Vikan


Vikan - 02.11.1999, Qupperneq 60

Vikan - 02.11.1999, Qupperneq 60
SPARKAÐI EIGINMANNINUM UT Gamanleikkonan kjaftfora Roseanne er enn einu sinni upp á kant viö eiginmann sinn, Ben Thomas. Nú herma fregnir aö allt stefni í aö hún skilji í þriðja sinn. Roseanne sparkaði Ben, sem erfyrrum lífvöröur hennar, á dyr eftir heiftarlegt rifrildi. Hún var eitthvað ósátt viö hversu drykkfelldur og kven- samur hann væri þessa dagana. Roseanne stýrir nú spjallþætti í bandarísku sjónvarpi og eftir rifrild- ið viö Ben brotnaði hún niöur fyrir framan sam- starfsfólk sitt. "Þaö er alltaf sparkað í mig liggjandi og ég er búin aö fá nóg af þessari vitleysu," sagði Roseanne meö tárin í augunum. Hún missti síðan alveg stjórn á sér við upptökur á þættinum. Hún var oft á tíðum nær óskiljanleg og talaði meira við sjálfa sig en áhorfendur. Að lokum gafst hún upp og yfirgaf sviðið.Tökum á þættinum var hætt og stjörnunni var ekið heim í limmósínu. Hún kom aft- ur tveimur tímum síðar til að halda áfram en þá var samstarfsfólkið farið heim. KYNÆSANDI LEIKSTJÓRI Leikkonan Kate Capshaw hefur verið í skugganum af eiginmanni sínum undanfarin ár, enda er hún gift einum mesta meistara kvikmyndasögunnar, leikstjóranum Steven Spielberg. Hún segist þó fá jafnmikla ánægju út úr því að fylgjast með honum starfa eins og að vera sjálf í sviðsljósinu. "Mér finnst mjög heillandi að fylgjast með honum vinna," segir Capshaw, sem áfimm börn með Spi- elberg og eina dóttur frá fyrra hjónabandi. "Þegar ég fylgist með Steven leikstýra finnst mér hann rosalega sexí. Það kemur mér til að fylgjast með honum munda myndavélina. Þetta er stór vél og hann er mjög, mjög snjall með hana." Hún segir að hjónakornin hafi rætt það að vinna saman að mynd en kannski þau eigi erfitt með það ef Capshaw verður alltaf ástleitin í hvert sinn sem hún sér eig- inmanninn með upptökuvélina. HRÆÐIST EKKI MAFÍUNA Klámkollurinn Larry Flynt, sem gefur út karlaritið Hustler ásamt fleiri klámsneplum, er alltaf að færa úr kvíarnar. Nú er Flynt kominn til Rússlands og ætlar sér stóra hluti í tímarita- útgáfu í Moskvu. Hann er ekkert smeykur við óstöðug- leikann í stjórnmálum í gömlu Sovétríkjunum. "Það gæti meira að segja hjálpað Larry að ná fótfestu þar," segir innanbúðarmaður í herbúðum Flynts. Kunnug- ir segja að Flynt muni ef- laust þurfa að kljást við rússnesku mafíuna sem muni sækjast eftir hluta af gróðanum en bandaríski klámkóngur- inn ertil í slaginn. Hann þurfti að yfirvinna marga stóra hjalla í baráttu sinni fyrir að koma klámi inn á heimili landasinnaog er nú bundinn við hjólastól. "Ég held að hann verði ekki hræddur við rúss- neska ribbalda með loð- húfur sem heita allir Igor," segir heimildarmaðurinn. SLAPP LIFANDI ÚR LÝTAAÐGERÐ Kathy Griffin leikur hina orðheppnu Vicki Groener í þáttunum Laus og liðug (Suddenly Susan) sem sýndir hafa verið í Ríkissjónvarpinu undanfarin misseri. Griffin fór í fitusog fyrir skömmu til að losna viö appelsínuhúðina á lærunum og var hepp- in að sleppa lifandi. Hún sýndi heiftarleg ofnæmis- viðbrögð við deyfingarlyfjunum