Vikan - 02.11.1999, Side 51
in eina sanna ast
Tíu atriði sem konur
sækiast eftir:
1. 43% vildu hafa líkama eins og ofurfyrirsætan Cindy
Crawford.
2. 41% vildu fá blóm og kampavín frá sínum heittelskaða.
3. 36% vildu segja barnabörnunum sögu um hvernig þær
hittu draumaprinsinn, þ.e. afa gamla.
4. 43% vildu eyða kvöldstund með Nelson Mandela.
5. 66% vildu hafa meiri tíma fyrir sig, jafnvel þótt að þær
fengju minna útborgað.
6. 40% vildi eiga fjölskyldu sem væri eins og Cosby fjöl-
skyldan sem var vinsælt sjónvarpsefni um árabil.
1. 36% vildu prófa teygjustökk.
8. 53% vildu halda eigin eftirnafni eftir að þær gil'tu sig.
9. 40% vildu ferðast um heinrinn.
10 . Allar vildu þær geta gengið úti á götu á kvöldin án þess
að þurfa vera hræddar.
9. Konur eru
flökkukindur.
Stór hluti kvennanna vildi
eyða 70.000 króna ávísun í
ferðalög fremur en allt ann-
að sem eru góðar fréttir. Við
verðum að láta staðreynd-
irnar tala sínu máli og koma
því líka á framfæri að 6%
aðspurðra kvenna vildi eyða
ávísuninni í nýtt eldhús!!!
Æj, æj. Engin þeirra var hins
vegar tilbúin að láta pening-
inn renna til góðgerðamála.
Hvert stefnum við?
10. Kvíði og hræðsla.
Konur kvarta yfir því að
geta ekki gengið óhulltar úti
á kvöldin, hvort sem er um
að ræða London, New York
eða Reykjavík. Pær búa við
frelsisskerðingu með því að
eiga sífellt á hættu á að
verða fyrir Iíkamsárás.
Hægt er að gæta sín með því
að forðast fáfarnar götur að
næturlagi, vera innan um
hóp fólks sem þú treystir,
vera með nægilegt fé til að
borga leigubíl o.s.frv. Konur
geta þó aldrei tryggt sig
gegn því að verða fyrir lík-
amsárás og verða því að
haga lífi sínu í samræmi við
þá staðreynd. Sorglegt en
satt.
8. Við höfum
vinninginn.
Loksins geta íslenskar kon-
ur státað sig af því að skara
fram úr á einhverju sviði,
enda kominn tími til.
Bresku konurnar vildu fá að
halda eftirnafninu sínu eftir
giftingu til merkis um sjálf-
stæði. Eina vandamálið við
slíkt væri þegar börnin
fæddust. Hvaða eftirnafn
ættu þau að bera? íslenskar
konur ættu kannski að fara
að markaðssetja dóttir og
son hefðina okkar og kenna
konum í öðrum löndum
hvernig eigi að þróa hið ís-
lenska eftirnafnakerfi.
7. Sjálfstraustið í lagi.
Konur nefndu margt sem
dæmi um mikið sjálfstraust.
Fyrir utan teygjustökkið þá
þótti konunum það vera
merki um ^
nægilegt
sjálfstraust
til að kona gæti
gengið á fund at-
vinnurekanda síns og
beðið um launahækkun, alls
voru 34% kvenna sem
nefndu það. 14% svarenda
voru á því að tattó á líkam-
anum væri merki um sjálfs-
traust.
6. Sjónvarpsstjörnulíf.
Allar vildu þær eiga hina
fullkomnu fjölskyldu. Kon-
urnar voru spurðar út í
um þær
vildu helst
eiga fyrir sína
eigin og þar kom Cosby
Show best út. Eftir nánari
spurningar kom í Ijós að
helsta ástæða þess að þær
völdu hana var fjárhagur
fjölskyldunnar. Pabbinn var
læknir, mamman lögfræðing-
ur og allir voru hamingju-
samir.