Vikan - 02.11.1999, Page 24
Það fer mörgum sögum af því hvers konar venj-
ur fólk eigi að temja sér tii þess að ná árangri í
starfi. Mikið af þeim hugmyndum eru ekki á
rökum reistar og eru einfaldlega klisjukenndar.
Við skoðum hér nokkrar algengar staðhæfingar
um vinnuna og hrekjum þær.
Goðsögn 1.
Skrifborðið þitt á alltaf
að vera vel skipulagt.
Oreiða á skrifborðinu þarf
ekki alltaf að vera slæm og við
getum hæglega flokkað skrif-
borðsdrasl niður í „gott" og
„slæmt" drasl. Pað sem er
óhætt að telja „slæmt" drasl
eru kaffibollar, dagblöð frá
síðasta mánuði og gamlir
krumpaðir minnismiðar sem
hafa ekkert notagildi lengur.
„Gott" drasl eru hins vegar
haugar af áríðandi pappírum,
áætlunum og öðru sem þú
þarft reglulega að grípa til.
Það sem skiptir máli hér er að
geta fundið gögnin sín fljótt
og fyrirhafnarlaust. Skrifborð-
ið þitt getur litið út fyrir að
vera ein allsherjar óreiða í
augum annarra en getur samt
verið mjög skipulagt. Skipu-
lagt kaos. Sumt fólk vinnur
við skrifborð sem lítur út eins
og eftir sprengjuárás en er
samt mjög skipulagt og gengur
að öllum sínum gögnum og
pappírum vísum.
Goðsögn 2
Þú skalt alltaf þiggja
stöðuhækkanir.
Hér áður fyrr var það næst-
um heilög skylda að þiggja
með þökkum allar stöðuhækk-
anir sem í boði voru hverju
sinni. í dag er það enginn stóri
sannleikur, því hvað ef nýja
starfið er ekki í samræmi við
langtíma atvinnumarkmið
þín? Einnig er inni í myndinni
að stöðuhækkunin feli í sér
gjörbreytta starfsaðstöðu og
nýjar skyldur sem jafnvel
henta þér ekki. Það er vís leið
til þess að skapa vanlíðan og
því skyldir þú hugsa þig vand-
lega um ef þér er boðin stöðu-
hækkun innan fyrirtækisins.
Goðsögn 3
Leggðu á þig enda-
lausa vinnu.
Hvort mjög mikil vinna sé
æskileg fer m.a. eftir því
hversu oft og mikið þú vinnur
eftirvinnu. Það er bara hið
besta mál að taka að sér auka-
verkefni stöku sinnum og
vinna af kappi fram eftir
kvöldi. Aukapeningurinn
kemur sér örugglega vel og þú
skapar þér vafalítið traust
vinnuveitenda þíns. Ef þú ert
aftur á móti í botnlausri auka-
vinnu langt fram eftir kvöldi
svo mánuðum skiptir, ýmist að
bæta á þig verkefnum eða
ganga frá endalausu pappírs-
flóði eftir erilsaman dag, þá er
líklegt að þú fáir á þig þann
stimpil að þú sért ekki nógu
hæf og eigir ekkert einkalíf
fyrir utan vinnustaðinn. Þá er
betri kostur að taka hluta
vinnunnar með sér heim, t.d.
ef þú þarft að vera í einhvers
konar skýrslugerð eða semja
áætlanir. Þú gætir meira að
segja unnið töluverðan hluta
af slíkri vinnu fyrir framan
sjónvarpið eða á meðan þú
nýtur þess að hlusta á góða
tónlist. Það er þó ekki þar
með sagt að þú skulir ætíð
slökkva á tölvunni um leið og
klukkan slær 5. Það er einmitt
fremur jákvætt að vera ekki
bundinn klöfum stimpilklukk-
unnar og helstu verkefnum
sínum. Enda sýnir það áhuga
á vinnunni og mun eflaust
gefa þér nokkur prik hjá yfir-
manni þínum, sérstaklega ef
hann sjálfur vinnur eitthvað
fram eftir.
Goösögn4
Ekki sleikja þig upp
við yfirmann þinn
Það er enginn annar en yf-
irmaður þinn sem lumar á
launa- og stöðuhækkunum og
hann er einnig sá sem sér um
að úthluta verkefnum. Því er
það þér vitanlega í hag að
vera í góðum samskiptum við
yfirmanninn og þú ættir að