Vikan - 11.01.2000, Blaðsíða 49
Átröskun kynjanna
Það gerist sífellt algengara að karlar þjáist
af offituvandamálum og lystarstoli. Marla
Sanzone er doktor í klínískri sálfræði í Mary-
land í Bandaríkjunum sem sérhæfir sig I þess-
um efnum. Hún segir að rannsókn sem var
framkvæmd árið 1991 hafi leitt í Ijós að karl-
menn voru aðeins 5% þeirra sem þjáðust af
átröskunarvandamálum en síðan þá hefurtal-
an hækkað upp 110%. Það er því augljóst að
karlmenn eiga í auknum mæli I baráttu við
offitu og í ágústhefti tímaritsins Psychology
Today var Marla Sanzone innt eftir helstu or-
sökum þessa:
Hvers vegna færistþað í aukana að karl-
menn eigi við átröskun að stríða?
„Sennilega er helstu orsökina að finna í
breyttum félagslegum gildum síðasta áratug-
inn eða svo. Karlmenn eru farnir að vera undir
svipaðri pressu og konur hvað varðar hinn full-
komna líkama og auglýsingaheimurinn, ásamt
kvikmyndum og sjónvarpi, gera sömu kröfur til
þeirra."
/ hverju er munurinn á átröskunarvandamál-
um kynjanna falinn?
„Konum hættir til að þróa með sér átröskun
þegar þær eru á þeim aldri að hefja háskóla-
nám á meðan karlar eru viðkvæmari gagnvart
þessu í gagnfræðaskóla. Þeir eru yfirleitt yngri
þegar vandamálið fer að láta kræla á sér. Al-
gengasta orsökin hjá báðum kynjum virðist
vera kvíði og þunglyndi sem síðan leiðir til
átröskunar en talið er að lágt sjálfsmat hjá
stúlkum sé ennfremur þáttur sem getur haft
mikil áhrif á hvort þær þróa með sér átröskun-
artruflanir en það kemur mun sjaldnar fyrir hjá
drengjunum.
Karlar eru líklegri til að þjást af búlimíu en
lystarstoli, rétt eins og konur, en þeim hættir
miklu frekar en konum til þess að stunda þrá-
hyggjukennda og öfgafulla líkamsþjálfun.
Margir karlar þjást einnig af truflun sem er
eins konar ranghverfa lystarstols en þessi
truflun byggist á því að þeir upplifa sjálfa sig
sem veimiltítur þegar þeir eru í raun stórir og
vöðvamiklir. Þetta fyrirbæri er nefnt „bigarex-
ia". Ungir menn sem þjást af átröskunarvanda-
málum upplifa mjög oft mikla blygðunartilfinn-
ingu og vanmátt þar sem þjóðfélagið hefur til
þessa einblínt á átröskun sem kvennafyrirbæri.
Auk þess virðast konur eiga mun auðveldara
með að tjá sig um þessi alvarlegu heilsufars-
mál."
Fá kynin mismunandi meðferð?
„Nei, í rauninni ekki. Bæði kynin fá meðferð
sem byggist á að kenna þeim næringarfræði
og áherslan er lögð á að „kenna þeim" að
borða rétt. En karlar sem eru lagðir inn á
sjúkrahús vegna átröskunar eiga mjög erfitt til-
finningalega því flestar deildir sem sinna þess-
um sjúkdómum eru yfirfullar af kvenfólki."