Vikan - 19.10.1999, Síða 59
■
fjaðurniagnaður að eðlisfari,
ósérhlífinn atorkumaður sem
kaflSr ekki allt ömmu sína. Ef
hann á annað borð skellir sér í
eitthvert verkefni tekur hann
það föstum tökum og vippar
því í höfn. Ætli hann sér að
verða "Mister Universe" verð-
ur hann það. Fái hann flensu
ræskir hann sig hraustlega og
flensan er úr sögunni, fótbrjóti
hann sig máttu vara þig. En all-
ir hafa sinn djöful að draga og
maginn angrar Sporðdrekann
öðrum líffærum fremur.
Ástir og kynlíf
Ástalífið er til að lifa því,
kynlífið til að njóta. Sporðdrek-
ar eru engir hálfdrættingar þeg-
ar ástin er annars vegar, þeir
eru ástríðufullir og "Kama
Sutra" er þeim sem opin bók.
Margir Drekar hafa iðkað lið-
lega bólfimi áður en í hnapp-
helduna er komið en þá er líka
leiknum lokið og alvaran tekur
við. Sporðdrekinn er trúfast
merki og ástin er honum heilög.
Hann er trúr maka sínum til
dauða og hann ætlast til þess
sama af makanum. Læðist sá
grunur að honum að hann sé
hafður að fífli er næsta líklegt
að hann hendi viðkomandi á
dyr með allt sitt hafurtask og
losi sig við hann fyrir fullt og
allt. Sporðdrekinn er auðsærð-
ur, afbrýðisamur og fljótur að
gera úlfalda úr mýflugu. Hann
klippir á sambönd og þetta á
einnig við um vini. Parna kem-
ur einn vfeikasti hlekkur Sporð-
drekans fram hversu snöggur
hann er að beita eiturbroddin-
um og drepa sýnist honum svo.
Heimili, listir og
menning
Par sem Drekinn er næmur,
ljósfælinn og munúðarfullur er
hann gefinn fyrir þá andlegu
iðkun sem felst í lestri, pæling-
um og skoðun listrænna verka.
Leikhúsið er honum heimur
sem hann hverfur oft til og að
geta hreiðrað um sig í myrkv-
uðum bíósal veitir honum hug-
arfró. Heima fyrir kýs hann
rökkvað umhverfi í lit og lýs-
ingu, þar sem stíllinn er fágaður
en jafnframt íburðarmikill,
enda vill Sporðdrekinn berast
mikið á. Hann er húsbóndi á
sínu heimili og beitir vopni sínu
óspart til að svo verði. Drekinn
er gestrisinn og greiðvikinn
þeim er hann hefur velþóknun
Foreldrar og börn
Þótt Sporðdrekinn sé einfari
að eðlisfari er hann vitlaus í að
eignast börn og helst mörg. Að
hafa krakkaskara í kringum sig
veitir honum allt það er einum
manni getur hlotnast. Dreka-
foreldrar elska börn sín og vilja
allt fyrir þau gera, ef litla krílið
fær áhuga á hestum (svo dæmi
sé tekið) er ekki bara keyptur
hestur, heldur hesthús og allt
tilheyrandi. Sporðdrekabarnið
þarf að hafa mikið fyrir stafni í
leikskólanum annars fer allt í
bál og brand. Drekabörnin eru
ráðrík og frek sem stafar af
óþroskuðum tilfinningum og
þau hneigjast til einræðis í leikj-
um. Heima fyrir bólar á því
sama og fái Drekinn ekki skiln-
ingsríkan stuðning getur hann
orðið erfiður ljár í þúfu. Finnist
honum hann misskilinn og and-
staðan óréttlát á hann það til að
mótmæla kröftuglega og verða
heimili sínu og umhverfi til
vandræða.
Ytri áhrif
Spordrekinn er laus við allt
sem heitir snobb, hann lætur
ekki aðra stjórna lífi sínu og
þrælslund er honum fjarri
skapi. Hann er með öðrum orð-
um sjálfs sín herra og því er
óþarfi að spá meira í ytri áhrif-
in.
Sumar, haust og
vetur 1999
Arið í ár hefur reynst Sporð-
drekanum einkar áhugavert.
Par sem Mars hefur siglt í gegn-
um merkið hefur
Drekinn verið úttroð-
inn af orku og frum-
kvæði til verka. Allt
sem hann snertir
verður honum til
frama í opinberu lífi
en heima fyrir eru
fingur hans klístraðir.
Boðskipti ganga treg-
lega og því er eitur-
broddurinn oftar á
lofti en góðu hófi
gegnir. Við svo búið má ekki
sitja og því er Drekanum best
að hunskast burt um stund og
hugsa ráð sitt frekar en að eyði-
leggja samband sem gæti orðið
himnaríki á jörð. Þegar hann
hefur borað út skilning sinn og
boðleiðir er honum vært að
snúa við og hefja sinn svana-
söng. Enginn stenst kátan
Dreka og fari hann á flug verða
þessir síðustu dagar tuttugustu
aldarinnar eftirminnilegir. Nú
og einmitt nú er best að binda
broddinn og skella sér í þá
ofgnótt tækifæra sem bíða
handan við hornið. Lífið er til
að njóta þess og allt í einu verð-
ur lífsmunstrið skýrara, tilfinn-
ingarnar fljóta upp og Drekinn
finnur sig knúinn til að sýna sín-
ar bestu hliðar, kyssa heiminn
og faðma. Hin mikla orka
Drekans og úthald veitir hon-
um þrótt til að sinna öllum
heimboðum og þeim veislum
sem haldnar verða til heiðurs
nýrri öld.
Samantekt
Ef ég ætti að segja allt sem
vert er að segja um þetta
kúnstuga merki dygði knappt
heil Vika, því af nógu er að
taka. Sem dæmi eru það fjár-
málin en Drekinn getur náð
ótrúlegum hæðum á því sviði
séu önnur tákn honum hliðholl,
samanber Bill nokkurn Gates.
En það er fæðingarstundin og
staðurinn ásamt uppeldi sem
hefur mest áhrif á drekann
ásamt himintunglunum og guð-
legri forsjá.
Vikan 59