Vikan - 02.11.1999, Síða 8
bæinn þó að síðasta ár hafi
verið erfitt, sérstaklega síð-
an B&L byrjaði að byggja
nýtt hús undir starfsemina
sem nú hefur verið opnað.
Það var mjög mikið að gera
meðan á þessum fram-
kvæmdum stóð og við vor-
um t.d. upptekin alla pásk-
ana.
Það verður auðvitað alltaf
erfitt að samræma svona
krefjandi starf og fjölskyldu-
líf en maður lærir bara að
forgangsraða eins og ein-
hver sagði, setja hlutina í
ákveðna röð eftir mikilvægi.
Sumt verður líka að læra að
geyma til morguns því það
fer ekkert frá manni.
Ég held að það sé í raun
ekkert erfiðara fyrir konur
að vinna úr þessu en karla.
Mér hefur þótt verst að eiga
við fundi vegna ýmislegs
tengdu vinnunni. Þetta hef-
ur að vísu lagast töluvert
síðan ég byrjaði. Yfirleitt
voru þessir fundir settir á
dagskrá eftir vinnu og var
mæting þá klukkan fimm og
maður komst kannski ekki
heim fyrr en klukkan sjö.
Nú eru menn frekar farnir
að nota hádegisverðarhléð
sem er mun skynsamlegri
tími því hann nýtist lítið til
vinnu hvort sem er.
Konur hafa sennilega
heldur meiri ábyrgðartil-
finningu gagnvart fjölskyld-
unni, ekki það að karlar hafi
hana ekki en mér þótti alltaf
óþolandi að vera svona seint
á ferðinni og fann gjarnan
fyrir því. Ég sit í stjórn Bíl-
greinasambands íslands og
nú höldum við fundi í há-
deginu. Þessi breyting tel ég
að sé til bóta og þá sérstak-
lega fyrir konur. Bæði konur
og karlar eru einfaldlega
farin að meta frítíma sinn
öðruvísi. Kröfurnar eru
breyttar heima fyrir. Hugs-
unarháttur minnar kynslóð-
ar er annar en var fyrir ekki
svo mjög löngu síðan. Hjón-
in taka bæði þátt í heimilis-
lífinu og færri konur í dag
myndu sætta sig við það að
vera í vinnu hálfan daginn
og sjá um heimilið þess fyrir
utan. Staðan er þannig að
þær geta verið í fullri vinnu
og karlarnir taka þá jafnan
þátt í heimilistörfunum og
álagið á konuna verður ekki
eins mikið. Þarna hefur átt
sér stað ákveðin þróun sem
hlýtur að vera jákvæð fyrir
konur."
Héldu að pabbi hefði
bara tekið mig með sér
I heimi viðskiptanna þurfa
konur yfirleitt að leggja hart
að sér til að ávinna sér traust
og virðingu en það eru ekki
bara konur sem hafa sig all-
ar við. Ungtfólk nýtur ekki
jaj'n mikillar virðingar og
hann verður svo á götunni
því það er oft mjög mikill
munur þar á."
Lítill tími fyrir annað
en fjölskylduna og
vinnuna
Að reka fyrirtœki er mikið
ábyrgðarstarf og þeir sem
standa í eldlínunni eru yfir-
leitt ákaflega uppteknir.
Erna á fimm ára dóttur og
nú er annað barn á leiðinni.
Hún hlýtur að finna fyrir því
að erfitt sé á stundum að
samrœma þarfir fjölskyld-
unnar og fyrirtœkisins.
„Það er svo sem enginn
tími til annars en að vinna
og sinna fjölskyldunni. Við
höfum að vísu ferðast mikið
um landið. Á síðastliðnum
tveimur árum höfum við
ferðast mjög víða. Mér
finnst það mjög skemmti-
legt. Um helgar förum við
oft í stuttar ferðir út fyrir
hinir sem eldri eru og oft er
það talið ofblautt á bak við
eyrun til að geta staðið í við-
ræðum þegar verið er að
koma saman stórum samn-
ingum. Hefur Erna einhvern
tíma orðið vör við það að
menn hafi átt bágt með að
trúa að jafn itng manneskja
gœti virkilega verið í slíkri
ábyrgðarstöðu?
„Ekki nú orðið. Þegar ég
byrjaði kom þetta fyrir. Ég
man þegar við pabbi fórum
fyrst til Kóreu til að semja,
þá horfðu menn á mig undr-
unaraugum. Ég hafði það á
tilfinningunni að þeir héldu
að pabbi hefði bara tekið
mig með svona til að leyfa
mér að ferðast en svo áttuðu
þeir sig á því að við vorum
komin þarna bæði til að
semja og viðmótið breyttist
fljótt. Stundum gerist þetta
en yfirleitt þegar fólk byrjar
að tala og það kernur í ljós
að það veit alveg um hvað
er verið að ræða, að það
kann á vöruna, kann tækni-
málið sem notað er og veit
hvað er hvað í vélinni þá
gleymist aldurinn. Á móti
þeim ókosti að þurfa að
sanna sig á þennan hátt
kemur að það er frekar
munað eftir manni þegar
rnaður kemur næst. Ég hef
oft heyrt vísað til sjálfrar
mín með orðunum: „Það er
þarna „konan.”
Það er komið að lokum
þessa spjalls en það er ekki
á Ernu að finna neinn asa
eða að henni liggi lífið á að
komast til að sinna öðrum
verkefnum þótt vitanlega sé
margt sem liggur á hjá stóru
fyrirtæki. Hún er mjög yfir-
veguð og róleg kona sem
hefur notalega og hlýja
framkomu vekur traust hjá
viðmælandanum. í viðskipt-
um eru þetta vafalaust
ómetanlegir kostir.
8 Vikan