Vikan - 19.10.1999, Síða 52
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Er kvnlífið
að kolna?
Dásemdardagar tilhugalífs-
ins eru oft fjörugir og þá
sérstaklega undir sænginni.
Maðurinn virðist ekki geta
sleppt þér úr fangi sínu og
kynlífið hreinlega blómstr-
ar. Það er nóg fyrir þig að
horfa á hann, þið eruð kom-
in í rúmið stuttu seinna.
Þegar frá líður og lífið fellur
í fastar skorður getur kyn-
lífsáhuginn minnkað, ekki
síst eftir að börnin fæðast.
Þá þarf að passa sig að
vekja ekki barnið og allir
eru þreyttir á kvöldin.
Oft þarf lítið til að endur-
vekja giæðurnar þegar farið
er að kólna á milli ykkar.
Prófið að nota hugmynda-
flugið, eins og nokkrar
ágætar konur gerðu, til að
vekja upp gamla lostann.
Fjörugt kynlíf er ekki bara
fyrir unga fólkið.
Smá sýning á morgnana
„Maðurinn minn vill helst njóta kynlífs á morgnana. vinnan okkar og
þriggja ára dóttir gera það að verkum að slíkt er mjög erfitt. Persónulega
finnst mér betra að gera það á kvöldin. Til að koma á móts við hann fann
ég út að ég gæti gefið ýmislegt í skyn á morgnana þótt við gætum ekki
gert það þá.
Suma morgna tek ég smá sýningu, þrýsti brjóstunum vel upp í
brjóstahaldarann og klæði mig á eggjandi hátt fyrir framan hann. Þegar
ég kveð hann þrýsti ég mér upp að honum og kyssi hann löngum kossi.
Hann hugsar um mig allan daginn og um kvöldið er hann aldrei of
þreyttur."
29 ára kona sem hefur verið í sambúð í 6 ár.
Kynlífið og kokkabækur
„Mér finnst kynlíf vera eins og eldamennska. Þú þarft alltaf að læra nýjar
uppskriftir. Eiginmaður minn býður alltaf spenntur eftir einhverju nýju á
þessum báðum sviðum. Ég hafði lesið í bók að karlmenn hefðu tilfinninga-
næmar geirvörtur. Mér til mikillar undrunar komst ég að því að maðurinn
minn hefur næmar geirvörtur. Það er nóg fyrir mig að nudda á honum geir-
vörturnar og hvísla einhverju æsandi í eyrun á honum. Eftir það hef ég hann
alveg í hendi mér."
26 ára kona sem hefur verið í sambúð í 3 ár.
I skyrtu af honum
„Eftir að hafa géngið meö tvö börn breyttist líkami minn mikið. Mér
fannst geirvörturnar á mér ekki eins tilfinninganæmar og liúðin á líkama
mínum hafði siitnað. Kynlíf okkar var orðið mjög dauft, maöurinn minn
var alltaf of þreyttur á kvöldin til að gera nokkurn skapaðan hlut. Ég var
fullviss um að kyndeyfð hans stafaði af likamlegum breytingum mínum.
Eitt kvöldið þegar ég kom úr baði klæddist ég eingöngu skyrtu af lionum,
settist á lærin á honum og byrjaði að kyssa hann. Ég hvíslaði í eyra hans:
„við skulum gera það hérna" og byrjaði aö afklæða hann. Honum fannst
þaö frábært."
37 ára kona sem hefur verið gift í 11 ár.
Ostakvöld
„I fyrra var ég farin að pirrast
á því að mig langaði oft að sofa
hjá manninum mínum en hann
var mjög áhugalaus. Ég reyndi
margt en ekkert gekk upp hjá
mér. Ég ákvað eitt kvöldið að nú
skyldum við ræða málin hreint út.
