Vikan - 11.01.2000, Page 26
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Á síðasia ári birtist í flótta-
mannabúðum Kosovo-Albana
í Makedóníu gráhærður mað-
ur í gallabuxum, bómullarbol
og með derhúfu merkta
hornaboltaliði. Fæstir flótta-
mannanna vissu hver var hér
á ferð en hjálparstarfsmenn
Sameinuðu bióðanna og
Rauða krossins sáu að hér
fór leikarinn heimsbekkti
Richard Gere. Flestir bekkja
orðið stuðning hans við
sjálfstæðisbaráttu Tíbetbúa
en minni athygli hefur notið
starf hans að öðrum mann-
réttíndamálum. „Ég styð
mörg líknarfélög og hér er
ég aðeins kominn til að sjá
með eigin augum hvað er að
gerast," sagði Richard við
blaðamann sem rakst á hann
í flóttamannabúðunum. „Ef
ég get á einhvern hátt hjálp-
að fólkínu hérna bá mun ég
gera bað," bættí hann við.
m e ð
essa hlið á leikaran-
um myndarlega
þekkja færri en marg-
ir töldu hann lengi vel
aðeins glaumgosa sem fækkaði
fötum á skjánum í því skyni að
stæltur líkaminn bætti upp það
sem vantaði á leikhæfileikana.
Mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan Richard Gere lék í
American Gigolo og konur um
allan heim dreymdi um hann
vakandi og sofandi. Fáir efast
orðið um leikhæfileika hans eft-
ir að hafa séð myndir á borð við
The Cotton Club, Final Analys-
is og Primal Fear. Flann er þó
ekki hættur að heilla konur og
myndirnar Sommersby, Pretty
Woman og nýjasti smellurinn
Runaway Bride eru ekta stelpu-
myndir, eins og strákarnir segja,
og töfrar þessa fimmtuga leik-
ara virðast ekkert minnka með
árunum.
Richard Gere er fæddur 31.
ágúst árið 1949, næst elstur
fimm barna þeirra Flomers og
Doris Gere. Þau bjuggu á
bóndabæ rétt fyrir utan
Syracuse í New York en land-
búnaðarkreppan rak Homer til
að hætta búskap og sjá þess í
stað fjölskyldunni farborða
með því að selja tryggingar.
Fjölskyldan var mjög tónelsk og
tónlist var í hávegum höfð á
heimilinu og Richard leikur á
trompet, gítar, banjó og píanó.
Hæfni hans á trompet kom
honum að góðum notum þegar
hann lék trompetleikara í The
Cotton Club. Richard æfði fim-
leika á uppvaxtarárunum og var
Hjörtu ótal kvenna slógu örar þegar þær sáu
hann í Anierican Gigolo.
h u g s j
nægilega góður til að hljóta
íþróttastyrk til náms í
Massachusettsháskóla. Hann
hefur sagt í viðtali að það sé
margt líkt með fimleikum og
leiklist. Undirbúningur og æf-
ingar séu geysilega erfiðar bæði
líkamlega og tilfinningalega og
síðan renni sýningarstundin
upp og henni sé lokið á mínútu.
Hætti að leika fyrir
trompetinn
f háskólanum lærði Richard
leiklist og heimspeki en hætti
eftir tveggja ára nám til að geta
farið að leika með áhugaleik-
húsi á Cape Cod og í Seattle.
Eitthvað brást leiklistin vonum
hans í fyrstu því hann ákvað að
gerast trompetleikari og bjó í
kommúnu með nokkrum
rokktónlistarmönnum í
Vermont um tíma. Til allrar
lukku ákvað hann þó að gefa
leiklistinni annað tækifæri og
fékk hlutverk á sviði í söng-
leiknum Grease en uppsetning-
in var sýnd bæði í New York og
í London. Fyrsta hlutverk hans
í kvikmynd var í Report to the
Commissioner árið 1975, þar
lék hann hórumangara. Hlut-
verkið var lítið og skilaði hon-
um engu. Það var ekki fyrr en
árið 1977, þegar hann lék morð-
ingjann sem Diane Keaton tek-
ur með sér heim af bar í Wait-
ing for Mr. Goodbar, að menn
tóku að veita honum athygli.
Næst komu myndir á borð við
Days of Heaven og American
Gigolo. Þessar tvær slógu engin
aðsóknarmet en hjörtu þeirra
ó n i r
kvenna sem sáu myndirnar
slógu talsvert örar þegar þær
fóru en áður en þær komu inn í
kvikmyndahúsið. Það var svo
loks árið 1982 að An Officer
and a Gentleman kom og Ric-
hard Gere var orðinn stjarna.
Blöðin kölluðu hann leikar-
ann sem átti frama sinn John
Travolta að þakka því John
hafði afþakkað aðalhlutverkið í
þessum þremur myndum áður
en það var boðið Richard Gere.
Hann fékk líka það orð á sig að
vera hálfgerður villingur og
sögur fóru af kvennafari hans
og drykkjuskap. Um það leyti
sem An Officer and a Gentlem-
an kom út kynntist hann hins
vegar búddatrú og skipti snögg-
lega um lífsstíl.
Hann tók upp zenbúddatrú
og hallaðist að tíbetsku útgáf-
unni af þeim trúarbrögðum.
Hann segist fyrst hafa fengið
áhuga á málefnum Tíbets eftir
að hann heimsótti tíbetskar
flóttamannabúðir í Indlandi.
Fólkið þar hafði mikil áhrif á
hann. „Það hafði svo næman
skilning á því sem raunverulega
skiptir máli í lífinu." segir hann.
Eftir það hefur hann barist op-
inberlega fyrir því að Tíbet
losni undan yfirráðum Kína og
hefur verið í hugum margra
andlit þeirrar baráttu á alþjóða-
vísu. Hann er einn af fáum út-
lendingum sem fengið hafa að
hitta Dalai Lama og margir
hafa gert því skóna að allur sá
tími og vinna sem hann eyddi í
þágu Tíbet hafi gert það að
verkum að starfsframi hans
26 Vikan