Vikan - 11.01.2000, Blaðsíða 32
Nú í upphafi nýrrar aldar er
einfaldleikinn í fyrirrúmi hvað
uarðar ýmis konar hönnun og
Calvin Klein á heiöurlnn af hönnun þessa stílhreina og glæsilega baðkers enda er honum fleira til lista lagt en
að hanna föt og ilmvötn. Takið eftir afar einföldum vatnskrananum en hann undirstrikar enn frekar einfaldleik-
ann. Þykk baðhandklæði í Ijósum, hlýlegum litum eiga mjög vel við baðker sem hafa svo náttúrulegt útlit.
pví ekki úr vegi að uerða sér
úti um nýjan hlut inn á heim-
ilið, svona til að hressa upp
á vetrarmyrkrið og gefa tón-
inn fyrir nýja árpúsundið. Hér
getur að líta nokkra fallega
Blikkkassar eru nytsamleg
geymsluílát með stílhreinu
yfirbragði. Þá má t.d. nota
undir pappír, póst, sendi-
bréf eða saumadót. Það er
ekki úr vegi að skipta út
gömlu bastkörfunni undir
prjónaskapinn og koma
honum fyrir í einum svona
blikkkassa. Ef nokkrir slíkir
eru til staðar á heimilinu er
sniðugt að raða þeim sam-
an eða setja litla blóma-
potta, myndaramma eða
annað smálegt ofan á þá.
muni sem eru sérlega stíl-
hreinir og vel til pess fallnir
að samræmast öðrum, hefð-
bundnari hlutum heimilisins
án pess að brjóta upp pann
stfl sem fyrir er.
Hér er á ferðinni einföld og stílhrein hilla fyrir baðherbergið
sem er eins konar grind. Hún er hönnuð undir handklæði en
það er afar hentugt að hafa í seilingarfjarlægð nóg af hreinum
handklæðum inni á baði. Stöngin sem hangir neðan úr hillunni
er til þess að hengja upp handklæði og getur einnig nýst vel til
að hengja upp föt til þerris.
32 Vikan
Þessi brauðrist er mjög fal-
lega hönnuð og getur gert
heilmikið fyrir útlit eldhúss-
ins. Rafmagnstæki eru
sjaldnast smekkleg í út-
liti og áherslan er yfir-
t einungis lögð á notagildi
ra. Þessi brauðrist er hins
vegar gott dæmi um að slík
þarfaþing þurfa ekki að vera
ósmekkleg heldur geta verið hreinasta
auqnayndi.
Stálpottar geta verið smekklegir hvar sem er á heimilinu, hvort sem um baðherbergi,
svefnherbergi eða stofu er að ræða. Þeir eru smart undir grænar plöntur eða
jafnvel þurrkuð blóm. Eins má nota þá sem minni eru undir blýanta og penna
sem annars vilja oft týnast og finnast aldrei þegar þeirra gerist mest þörf.
Marglitir bómullarhnoðrar ofan í stálpotti lífga upp á baðherbergið og góð
hugmynd er að nota einn þeirra undir samanvafða þvottaklúta.