Ég keypti rauðvínsflösku og osta
og raðaði öllu upp á fallegan
bakka. Stofan var fallega upplýst
af flöktandi kertaljósum. Maður-
inn minn varð mjög hissa þegar
hann kom heim. Hann settist hjá
mér og byrjaði að tala við mig
um allt sem hafði gerst yfir dag-
inn í vinnunni hjá honum og við
ræddum saman um allt milli him-
ins og jarðar en minntumst ekk-
ert á kynlífið. Ég nuddaði á hon-
um axlirnar á meðan hann sagði
frá og allt f einu hvíslaði ég að
honum að mig langaði upp í rúm
með honum. Frá og með þessu
kvöldi breyttist allt. Við gætum
þess vandlega að hafa ostakvöld
a.m.k. einu sinni í viku hér eftir."
38 ára kona sem hefur verið
giftí 18 ár.
Ennþá kynþokkafull
„Maðurinn minn vill alltaf hafa frumkvæði að kynlífi okkar. Þegar mig
„Maðurinn minn vill alltaf hafa frumkvæði að kynlífi okkar.
langar og ég reyni að koma honum til getur hann verið
mjög erfiður. Ég upplifi mikla höfnun þegar hann vill mig
ekki og segist vera „of þreyttur". Eftir eitt slíkt kvöld hitti
ég hann og vini hans á matsölustað því við ætluðum öll
saman út að borða. Ég er ekki vön að daðra við karlmenn
en eftir að hafa verið hafnað í rúminu kvöld eftir kvöld
ákvað ég að sýna manninum fram á að ég hefði nú ennþá
kynþokka þótt hann tæki ekki eftir honum. Ég spjallaði við
fólkið í kringum mig og fann að aðrir karlmenn horfðu á
mig sem kynveru en ekki þreytta húsmóður. Skyndilega
fann ég að maðurinn minn lagði höndina á lærið á mér eins
og hann væri að merkja sér sitt svæði. Við áttum frábæra
nótt á eftir. Síðan þá passa ég mig á því að vera ekki í hús-
móðurhlutverkinu þegar við förum út á meðal fólks. Við
ræddum aldrei um þetta en ég finn að hann er ekki eins ör-
uggur með mig og hann var áður og honum finnst ég
greinilega meira kynæsandi."
37 ára kona sem hefur verið gift í 10 ár.
Að læra af sjónvarpinu
„Ég gerði mér allt í einu grein fyrir því við værum alltaf í sömu stelling-
unum. Ég ákvað því að reyna eitthvað nýtt og leigði mér bláa videospólu.
Þar sá ég ýmsar stellingar sem ég prófaði og þær
virkuðu svo sannarlega. Kynlíf okkar hefur verið frá-
bærtsíðan."
24 ára kona sem hefur verið í sambandi í eitt ár.
Nei í kvöld,
þýÖir já seinna.
„Ég hafði alltaf notið ásta
þegar maðurinn minn sýndi mér
áhuga, jafnvel þótt ég væri ekki
í þannig skapi. Ég ákvað að
sýna sjálfstæði og vera ekki
alltaf tilbúin þótt að hann lang-
aði. Ef ég segi nei við hann eitt
kvöldið, þá langar hann ennþá
meira til að elskast daginn eftir.
Næsta kvöld á eftir gengur hann
harðar á eftir mér og þannig
höfum við náð að skapað mikla
spennu."
33 ára konu sem hefur ver-
ið í sambandi í fimm ár.
Aftur í skóla
„Ég ákvað að fara í framhaldsnám vegna þess að ég
var orðin leið á öllu I lífi minu, þar með töldu hjóna-
bandinu. Skólinn var á kvöldin og það virkaði eins og
orkusprengja á mig. Ég kom heim full af áhuga og mig
langaði að ræða um allt við manninn minn. Maðurinn
minn sat með mér fram eftir, við drukkum kaffi eða
fengum okkur vínglas og hann hlustaði af meiri áhuga
en hann hafði gert í mörg ár. Hann langaði að vita hvað
væri að gerast í mínu nýja lífi. Áhugi minn á honum
glæddist og við urðum eins og unglingar aftur. Þetta
var frábært."
40 ára kona sem hefur verið gift í 18 ár.