Vikan - 11.01.2000, Page 51
Meyjan er nákvæm er hún líka oft
næmur stærðfræðingur og kann að
feta lítt farna troðninga fjármála-
heimsins. Þú ert líklega engin und-
antekning og ert nú þegar búin/n
að reikna út árið og hvar sé best að
drepa niður fæti í heitum potti hag-
fræðinnar. Starfið sem þú sinnir er
gefandi og hæfni þín að meta að-
stæður auka gæftina.
n
Vogln
24. september
- 23. október
Almennt: Vogin er
merki breytinga og nú þegar stigið
er inn í sjöunda hús stjörnuhrings-
ins verða þær sýnilegar. Þessar
þreytingar tengjast þörf Vogarinnar
til samstarfs og að geta deilt með
öðrum lífi sínu, starfi og ástum. Þín
æðsta ósk er að ná þessum mark-
miðum og geta komið skipulagi á líf
þitt. Árið lofar góðu þar um.
Líf 09 heilsa: Heilsa Vogarinnar
er yfirleitt nokkuð góð en hún er
ekki nógu aðgætin í þeim málum
og lendir því í oftar en ekki í hrak-
förum. Neðri hluti líkamans er
næmastur fyrir áreitum og þar sem
Vogin hefuryndi af rekkjubrögðum,
lendir hún líka auðveldlega í flóru
kynsjúkdóma. En það er jú eitthvað
sem þig langar ekki að upplifa, svo
taktu þig á.
Ástir 09 kynlíf: Þeir sem hjakka
í sama farinu, ryðga með tímanum
og staðna ef hjólin eru ekki smurð
reglulega og vélin uppfærð. Nú er
einmitt rétti tíminn til að yfirfara
málin og koma reglu á hlutina, ef
þú ert í rótgrónu sambandi þá
skaltu hætta að lesa en halli vogin
hjá þér óeðlilega mikið þá er Inter-
netið góður leitarstaður sem og
flestar þær heilsuþúllur sem bjóða
upp á „blandaða" tíma.
Atvinna og fjármál: Aðdráttar-
afl Vogarinnar færir henni alltaf það
starf sem hún óskar, hvort sem hún
veldur því eður ei. Þú stendur nú á
krossgötum því val þitt stendur um
að sinna starfi þínu af einlægni eða
finna þér aðra og réttari hillu. Fjár-
málin hafa verið svona og svona en
með ákveðni og einurð verður þetta
ár gullinna tækifæra.
r mn
Sporðdrekinn
24. október
- 22. nóvember
Almennt: Sá sem
fæðist í áttunda merki stjörnu-
hringsins Sporðdrekanum er á viss-
an hátt eilífur líkt og talan 8. Það er
fátt sem haggar honum og hann
mun alltaf rísa sem nýborinn úr
arss
öskustó áfalla líkt og fuglinn Fönix.
Þetta sannast á þessu ári þegar þú
sýnir á þér nýja og gjörólíka hlið
sem vekur eftirtekt og umtal.
Líf og heilsa: Dýrið sem þú ert
kenndur við, Sporödrekinn hefur lif-
að hér á jörð frá upphafi og enn
hefur ekkert unnið á honum. Þú ert
því heilsuhraustur og veikist sjaldan
en nútímanum fylgja plágur sem
jafnvel Sporðdrekinn stenst ekki og
því skaltu vera á verði. Þú ert ber-
skjaldaður neðan mittis svo gættu
þess hvar þú sefur.
Ástir og kynlíf: Allt eða ekkert.
Þú ert ástríðufullur einstaklingur
sem setur markið hátt í ástamálum
og vilt fullkomnun á því sviði. En
enginn er fullkominn svo þér mun
láta best að halda þig á mannlegum
nótum og spá í samferðafólk þitt
sem margt er gull af manni og
leynir á ótrúlegum hæfileikum til
ásta.
Atuinna og fjármáh Keppn-
isandi fylgir Sporðdrekanum og
nýja öldin verður þér keppni við
tækifæri. Þar kemur sér vel að vera
með „fálmara" og geta numið úr
loftinu bestu kjörin á fjármálamark-
aði, bestu störfin sem bjóðast og
„skynjað" þau fyrirtæki sem eiga
framtíðina fyrir sér.
éft
Bogamaðurinn
23. nóvember
- 21. desember
Almennt: Sannleiks-
ást Bogamannsins rekur hann
áfram frá Kópaskeri til Timbuktú.
Hann er landkönnuður, heimspek-
ingur, ferðamaður og gleðigjafi sem
býr á flugvelli og ferðataska er hús-
ið hans. Þú ert því líklega þegar
rokinn af stað og sérð ekki þessa
spá.
Llf 09 heilsa: Líf þitt er hraðfara
á leið úr fortíð í framtíð og þú átt
stundum erfitt með að halda núinu
innan seilingar. Þetta kemur fram á
heilsufari þínu enda vakir þú lengur
en góðu hófi gegnir og ferð
snemma á fætur. Að öðru leiti ertu
hress, þótt smá gigt angri þig
stundum.
ÁStir og hynlíf: Nýjum tímum
fylgja nýir siðir og ef þú ert ekki
bundinn í báða skó, þá ýja stjörnur-
nar að því að austurlensk ævintýri
séu í uppsiglingu. Hvort það er
stóra ástin í lífinu er ekki gott að
segja en stjörnurnar titra af spenn-
ingi.