og var hætt kom- inn. Kathy hefur aldrei átt við fituvandamál að stríða en henni finnst sjálfri sem hún sé of feit miðað við margar gellurnar í Hollywood. Hún hefur þó aldrei verið talsmaður lýtaaðgerða. í viðtali sem hún veitti fyrr á árinu sagðist hún eiga þá ósk heitasta fyrir nýja öld að lýtalækningar féllu úr tísku. "Mér finnst að það eigi að hlæja að og snið- ganga fólk sem fer í lýtaaðgerðir," sagði Griffin. SALLY SOÐLAR UM Leikkonan Sally Field verður 53 ára hinn 6. nóv- ember. Field, sem er best þekkt fyrir að leika í myndum eins og Smokey and the Bandit, Norma Rae, Mrs. Doubtfire og Forrest Gump, er nú farin að snúa sér að leikstjórn. í haust hófust tökur á myndinni Beautiful þar sem hún leikstýrir Minnie Driver, Joey Lauren Adams og Leslie Stefanson. Myndin fjallar um unga konu sem er staðráðin í að verða fegurðardrottning. Field er ekki alveg ókunn- ug því að leikstýra. Fyrir þremur árum leikstýrði hún Andrew McCarthy í sjónvarpsmyndinni The Christmas Tree, sem margoft hefur verið sýnd á Stöð 2. Hún hefur líka leikið í tæplega 50 kvik- myndum og ætti því að vera búin að læra eitt og annað í faginu. ENN BESTU VINIR Sveitasöngvarinn Lyle Lovett er sennilega þekkt- astur hér á landi fyrir að hafa verið fyrrverandi eig- inmaður Juliu Roberts. Það er enn mjög Ijúft á milli þeirra þrátt fyrir að hjónabandið hafi ekki staðist tímans tönn. Nú er Julia aft- ur á leið upp að altarinu, að þessu sinni með leikaranum Benjamin Bratt. Hann þurfti að standast óvenjulegt próf áður en hún samþykkti að giftst hon- um. "Ég er með svolítið sem ég kalla Lyle-mælinn," segir Julia, sem er með mynd af fyrrverandi eiginmanni sínum á skrifstofu sinni en enga mynd af Bratt. "Ef maðurinn sem ég er með getur ekki sætt sig við að ég og Lyle séum svona góðir vinir þá get ég ekki haldið áfram að vera með honum." Leikkonan segir að Lyle muni ávailt eiga hluta af hjarta hennar en þau giftust árið 1993 eftir stutt samband og skildu 21 mánuði síðar. "Vin- skapur okkar Lyles er mér al- veg heilagur. Hann hefur kennt mér mjög margt." FANN DÓTTUR Á NETINU Kanadíska söngkonan Joni Mitchell verður 56 ára hinn 7. nóvember og hún segist aldrei hafa verið ánægðari. Fyrir fimm árum var því slegið uþp í slúður- blöðum að Joni hefði eignast barn árið 1965 en hún hafi verið svo fá- tæk að hún hafi ákveðið að gefa það til ættleiðingar. I kjölfar frétt- anna ákvað söngkonan að lýsa eftir dóttur sinni á heimasíðu sinni inu. Það bar árangur þegar Kilauren Gibb, 34 ára, fyrrverandi fyrir- sætu í Toronto, var bent á að skoða heimasíðuna. Hún hafði verið að leita að mömmu sinni í nokkur ár eftir að hún frétti að hún hefði verið ættleidd. Meira en 30 stúlkur höfðu samband við umboðsmann söngkonunnar og töldu sig vera týndu dóttur- ina en Kilauren var svo lík Joni að það voru yfirgnæfandi líkur á að hún væri sú rétta. Það kom síðan á daginn og þær hittust fyrst fyrir tveimur árum. "Það breytti mér mikið að eignast fjölskyldu," segir Joni. "Við höfum átt indælar stundirsaman."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.