Vikan - 19.10.1999, Qupperneq 15
við tilteknu atviki eða með
því að nota orðatiltæki sem
er upprunnið í heimilisstörf-
um á sama hátt fellur dauð
og ómerk í kvennahópi
myndlíking úr fótbolta.
Þarna er kominn kjarninn í
því að setja mál sitt fram á
skilmerkilegan hátt og fylgja
því síðan eftir, nefnilega að
þekkja áheyrendahópinn og
laga framsetninguna að hon-
um. Ég segi til að mynda
ekki sögur af dóttur minni á
fundum þar sem eingöngu
eru menn en ég nota hana
gjarnan þegar ég tala við
konur."
Draumur er markmið
með skiladag
Dr. Sherron nefnir enn-
fremur að það eigi að reyn-
ast konum auðvelt að velja
sögur til að hæfa hverjum
hópi því þær geri það gjarn-
an í barnauppeldi. Barni
sem er myrkfælið er sögð
önnur saga á kvöldin en
hinu sem ekki þarf að sofa
við ljós. Nákvæm skipulagn-
ing af þessu tagi er það sem
fyrst og fremst skilar sér að
mati Sherron. Hvað sem fyr-
ir liggur og hvað sem kona
ætlar að taka sér fyrir hend-
ur er góður undirbúningur
lykilatriði og að vera alltaf
viðbúin öllu. Spurningum
beri að svara á stuttan hnit-
miðaðan hátt og vera tilbúin
að svara eins miklu og hægt
er. Vakni spurning sem við-
komandi hefur ekki svar við
á reiðum höndum sé best að
svara hreinskilnislega.
„Það er ekkert athugavert
við að segja ég veit það ekki
ef því fylgir jafnframt að þú
munir afla þessara upplýs-
inga og koma þeim inn á
borð spyrjandans við fyrsta
tækifæri. Skipuleggðu tíma
þinn, vertu alltaf óaðfinnan-
leg til fara og settu þér
markmið. Ekki setja þér svo
háleit markmið að þú vitir
að þú getir ekki staðið við
þau. Brjóttu heldur alla
hluti niður í litlar einingar.
Ef þú þarft að léttast um 20
kg, ekki hugsa stöðugt um
þá tölu. Setlu þér heldur
það markmið að borða holl-
ari mat í dag en í gær og
setlu þér það markmið á
hverjum degi. Stefndu alltaf
að því að bæta sjálfa þig. Ef
þú þarfnast meiri hreyfingar
ekki slefna að því að ganga
50 krn í þessari viku, hugs-
aðu heldur með þér að
morgni, í dag ælla ég að
ganga 5 km.
Draumar eru markmið
með skiladag. Ég á mér
draum um skrifa bók og ég
einsetli mér að Ijúka henni
fyrir desember á þessu ári.
Ég nefndi þella ekki við
neinn en það lítur út fyrir að
þetta lakist. Vinkona mín
hefur árum saman talaö um
bókina sem hún ætlar að
skrifa en hún er ekki byrjuð
enn. Ég veit vel að oft er
þetta hægara ort en gjörl.
Við erum lfkt og fjöllista-
maðurinn með alla bolta á
lofti og ekki má mikið út af
bregða til að við missum þá
alla. Lærum að segja nei. A
árum áður fannst mér ég
þurfa að gera samstarfs-
manni greiða bara af því að
hann bað um það en nú er
ég löngu búin að læra að af-
saka mig með einhverju.
Móðir mín er gömul en
sæmilega ern og ég vil gjarn-
an að hún geti lifað sjálf-
stæðu lífi sem lengst. Ég
vinn að því að fá hana til að
taka hvern dag eins og hann
kemur í stað þess að skilja
hana eftir með langan lista
yfir það sem hún þarf að
gera.
Við verðum líka að læra
að stjórna reiðinni því reiði
er eyðandi afl. Lítum bjart-
sýnum augum á lílið. Vin-
kona mín greindist nýverið
með brjóstakrabba og þarf á
meðferð að halda. Hún veit
að innan skamms mun hún
missa allt hár á líkama sín-
um en í stað þess að láta það
brjóta sig niður sagði hún
við mig: „Að hugsa sér, ég
losna við að raka á mér
leggina næstu mánuði."
Það er erfitt að ímynda
sér að hægt sé að taka erfið-
leikunum svona létt og jafn-
fullkomin skipulagning og
Sherron fer fram á er eitt-
hvað sem flestir telja tæpast
á sínu færi. Sherron sjálf ber
það hins vegar með sér að
hún predikar ekki bara þær
reglur sem hún telur vænleg-
astar til að tryggja velgengni
og áhrif heldur fer hún aug-
Ijóslega sjálf eftir þeim. Hún
er ungleg, glaðleg og geislar
af sjálfstrausti. Allra augu
beinast ósjálfrátt að henni
þegar hún gengur um. Hún
stendur einnig á tindinum í
starfi sínu og er mikilsmetin
og virt í bandarískum við-
skiptaheimi, enda segir mál-
tækið að enginn kenni öðr-
um það sem hann ekki kann
sjálfur.
Vikan 75