Atvinna og fjármál: Svo virðist
sem þeir fáu Bogamenn sem nú
þegar standa ekki á tindi starfs-
frama síns séu um það bil „að slá
sjö flugur í einu höggi". Skólagöngu
lýkur með glans, starfsframi bíður
þín og fjárhagsleg framvinda. Þessu
fylgja svo fjögur ókunn gullkorn.
Steingeitín
22. desember
- 20. janúar
Almennt: Steingeitin
er framagjörn, staðföst og raunsæ.
Hennar helsti kostur er aö þegar
hún finnur sinn farveg í lífinu, fylgir
hún honum af kostgæfni og einurð
uns tindinum er náð. Þessi kostur
þinn gerir þig að frumkvöðli og
góðum stjórnanda.
Líf 09 heílSá: Steingeitin er ekki
gallalaus og hnén geta klikkað sem
og sálaröryggið en þá „detta menn
oft í það". Þú ert kannski ekki svo-
leiðis Steingeit en engu að síður
viðkvæm innst inni og þarft því að
passa hvers konar haldreipi þú vel-
ur þér svo þú fallir ekki í fúlan pytt.
Ástir og kynlíf: Þú virðist nokk-
uð köld tilfinningalega en ert samt
mikill elskhugi. Nýja árið boðar
breytingar og þú munt nú eiga mun
betur með að tjá tilfinningar þínar
og sannreyna öðrum að þú ert gull
af manni sem kannt að gefa og
Þiggja.
Atvinna og fjármál: Framganga
þín hingað til hefur vakið athygli
sem skilar sér í aukinni ábyrgð,
fleiri nefndarsetum, meiri ferðalög-
um og bættum efnahag. Vorið lofar
góðu en sumarið verður of heitt til
að sitja inni í húsum, bílum og flug-
vélum svo þú verður þér úti um
aukið frí.
Vatnsberínn
21.janúar
-19. febrúar
Almennt: Vatnsber-
inn hefur löngum verið fimmtíu til
hundrað árum á undan sinni samtíð
og goldið þess með að vera talinn
skrýtinn furðufugl sem enginn
skilur og því oft verið einn á báti. En
nú er tími þinn kominn og allar
skrýtnu hugmyndirnar sjálfsagður
hlutur og partur af daglegu lífi fólks
á öld Vatnsberans.
Lff 09 heílSá: Það besta sem þú
gerir nú þegar á þig reynir er að
standa undir merki Vatnsberans,
hætta að éta skyndibitafæði, sæl-
gæti og annað sem elur fíkilinn í
þér og ráðast til atlögu við ræktina
og heilsuhúsið. En þótt þú sért
bólginn og blár ertu í ágætu formi
og telur enga ástæðu til að elta ólar
við slíka vitleysu. Samt sakar ekki
að spá í jóga.
Ástir og kynlíf: Eitt það versta
sem hent gat Vatnsbera á öldinni
sem leið var að blindast af þeirri
bláeygu trú sinni að elskhuginn
væri guð en ekki maður. Þetta setti
honum margar skorður og gerði
veg hans um ástina þyrnum stráð-
ann. Nú ert þú sem betur fer að
vakna af þessari villu og því verður
öldin þín engri annari lík.
Atvinna og fjármáh Vatnsber-
inn er hugmyndafræðingur og sem
slíkur er hann snillingur. Því ættu
fyrirtæki sem vilja fram, að koma
sér upp deild sem kölluð er „List-
ræn ráðgjöf" og ráða Vatnsbera til
starfa. í fjármálum ertu nokkuð
glúrinn ef þú vilt það við hafa en
einhvern veginn finnst þér peningar
aukaatriði þótt gott sé að hafa þá
við höndina.
Fiskarnir
20. febrúar
- 20. mars
Aimennt: Með síð-
asta árþúsundi kvaddi fiskamerkið
sem áhrifavaldur í lífi manna hér á
jörð. Þetta gerir þig jarðbundnari og
raunsærri í hugmyndavinnu og
ákvarðanatökum. Það leiðir svo af
sér nýtt skeið í þínu lífi, þar sem
sundið milli skers og báru verður að
ákveðinni leið og til þín verður leit-
að sem miðlara, sáttasemjara og
manns sem sætt getur andstæðar
fylkingar og eytt óöld.
Líf 09 heilSá: Þú ert viðkvæm/ur
að eðlisfari þótt þú farir leynt með
það, þetta birtist í kvefi að hausti,
vori og sumri ásamt öðrum kvillum
og verkjum í fótum. Það, að vera
maður sjálfur og láta óhrædd/ur í
Ijós tilfinningar sínar, dregur úr fyrr-
nefridum kvillum og eyðir kvefinu.
Ástir og kynljf: Ljóð eru þér kær
og ástin er eins og Ijóð, þú semur
fyrst eitt erindi, svo annað og
þriðja... Kynlíf er eins og lag við
Ijóðið og þú syngur það með ýms-
um tilbrigðum út þetta ár en þá er
kominn tími til að semja óperu.
Atvinna og fjármál: þú ert góð-
ur hlustandi, næmur sálgreinandi
og kannt að meta kvöldvinnu, því
kæmi ekki á óvart þótt þú víkkaðir
starfssvið þitt nú og opnaðir þokka-
fullan stað þar sem fólk kæmi til að
tjá sig, spá og spekúlera. Líklega
myndi staðurinn gera sig vel og
vekja eftirtekt.
Vikan 51