tilvikum
er gripið til leysigeisla.
Lekandi
Lekandi hefur verið á undan-
haldi á Islandi undanfarin ár.
Þó greinast einhverjir með sjúk-
dóminn hérlendis á ári hverju.
Einkenni Iekanda koma venju-
lega fram 3-5 dögum eftir að
smit átti sér stað. Fimmtungur
karla fær engin einkenni. Ein-
ungis helmingur kvenna fær
einkenni sjúkdómsins. Hjá körl-
um veldur sýking bólgu í slím-
húð þvagrásar, stundum gul-
grænni graftarútferð og sviða
við þvaglát. Hjá konum veldur
hún bólgu í slímhúð leghálsins,
stundum graftarkenndri útferð
og jafnvel sviða við þvaglát.
Ef ekki er brugðist skjótt við
lekanda er hætta á að sýkillinn
breiðist út til eggjaleiðara hjá
konum og valdi þar bólgu og
ófrjósemi líkt og klamydía.
Talið er að um 15% af öllum
bólgum í eggjaleiðurum megi
rekja til lekanda. Hjá körlum
getur þvagrásarbólgan leitt til
bólgu í eistum og stundum
ófrjósemi. Fyrir kemur, einkum
hjá konum, að bakterían komist
út í blóðið og valdi langdregn-
um hita, liðbólgum og húðút-
brotum.
Lekandi er greindur með því
að taka sýni til ræktunar. Svar
fæst venjulega innan viku frá
því að sýni er tekið. Meðferð
lekanda er yfirleitt einföld. Oft-
ast nægir að gefa pensillín og þá
einn skammt eða eina töflu.
Stundum er lekandasýkillinn
ónæmur fyrir pensillíni þá eru
gefin önnur sýklalyf. Yfirleitt er
næmi bakteríunnar kannað
þegar sýni er sent til ræktunar
og þannig tryggt að rétt með-
ferð verði gefin.
Kynsjúkdómar eru eins og
sést á lýsingum hér að ofan
bæði sársaukafullir og jafnvel
hættulegir. Fyrir utan það er
svo skömmin og vanlíðanin oft
mikil sem fylgir því að fá sjúk-
dóm er veldur félagslegrt for-
dæmingu. Það verður því aldrei
of oft minnt á að smokkurinn er
ekki bara getnaðarvörn heldur
einnig einstök vörn gegn sjúk-
dómum. Notið smokkinn.
Vikan 13