Vikan - 18.07.2000, Blaðsíða 2
Illlættá
sviðið með
fullri reísn
'CD *-
J_ cc
cn cz
c
«0 3
Margrét Eir kom aftur heim til íslands í febrúar 1999 gagn-
gert til að leika og syngja í söngleiknum Rent sem Þjóð-
leikhúsið var að setja upp. Dvölin er orðin mun lengri
en áætlanir gerðu upphaflega ráð fyrir. Hún hefur séð
um starfsemi leiklistarklúbba í félagsmiðstöðvum, kennt söng, syng-
ur með Selmu, lék í Latabæ á tímabili, syngur í nýjustu Tal auglýs-
ingunni og svo mætti lengi telja. Nýjasta verkefnið hennar er þátttaka
í söngleiknum Með fullri reisn sem verður frumsýndur íTjarnarbíó
21. júlí næstkomandi. Sýningin samanstendur af ungu fólki, sem fæst
hefur menntun á leikhússviðinu en mörg hver hafa töluverða reynslu
í gegnurn áhugamannaleikhópa.
„Mér finnst frábært að fá tækifæri til að vinna með svona ungu og
kraftmiklu fólki. Þessir krakkar leggja sig gífurlega mikið fram og eru
svo frábærir. Það er algjör vítamínssprauta að fá að starfa með þeim.
Hópurinn féll vel saman og það er einstaklega góður mórall í hon-
um.“ Tindrandi augu Margrétar segja allt sem segja þarf. „Ég greip
þetta tækifæri því mér finnst allar sýningar vera ákveðin reynsla. Mað-
ur á alltaf að vera í endurmenntun og víkka sjóndeildarhringinn. Ég
reyni alltaf að njóta þess sem ég hef í höndunum og gera það besta
úr því.“
Margrét Eir er einna þekktust fyrir kraftmikla rödd en færri vita
að hún er menntuð leikkona. „Eftir þáttökuna í Hárinu var ég ákveð-
in í að fara út og læra leiklist. Boston varð fyrir valinu og ég útskrif-
aðist frá Emerson Collage. Eftir að ég kom út tapaði ég mér í leik-
list. Kennararnir mínir vissu ekki að ég gæti sungið fyrr en ég var kom-
in á þriðja ár. Að útskrift lokinni reyndi ég fyrir mér í New York, og
var einungis búin að vera þar í sex mánuði þegar ég fékk hringingu
frá Þjóðleikhúsinu. Ég var varla búin að taka upp úr töskunum og
var svona dæmigerð leikkona í New York vann fyrir mér sem þjón-
ustustúlka og fór í áheyrnarprufur. Leikaralífið þar er gjörólíkt því
sem við þekkjum hérlendis. Samkeppnin er gríðarlega hörð og leik-
ararnir þurfa að sanna sig svo um munar. Sem dæmi þá þurfa þeir sem
mæta of seint á æfingar að greiða sekt. Ég ætla samt aftur til New York
að reyna fyrir mér. Þetta er bara spurning um hvenær ég læt verða
af því að kaupa farseðilinn."
„Ólélt" á suíðínu
Leikarar og söngvarar sem tóku þátt í sýningunni Hárið, sem var
gífurlega vinsæl sýning sumarið 1995 hafa verið nokkuð áberandi í
íslensku leiklistar- og tónlistarlífi ailar götur síðan. Hvernig minn-
ingar átt þú um Hárið?
„Þetta var frábær tími, engu öðru líkur. Hópurinn náði vel saman
og við skemmtum okkur öll svo vel. Það er rosalega gaman að hafa
tekið þátt í þeirri sýningu. Ég á ómetanlegar minningar frá þessu
sumri.“
Það er kannski ekkert skrýtið að Margrét Eir hafi ákveðið að nema
leiklist í Bandaríkjunum. Upphaflega fékk hún leiklistarbakteríuna
á meðan hún dvaldi sem skiptinemi í Vermont og uppgötvaði stór-
kostlegan hlut. Röddina í sjálfri sér. „Ég hafði alltaf verið í kór og haft
gaman af söng en ég spáði aldrei í að röddin mín væri eitthvað sér-
stök eða hvað ég gæti gert við hana. A meðan ég var skiptinemi tók
ég virkan þátt í leiklistarstarfsemi skólans og svo kom að því að það
átti að setja upp söngleikinn Jesus Christ Superstar. Ég ákvað að slá
til og fara í áheyrnarprófið og allt í einu uppgötvaði ég röddina í
mér. Ég fékk aðalhlutverkið, hluverk Maríu Magdalenu." Leiklist
snýst urn ný hlutverk og í því nýjasta, í sýningunni Með fullri reisn,
þarf Margrét að kljást við nýja hluti. Hún leikur barnshafandi konu
sem er langt gengin með og því þarf hún að gæta sín í öljum hreyf-
ingum.
„Þar sem ég er barnlaus hef ég leitað ráða hjá vinkonum mínum
hvernig ég eigi að standa upp úr stólum og annað slíkt. Ég held að
ég sé að ná þessurn hreyfingum en þetta er alveg nýr heimur fyrir mér.
Finnst þér ég virka eðlileg þegar ég sest svona?“ segir þessi hlátur-
milda og hressa leikkona um leið og hún æfir sig í að setjast með
stóran púða framan á sér. Aðdáendur Margrétar geta hlakkað til að
sjá hana á sviði í Tjarnarbíói í sumar og það er ekki síður spennandi
að fá tækifæri til að hlusta á hana.
2
Vikan