Vikan - 11.01.2000, Blaðsíða 10
umhuérfí, nýr skóli opnýírfi
Börnin lenda líka mjög oft í I
streitu á milli foreldranná:"
Ákuörðun um skiinað hefur ekkí bara áhrif á bá einstaklinga sem vilja slíta
sambandi. Hún hefur áhrif á alla fjölskylduna og bá sem standa henni næst.
Börnin, sem hafa bað eitt til saka unnið að elska foreldra sína, verða oft að
bitbeini í hatrammri baráttu fullorðinna einstaklinga. Sorgin sem bau bera í
brjósti sínu gleymist gjarnan og begar beir fullorðnu telja sig vera búna að
jafna sig, bá eiga börnin að brosa og vera góð.
Hjúskapar- og sam-
búðarslit valda
ætíð sorg hjá
þeim sem að
sambandinu standa. I mörgum
tilfellum eru báðir aðilar sam-
mála um að þeir séu ham-
ingjusamari sitt í hvoru lagi og
reyna að feta veg skynseminn-
ar við skilnaðinn eftir því sem
hægt er. Sorgin sækir þetta
fólk líka heim en það er ef til
vill betur í stakk búið að
takast á við sorgarferli ef það
er sjálft sátt við ákvörðunina.
Því miður enda fleiri sambönd
með sprengju þar sem annar
aðilinn er sár og reiður yfir því
að hinn vilji skilja. Fullorðið
fólk hagar sér oft mjög óskyn-
samlega og oftar en ekki
gleymast blessuð börnin í öll-
um hamaganginum.
Foreldrarnir geta átt erfitt
með að ræða málin sín á milli
af einhverri skynsemi og fyrr
en varir eru börnin farin að
flytja skilaboð á milli þeirra
og þurfa að njósna um hitt
foreldrið. Áður en þau vita af
er búið að stilla þeim upp við
vegg og þau þurfa að taka af-
stöðu með öðru foreldrinu og
á móti hinu.
Framhjáhald leiðir oftast af
sér mjög hatramma skilnaði
svo ekki sé meira sagt. Sá sem
heldur fram hjá þjáist oft af
sektarkennd yfir því að
splundra fjölskyldunni en hinn
aðilinn er að vonum sár yfir
tryggðarsvikunum. í slíkum
skilnuðum eru börnin oft not-
uð sem vopn.
Framhjáhald eru mikil svik,
á því leikur enginn vafi. Þess
verður sarnt að gæta að draga
ekki börnin inn í slíkar illdeil-
ur. Þau hafa ekki unnið til
neinna saka. Sem foreldrar er
það skylda okkar að huga að
þörfum barnanna og láta þær
stjórna gjörðum okkar. Börn
eiga rétt á að umgangast báða
foreldra sína svo framarlega
10 Vikan