Vikan


Vikan - 19.10.1999, Blaðsíða 28

Vikan - 19.10.1999, Blaðsíða 28
FrétS um framhjáh Hann hætti að sofa hjá mér. Hjónaband okkar hafði verið með stirðara móti í nokkra mánuði þegar ég gekk á manninn minn og krafðist þess að við ræddum hvert samband okkar stefndi. Hann færðist undan, sagði að ekkert þyrfti að ræða því ekkert amaði að hjónabandinu hvað hann varðaði. Það kæmi upp leiði hjá öllum hjónum og ég skildi engar áhyggjur hafa. Ég taldi mig þó vita betur. Hann sýndi lítinn sem engan áhuga á að sofa hjá mér og varð pirraður út í mig yfir smámunum. Hann tók ekki lengur þátt í fjölskyldulífinu en við áttum saman tvö ynd- isleg börn og höfðum til þessa notið þess að gera skemmtilega hluti saman. Ég gat ekki bent á hvað var að hjá okkur því ég var sjálf enn mjög ástfangin af mann- inum mínum og það höfðu ekki orðið neinar stórvægi- legar breytingar á högum okkar eða venjum. Þetta var vægast sagt hin óþægilegasta staða og ég varð stressuð og kvíðin. Óvissan nagaði mig. Ég reyndi hvað ég gat til þess að hressa við samband okkar en það bar ekki nokkurn árangur. Kvíði og hræðsla magnaðist upp innra með mér og kvöld eitt sprakk ég. Ég hellti mér yfir hann og við rifumst eins og hundur og köttur. Hann stóð fast á því að ekkert amaði að, við værum bara í niður- sveiflu í sambandinu og það 28 Vikan myndi lagast með tímanum. Ég gat ekki sætt mig við þessi málalok. í hönd fóru erfiðir tímar. Ég var svo óhamingjusöm. Við höfðum gift okkur mjög ung og ég skildi ekki hvers vegna hann var skyndilega orðinn svo fráhverfur mér. Ég reyndi margoft að hefja máls á þessu vandamáli því ég gat engan veginn samþykkt það sem var að gerast. Ég reyndi allt sem í mínu valdi stóð til þess að bæta stöðu sambands okkar og fór meðal annars fram á það við manninn minn að við leituðum til prests í þeim til- gangi að leita sáttaleiðar. Hann samþykkti það með semingi en presturinn náði hins vegar ekki neinum ár- angri í samtölunum með okkur. Hann hélt við fyrrver- andi samstarfskonu mína Lífið hélt áfram og ég var engu nær um stöðu hjóna- bands mín. Við búum í frek- ar litlu bæjarsamfélagi úti á landi og fljótlega fóru á kreik slúðursögur þess efnis að við hjónin værum að skilja. Eins og verða vill í fá- mennum plássum þá þekkja allir alla og það getur verið vandkvæðum bundið að kveða niður slúðursögur. Ég varð bæði hissa og sár þegar ég heyrði út undan mér um yfirvofandi skilnað okkar hjóna því ég sjálf taldi okkur ekki komin á það stig. Einnig fannst mér mjög leið- inlegt og niðurlægjandi að fólk væri að smjatta á einka- lífi okkar. Ýmsir aðilar, þar á meðal vinkonur og fjöl- skylda, fóru að spyrja mig hvað væri að hjónabandinu og hvers vegna við værum að skilja. Ég reyndi að halda stillingu minni og svaraði því til að við værum alls ekki að skilja, þetta væri bara ill- kvittinn orðrómur og tóm vitleysa. Ég var samt í sjokki yfir því að ástand hjóna- bands míns væri komið á milli tannanna á fólki og gat ekki skilið hvernig það hafði gerst. Ég reyndi að bera höf- uðið hátt og láta ekki slúðr- ið hafa áhrif á mig. Svo reið áfallið yfir. Ég var úti í búð að versla inn til heimilisins þegar nágranna- kona mín vék sér að mér og sagði við mig í samsæristón að hún sæi manninn minn oft koma út úr íbúðinni við hliðina á henni, á öllum tím- um sólarhrings. Svo spurði hún í beinu framhaldi hvernig ég gæti þolað það að maðurinn minn héldi framhjá mér! Ég fékk æðiskast þarna í búðinni. Öll hræðsla og kvíði undan- farinna mánaða fékk útrás á þessari konu. Ég held í rauninni að ég hafi fengið taugaáfall. Það sem ég hafði óttast mest, en ekki leyft mér að hugsa um, hafði gerst. Maðurinn minn var að halda framhjá mér og það með fyrrverandi samstarfs- konu minni. Heimurinn hrundi gjörsamlega og ég var alveg búin á taugum. Ég gat ekki meir. Ég grét sam- fleytt í tvo sólarhringa og var gjörsamlega sinnulaus. I botnlausu vonleysi tók ég inn tvo stór glös af róandi töflum. Ég hvolfdi þeim í mig, alveg týnd í sjálfsvor- kunn og hatri gagnvart manninum mínum. Tilviljun varð þess valdandi að það var svo einmitt hann sem kom að mér í þessu hræði- lega ástandi og kom mér undir læknishendur. Þegar ég vaknaði upp og var búin að ná áttum, þá skammaðist ég mín alveg ógurlega. Blygðunartilfinn- ingin var yfirþyrmandi og mér fannst ég veikgeðja aumingi sem gæti ekki axlað áföll í lífinu með reisn. Ég var send suður til Reykja- víkur til þess að fá frekari andlega aðstoð. Innlögn á geðdeild Ég var lögð inn á geðdeild í Reykjavík; í hálfan mánuð. Ég, sem hef alltaf verið for- dómafull gagnvart þung- lyndi, fékk allt aðra sýn á það eftir dvöl mína á spítal- anum. Ég komst að því að „venjulegt" fólk eins og ég, getur brotnað niður eða orðið þunglynt. Ég kynntist nokkrum sjúklinganna vel og dáðist að því hvað það En svo reið áfallið yfir. Ég var úti í búð að kaupa inn til heimilisins þegar nágrannakona min vék sér að mér og sagði við mig í samsæristón að hún sæi manninn minn oft koma út úr íbúðinni við hliðina á henni, á öllum tímum sólarhrings.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.