Vikan - 19.10.1999, Qupperneq 14
Vertu þú sjálf og
i
í ráðstefnusalnum á
Grand Hótel Reykjavik er
þétt setinn bekkurinn.
Hvert einasta sæti er
skipað og af og til
glymja hlátrasköll um
salinn. Ráðstefnugestir
eru allt konur sem halla
sér fram með einbeiting-
arsvip á andlitinu, harð-
ákveðnar í að missa ekki
af einu orði sem fyrirles-
arinn segir. Sá er lágvax-
in, fínleg kona, óaðfinn-
anlega tilhöfð og tilbúin
að fylgja orðum sínum
eftir með leikrænum til-
burðum og skemmtileg-
um svipbrigðum. Þetta
er Dr. Sherron Bienvenu,
bandarískur háskólapró-
fessor sem hefur komið
hingað tvisvar áður og
kennt íslenskum konum
hvernig best sé að ná ár-
angri og áhrifum í karla-
veröld viðskiptalífsins.
«r I
Dr. Sherron er fé-
lagssálfræðingur
og leggur
áherslu á að það
sé samskiptatækni hvers og
eins sem skilji milli feigs og
ófeigs í hörðum heimi. Hún
rekur eigið ráðgjafarfyrir-
tæki og hefur meðal annars
unnið fyrir Lockheed Mart-
in flugvélaverksmiðjurnar
sem smíða allar flugvélar
fyrir flotann. Það liggur í
augum uppi að það þarf
sterk bein og mikla getu til
að segja aðmírálum banda-
ríska flotans hvernig þeir
eigi að haga samskiptum við
starfsfólk sitt. Dr. Sherron
dregur enga dul á það að
henni þótti ósköp gaman að
koma þessum valdamiklu
mönnum í opna skjöldu.
„Ég vandi mig á að koma
alltaf brosandi á fundi," seg-
ir hún. „Fljótlega barst það
út að þegar ég brosti væri
ekki von á góðu, þá væri ég
ekki ánægð með árangur
starfsins."
Sherron hlær að þessu en
bendir áheyrendum jafn-
framt á að mikilvægt sé að
koma sér upp ákveðinni
brynju.
„Yfirmaðurinn kemur í
vinnuna á mánudagsmorgni,
gengur inn í fyrstu skrifstof-
una og segir: „Góðan dag-
inn Guðrún, hvernig var
helgin?" Guðrún svarar:
„Yndisleg, ég og Siggi fór-
um með krakkana upp í
sumarbústað og grilluðum."
Stjórnandinn heldur áfram
og spyr sömu spurningar í
næstu skrifstofu en fær þá
svarið: „Fín. En lastu grein-
ina í sunnudagsmogganum
um hvernig hægt er að há-
marka afköst á vinnustað?"
Hvorn þessara starfsmanna
er hann líklegur til að velja
næst þegar hann þarf að
velja manneskju í ábyrgðar-
mikið starf? Augljóslega þá
síðarnefndu. Víst er það
óréttlátt að konur skuli
þurfa að aðlaga sig sam-
skiptavenjum karlmanna en
þannig er raunveruleikinn
og í stað þess að ergja okkur
yfir óréttlætinu getum við
lært að bæta tjáningarað-
ferðir okkar og ná þannig
árangri."
Konur eiga ekki að
þurfa að breytast
Sherron telur að konur
eigi ekki að þurfa að breyta
sér eða aðlaga sig körlum.
Eins og hún bendir á var
það algengt að konur sem
voru að taka við stjórnunar-
stöðum í kringum 1970
hefðu það að leiðarljósi að
tala eins og karlmenn,
hegða sér eins og þeir og
klæða sig eins og þeir. Sher-
ron segir að hver einasta
kona hafi eitthvað verðmætt
fram að færa, sem einstak-
lingur, sem nýtist fyrirtæk-
inu.
„Ég tel að konur eigi ekki
að þurfa að breyta sér og
karlmenn munu svo sannar-
lega ekki breytast. Við eig-
um að taka það góða sem
við höfum fram að færa og
nýta okkur það. Konur geta
aukið samkeppnishæfni sína
og unnið þar með hlaupið.
Konur þurfa að venja sig af
því að taka alltaf á sig það
sem miður fer. Sé verið að
tala um árangur af ákveðnu
verkefni við konu heyrir
hún aðeins það sem yfir-
maðurinn telur hafa miður
farið og fer heim niðurbrot-
in. Karlmaðurinn heyrir að-
eins það jákvæða sem er tí-
undað og fer heim ánægður
með verklokin. Konur hafa
einnig tilhneigingu til að líta
í spegilinn og sjá aðeins það
sem er neikvætt í útliti
þeirra.
Það er samskiptahæfni
einstaklingsins sem leggur
grunninn að frama hans í at-
vinnulífinu. Hver og einn
verður að læra að skipu-
leggja og halda fundi, semja
og kynna verk sín vel. Kon-
ur þurfa að ná hæfni á þess-
um sviðum og þær þurfa að
vera hæfari en karlmenn.
Þær eru of viðkvæmar fyrir
því sem betur mætti fara. í
stað þess að láta það brjóta
sig niður ættu konur að nýta
það til að gera sífellt betur.
Staðreyndin er sú að meiri
kröfur eru gerðar til kvenna
en karla. Karlar geta hugs-
anlega komist upp með að
koma illa undirbúnir á fund
konur ekki.
Að sumu leyti tjá kynin
sig á sama hátt en að sumu
leyti eru aðferðir þeirra
mjög mismunandi. Konur
þurfa að skilja í hverju mun-
urinn er fólgin. Til að
mynda tjáum við okkur öll
með því að segja sögur.
Vandinn felst í því að velja
réttu söguna í hverju tilfelli
fyrir sig. Karlmenn nota
aðrar myndlíkingar og ann-
að málfar en við. Til dæmis
þýðir lítið að velja sögu fyrir
hóp af karlmönnum sem
byggir á viðbrögðum barns