Vikan


Vikan - 18.07.2000, Síða 29

Vikan - 18.07.2000, Síða 29
reyna koma á stefnumóti. Þetta varð til þess að ég fékk það orð á mig að vera til í nánast hvað sem var og strákar sýndu mér litla virðingu. Ég skipti mér hins vegar lítið af þeim og reyndi að forðast þá eftir fremsta megni. Vináttu minni og þessara stelpna lauk þegar þær réðust á mig fjórar einn daginn heima hjá einni og klæddu mig úr hverri spjör. Síðan dönsuðu þær stríðs- dans í kringum mig og hlógu. Ein tók heilan fisk sem móðir henn- ar ætlaði elda um kvöldið og sló mig með honum hvað eftir ann- að í andlitið og á skrokkinn svo fiskslorið loddi við mig og lak niður eftir andlitinu á mér. Þessu lauk með því að þær fleygðu föt- unum mínum út í garð. Þar mátti ég svo klæða mig hágrátandi og nötrandi af ótta og vanlíðan. Næstu tvö árin fór ég einförum að nýju. Vinkonurnar svokölluðu gerðu nokkrum sinnum tilraun- ir til að nálgast mig aftur og sum- ar báðu mig afsökunar. Þær sögðu að hlutirnir hefðu gengið mun lengra en þær ætluðu sér en ég hreytti því í þær að það eina sem þær söknuðu væri að hafa engan til að snúast í kringum þær. Að þessum tveimur árum liðnum kynntist ég yndislegri stelpu í skólanum. Hún kom að utan þar sem hún hafði búið með fjöl- skyldu sinni árum saman og var full sjálfstrausts og lífsgleði. Hún var líka alveg laus við þjóðarsjúk- dóm þann sem hrjáir íslendinga en það er öfundin. Illkvittni var heldur ekki til í henni ólíkt mín- um fyrri vinkonum. Sannur uinur gerír kraftaverk Þessi stúlka varð trúnaðarvin- kona mín og í dag er ég sannfærð um að hún bjargaði lífi mínu. Ég gat sagt henni frá öllu sem ég hafði gengið í gegnum og hún studdi mig í að leita mér hjálpar. Hún hvatti mig einnig til að fara í meira nám og benti mér á að ég hefði góða námshæfileika og al- veg sérstaka hæfileika á einu sviði. Sjálf hafði ég aldrei litið svo á að nokkuð sem ég gæti væri merkilegt. í mínum huga var allt það sem ég gat svo auðvelt að það hlyti að vera öllum leikur einn. Ég hafði mig yfirleitt aldrei í frammi í hópi og reyndi alltaf að tala sem minnst. Eftir að ég kynntist þessari vinkonu minni sagði hún mér að ég hefði mikla frásagnargáfu og hvatti mig til að leyfa öðrum að njóta hennar. Margt fleira gott tíndi hún til í fari mínu og henni var einhvern veg- inn lagið að láta mann finna að hún meinti það sem hún sagði. Innantómt skjall var ekki til í hennar munni. Við vinkonurnar urðum sann- ferða í háskóla erlendis og við Kennarinn sagði að ég hefði breyst úr glaðlyndri skemmtí- legri stúlku í ófé- lagslyndan fýlupoka. tóku bestu ár ævi minnar. Mér fannst að loksins hefði hafist þetta nýja líf mitt sem ég hafði beðið svo lengi eftir. Ég gat skil- ið Ijótu, leiðinlegu stelpuna sem allir fyrirlitu og kvöldu eftir heima og verið ég sjálf og um tíma tókst það. Mér gekk vel í náminu og ég naut vinsælda með- al skólafélaganna. Ég tók þátt í mörgum klúbbum og félögum sem voru starfandi innan skólans og allt sem ég tók mér fyrir hend- ur tókst vel. Ég kynntist líka ynd- islegum strák og í fyrsta skipti gat ég notið félagsskapar karlkyns- aðdáanda án þess að maginn væri í hnút og ég reyndi að leika ein- hverja allt aðra persónu. Þessi piltur varð maðurinn minn eftir að við höfðum búið saman í þrjú ár. Vinkona mín flutti aftur heim og ég var mjög hamingjusöm í nýja landinu. Hjónabandið gekk ekki áfalla- laust og eftir nokkurra ára erfið samskipti sagði ég manninum mínum loks frá því sem komið hafði fyrir mig heima á íslandi. Hann vildi að ég færi í meðferð hjá sálfræðingi og lengi var ég treg til. Nýlega féllst ég þó á að reyna það og nú hef ég gengið til sálfræðings í nokkra mánuði. Mér líður lítið betur en ég er far- in að gera mér grein fyrir að ég get aldrei hlaupið frá fortíð minni. Aður en ég öðlast sálarró og innri frið verð ég að sættast við Ijótu, leiðinlegu stelpuna og átta mig á að hún er hluti af mér. Ég heimsótti ísland á dögunum og mætti einum af fyrrum bekkjar- bræðrum mínum á götu. Eitt andartak varð ég aftur litla hrædda stelpan og mín fyrstu við- brögð voru löngun til að hlaupa í felur. En svo safnaði ég kjarki gekk að honum og spurði: „Manstu ekki eftir mér? í þrjú ár gerðir þú líf mitt helvíti líkast." Hann eldroðnaði og varð mjög skömmustulegur en ég lét þetta nægja og gekk burtu. Mér fannst ég hafa fengið nokkra uppreisn æru og sérstaklega var notaleg vissan um að fyrir örfáum mán- uðum hefði verið óhugsandi að ég þyrði að ávarpa þennan mann. Lesandi segir Steingerði Steinarsdóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni meö okkur? Er eitthvaö sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lifi þinu? Þér er vel- komiö aö skrifa eða hringja til okkar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. I Icimilisfaiigii) er: Vik:m - „I.ífsreynsliisajía", Seljuvcgur 2, 101 Keykjavík, Netfaug: vikan@frmli.is

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.