Vikan - 11.01.2000, Blaðsíða 41
hrifin af
mági þínum. Að
öllum líkindum hafi þið
systurnar séð hvor
sína hliðina á þess-
um
manni og ef
til vill er best að systir þín sjái hina
hliðina líka.
Segðu henni bara hvað þú sást,
en ekki segja honum frá því. Hann
gæti þá kannski logið sig út úr
þessu ef hann er þannig gerður.
Systir þín gæti orðið fokvond út í
þig en þú skalt ekki láta það á þig
fá. Ef hann heldur fram hjá henni
er langbest fyrir hana að komast að
því sem fyrst. Ef hann er saklaus
getur hann örugglega komið með
eðlilegar skýringar á ferðum sínum
og þú þarft ekki að hafa neitt sam-
viskubit. Systir þín verður þér
þakklát seinna ef þú segir henni
sannleikann.
Spurningar má
senda til „Kæri
Póstur“ Vikan,
Seljavegi 2, 101
Reykjavík. Farið er
með öll bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
Kæri póstur,
Mig langar til að spyrja þig ráða
varðandi systur mína sem er nýgift.
Ég er nefnilega hrædd um að
ntaðurinn hennar haldi fram hjá
henni. Ég er þrem árum yngri en
hún og vinkona mín sem er jafn-
gömul sagði mér að hann hefði
reynt við sig rétt áður en þau giftu
sig. Mér fannst það ógeðslegt, en af
því að þau voru ekki gift þá skipti
ég mér ekki af því. En nú eru þau
búin að vera gift í rúmt ár og fyrir
nokkrum dögum var ég að
ganga fram hjá kaffihúsi
þegar ég sé hann þar inni
með einhverri stelpu. Ekki
segja mér að hann hafi
kannski bara verið á
„fundi" eða eitthvað, ég
stoppaði og sá alveg að það
var sko ekki svoleiðis!
Þessi maður er alltaf að
glápa á allar stelpur og
hann er alger viðbjóður.
Hann káfar á manni með
augunum.
Hvað á ég að gera? Á ég
að segja systur minni frá
þessu? Ég mundi aldrei
spyrja hann að þessu sjálf,
hann er svo mikið ógeð að
hann myndi bara ljúga að
mér og segja systur minni
að ég væri að ljúga upp á hann.
Dúkka
Kæra Dúkka,
Ég sé á öllu að þú ert ekki rnjög
Netfang: vikan@frodi.is