Vikan


Vikan - 11.01.2000, Page 10

Vikan - 11.01.2000, Page 10
umhuérfí, nýr skóli opnýírfi Börnin lenda líka mjög oft í I streitu á milli foreldranná:" Ákuörðun um skiinað hefur ekkí bara áhrif á bá einstaklinga sem vilja slíta sambandi. Hún hefur áhrif á alla fjölskylduna og bá sem standa henni næst. Börnin, sem hafa bað eitt til saka unnið að elska foreldra sína, verða oft að bitbeini í hatrammri baráttu fullorðinna einstaklinga. Sorgin sem bau bera í brjósti sínu gleymist gjarnan og begar beir fullorðnu telja sig vera búna að jafna sig, bá eiga börnin að brosa og vera góð. Hjúskapar- og sam- búðarslit valda ætíð sorg hjá þeim sem að sambandinu standa. I mörgum tilfellum eru báðir aðilar sam- mála um að þeir séu ham- ingjusamari sitt í hvoru lagi og reyna að feta veg skynseminn- ar við skilnaðinn eftir því sem hægt er. Sorgin sækir þetta fólk líka heim en það er ef til vill betur í stakk búið að takast á við sorgarferli ef það er sjálft sátt við ákvörðunina. Því miður enda fleiri sambönd með sprengju þar sem annar aðilinn er sár og reiður yfir því að hinn vilji skilja. Fullorðið fólk hagar sér oft mjög óskyn- samlega og oftar en ekki gleymast blessuð börnin í öll- um hamaganginum. Foreldrarnir geta átt erfitt með að ræða málin sín á milli af einhverri skynsemi og fyrr en varir eru börnin farin að flytja skilaboð á milli þeirra og þurfa að njósna um hitt foreldrið. Áður en þau vita af er búið að stilla þeim upp við vegg og þau þurfa að taka af- stöðu með öðru foreldrinu og á móti hinu. Framhjáhald leiðir oftast af sér mjög hatramma skilnaði svo ekki sé meira sagt. Sá sem heldur fram hjá þjáist oft af sektarkennd yfir því að splundra fjölskyldunni en hinn aðilinn er að vonum sár yfir tryggðarsvikunum. í slíkum skilnuðum eru börnin oft not- uð sem vopn. Framhjáhald eru mikil svik, á því leikur enginn vafi. Þess verður sarnt að gæta að draga ekki börnin inn í slíkar illdeil- ur. Þau hafa ekki unnið til neinna saka. Sem foreldrar er það skylda okkar að huga að þörfum barnanna og láta þær stjórna gjörðum okkar. Börn eiga rétt á að umgangast báða foreldra sína svo framarlega 10 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.