Vikan - 19.10.1999, Qupperneq 58
Texti og myndir: Kristján Frímann
(24.október - 22.nóvember)
agarnir drágj
ast saman og
lífs-
orkunni en
myrkrið lifnar
og allt sem því fylgir. Þetta er
tími Sporðdrekans sem undir
áhrifum plánetunar Plútó sækir
í myrkrið, einveruna og dauð-
ann. Nafnið er komið frá Plútó,
versta guði Grikkja og vistin
hjá þessum samviskulausa
drottnara undirheima er hörð
og miskunnarlaus. Hliða ríkis-
ins gætir hundur hans þríhöfð-
aður, hinn illvígi Kereberos sem
rífur hvern þann er reynir að
Sporðdrekinn er forgömul
sltepna sem ekkert hefur breyst *
í aldanna rás og virðist því eilíf-
ur. Hann er sérlundað kvikindi
sem eirir ekki með öðrum og er
eitt fárra dýra sem fremur
sjálfsmorð komist hann í hann
krappan. Þessa eiginleika ásamt
fyrrnefndum myrkum eðlisþátt-
um má heimfæra á þann sem
fæðist í merki þessa sérstæða
dýrs. Sem persóna kemst hann
langt í því að draga fólk á tálar
og sundra lífi þess, bara til að
kitla eigin hégómagirnd. Þar
skiptir engu hvort hann er ljón-
losna þrisvar á hol, sér til
óblandinnar ánægju. í tákn-
fræði merkir undirheimur
skuggahlið mannssálarinnar og
þar þrífst Plútó best, hann
dundar sér við að draga mann-
fólkið niður í svaðið, hlaða
þunglyndi í sálir þess, trylla það
og sundra tilfinningalega. Plútó
er einnig guð auðs og valds og
þegar þessi öfl tvinnast saman
er stutt í galdra og fjölkynngi.
Það er því ekki bara eitur-
broddur Sporðdrekans sent
stingur þegar á nærveruna
reynir.
gáfaður og snillingur ef ásjóna
hans ber svipmót Drekans.
Dæmi um slíkan mann var
Pablo Picasso (fæddur 24. októ-
ber 1881), sem er, þótt dauður
sé, einn af listjöfrum heimsins.
Hann safnaði konum eins og
vasaklútum sem hann snýtti sér
í og fleygði síðan. Það voru
seiðandi og stingandi augu
Sporðdrekans Picassos sem
töfruðu og lömuðu konuna svo
hún varð sem viljalaust verkfæri
í höndum hans. En eiginleikar
þessa kröftuga rnerkis eru
margir og speglast í plánetun-
um sem fylgja merkinu.
Sporðdreki sent fæðist undir
H||,
áhrifum tunglsii
ð fyllast grillu'” ■
hlúti bfsjónumf
lífi sínu í eigin sjálfseyðingu.
Merkúr ýtir undir skilning
viðkomandi og skerpir sýn hans
á lífið en sá sami Merkúr stuðl-
ar að sadisma og ofstæki.
Venus gerir Sporðdrekann
friðlausan af ástleitni sem köll-
uð er brókarsótt og sá á í stöð-
ugu basli með sjálfan sig og
samskipti við aðra.
Júpíter setur Drekann á æðra
plan og gerir hann að metnað-
argjörnum og kröftugum ein-
staklingi með heillandi útgeisl-
un.
Satúrnus temur Skorpí-
óninn í háttprúðan mann
með mikla sjálfstjórn og
fróðleiksfúsa lund, þó
getur Satúrnusi mistekist
ætlunarverk sitt og þá
birtist kreddufullur ein-
staklingur, fullur sjálfs-
vorkunar og með allt á
hornum sér.
Dreki undir áhrifum
Úranusar er algjört kyn-
tröll en jafnframt frábær
elskhugi, sá hinn sami er
valdasjúkur einstaklingur
sem lætur fátt ógert til að
ná sínu ákveðna sæti í líf-
Neptúnus meitlar snillinga,
menn sem kunna margt fyrir
sér og eru skapendur nýrra
hugmynda.
Hugur og hjarta
í huga margra er Sporðdrek-
inn eiturpadda sem best er að
losa sig við og drepa sem fyrst,
en drekinn dökki er ekki allur
þar sem hann er séður þótt
finna megi skepnur í ntanns-
mynd þessa dýrs. Merkið geym-
ir frábærar persónur sem eru
hvers manns hugljúfi, kátt fólk
sem stuðlar að sáttum frekar en
sundurlyndi. jöfnuði frekar en
einkavæðingu og friði frekar en
stríði. Þrautseigt fólk með þel-
gooaduifcíÍern vtnnur aTiægð-
inni og kann að meta orðatil-
tæki eins og "Sá vægir sem vitið
hefur meira1', enda er hugur
Sporðdrekans stór og rúmar
mikla visku.
Áhugamál og störf
Sporðdrekinn hefur næmt til-
finninganet og "fálmarar" hans
eru vel virkir, þannig að hugboð
eru honum töm. Sjötta skilning-
arvitið er honum til halds og
trausts og því velur hann sér
störf og áhugamál tengd þessu
næmi. Að gerast greinandi,
þýðandi, eðlisfræðingur, glæpa-
sérfræðingur, leynilögga, læknir,
íþróttamaður, útfararstjóri eða
rekstrarstjóri erótísks dansstað-
ar er nokkuð af þeim málefnum
sent höfða til hans og geti hann
spunnið þau við þá miklu orku
sem hann hefur og sérstæðan
einstrengingshátt, þá er hann í
góðum málum.
Tíska og lítir
Það er ekkert leyndarmál að
rautt og svart eru uppáhaldslitir
Drekans og ef hann mögulega
getur tengt þá sér og sínu, gerir
hann það með glöðu geði.
Hann er smekkmaður í efn-
isvali og ekki er frá því að
svolítill Japani leynist í Drekan-
um enda byggir hann á langri
reynslu við að fága skyn sitt á
dökka liti. Fólk í Sporðdreka-
merkinu líkist oft hetjum ævin-
týranna í útliti þegar það geng-
ur uppábúið til veislu, þá hvílir
einhver mögn yfir þvf svo marg-
ir fá fiðring.
Líkami og heilsa
Vatnið umlykur Sporðdrek-
ann sem tákn og í vatninu er
næring, líf og hreinsun, þess
vegna verður Drekanum sjald-
an misdægurt. Hann er stæltur
58 Vikan