Vikan - 18.07.2000, Side 22
Heim að Hólum
Nemendur í Hólaskóla koma
uíða að, eru á öllum aldri og
hafa ólíkan bakgrunn. Þeir
evða einu skólaári að Hólum,
ári sem peir gleyma seint Dar
sem veran í sveitinni gerír
hessa „íbúa“ að einni stórri
fjölskyldu. Júlía Levy, Þórberg-
ur Torfason og Jóhann Gests-
son hafa upplifað einstaka
stemmningu að Hólum á bessu
árí sínu við skólann en fyrir
utan bað að hafa búið saman
síðastliðinn vetur hafa bau
upplifað sig sem hálfgerða for-
eldra og fyrirmyndir yngri
nemenda bar sem bau eru með
beim elstu í hópnum. Slíkur er
andinn bar.
„Pað er hollt fyrir sálina að búa
í svona litlu samfélagi," segir Júl-
ía við blaðamann og ljósmyndara
Vikunnar þegar sest er niður í há-
tíðarsal Hólaskóla og rætt um líf-
ið og tilveruna að Hólum. Spjall-
ið við Júlíu, Þórberg og Jóhann
fer fram að loknum hádegismat
þar sem þau borðuðu djúpsteikta
ýsu en þau hæla í hástert
matnum í mötuneyti
skólans sem þau segja
að muni fylgja sér
eitthvað fram á
sumar í formi
to «
nokkrra aukakílóa. Það er líka
góð matar- og kleinulyktin sem
mætir manni þegar gengið er inn
í skólahúsið.
Erum hluti af litlu samfé-
lagi
Hólar í Hjaltadal eru í austan-
verðum Skagafirði og þar hefur
verið skólasetur allt frá kaþólsk-
um tíma. í dag eru þrjár brautir
við Hólaskóla: Ferða-
málabraut, fiskeldis-
braut og hrossaræktar-
braut en markmið
námsins er að efla at-
vinnulíf og menn-
ingarlíf í dreifbýli
með fjölbreyttri
starfsmenntun á
sviði nútíma
landbúnaðar.
Júlía er á
ferðamálabraut
en Þórbergur
og Jóhann á
fiskeldisbraut.
Þau eiga það
sameiginlegt
að hafa tekið
ákvörðun um
það á síðasta
ári að stokka örlítið upp líf sitt
eins og þau orða það. Drífa sig í
nám og endurmeta sjálf sig með
tilliti til þeirrar vinnu sem þau
höfðu stundað í ár og áratugi.
Júlía er 53 ára, gift, á þrjú börn
og tvö barnabörn. Hún býr í
Hafnarfirði og hefur starfað um
árabil hjá íslandsbanka þar í bæ.
„Ég ákvað að taka mér launa-
laust leyfi frá bankanum í eitt ár,“
segir Júlía. „Ég var farin að hugsa
með mér að nú væri minn tími
kominn og þegar ég sá auglýs-
ingu frá Hólaskóla um nám á
ferðamálabraut varð ég mjög
spennt. Ég var alls ekki ákveðin
í því í hvað ég ætlaði að nota
þetta ár en mig langaði eitthvað
út á land eða til útlanda. Námið
á Hólum heillaði mig þar sem
það er eitt heilt ár (eitt skólaár og
verknám yfir sumarmánuðina. 45
einingar sem hægt er að fá metn-
ar við Rekstrardeild Háskólans á
Akureyri) og ég hef alltaf haft
áhuga á öllu tengdu ferðaþjón-
ustu enda náttúrulegur landbún-
aðarsinni í eðli mínu.“ Júlíu þótti
námskeiðin á ferðamálabraut-
inni áhugaverð, sbr. umhverfi
ferðamannsins og
þjóðfræðin, en
—
viðurkennir að tölvunámið hafi
verið hvað erfiðast í vetur þar
sem hún hafi ekkert kunnað á
tölvur. „Það var heldur ekkert
auðvelt að setjast niður og fara
að læra eftir að hafa ekki setið á
skólabekk í 35 ár,“ leggur Júlía
áherslu á. „Mér fannst ég gjör-
samlega týnd í tilverunni fyrsta
hálfa mánuðinn og sá allt svart en
svo fór að rofa til,“ enda fékk hún
ómælda hvatningu heiman frá.
Þórbergur, sem er 45 ára, er sjö
barna faðir. Hann er búsettur á
Hólum um þessar mundir og
stundar verknám í Hólalaxi í
sumar en eftir það út-
skrifast hann
sem
"M
»«
■ ■
1«
Vikan
Hólar í Hjaltadal liai'a ver-
ið skólasetur í nokkrar ald-
ir. I daj> býður Hólaskóli
npp á náni á flskeldisbrant,
ierðaniálabrant og hrossa-
ræktarhraut.
22