Vikan


Vikan - 18.07.2000, Side 44

Vikan - 18.07.2000, Side 44
„Ef þú ert svona viss um að við höfum sést áður hvers vegna segir þú mér ekki hvar og hvenær það var og hættir þessum skrípaleik?" spurði Annie reiðilega. Hann hristi höfuðið og benti á vínglasið. „Smakkaðu á víninu.“ „Var það í Englandi? í London?“ „Þú græðir ekkert á þessum getgátum. Pað kemur að því að þú getur sjálf svarað þess- um spurningum.“ Hún var farin að geta lesið í svipbrigðin, augnaráðið og munnsvipinn sem ýmist var mildur eða harðneskjulegur. Hann hafði ekki neitað því að þau hafi hugsanlega hist í Englandi en samt gat hún les- ið úr svip hans að það hafi ekki verið þar. Hvar gæti það hafa verið? Hún var ákveðin í því að veiða upp úr honum sannleikann. „Var það í Ameríku?“ Hann hló og hristi höfuð- ið. Það komu ekki mörg lönd til greina. Enn sem komið var hafði Annie ekki ferðast víða. „Var það hérna? I Frakk- landi." Hann svaraði ekki en aug- un ljómuðu eins og svartar stjörnur. „Það var sem sagt í Frakk- landi,“ sagði hún varlega. „Ertu að segja að þú sért farin að trúa því að við höfum hist áður?“ spurði hann ákaf- ur. í þetta sinn var það hún sem svaraði ekki. Hún þurfti þess ekki, roðinn í kinnunum og augnaráðið töluðu sínu máli. Að síðustu svaraði hún: „Ég veit að þú trúir því. En því miður verð ég að segja að ég man alls ekki eftir jrví að hafa hitt þig áður. Ég hef komið nokkrum sinnum til Frakklands, síðast var ég tvær vikur í Normandy með vin- konu minni og systur henn- ar. Við gistum á yndislegu hóteli í Caborg, við sjóinn. Það var mjög heitt þetta sum- ar og við vorum meira og minna á ströndinni. Var það þar sem við hittumst?" Hann hristi höfuðið, drakk af víninu og hallaði sér aftur í stólnum. Augun voru hálf- lokuð og hann rétti úr fót- leggjunum á gólfinu. Annie gat ekki stillt sig um að stara á hann. Hún horfði á stinna vöðvana hreyfast undir skyrt- unni þegar hann dró andann. Hann var karlmannlegur og fallega vaxinn. Hún gat ekki neitað því að hann var mjög kynþokkafullur. Hún mætti augnaráði hans en leit svo undan og roðnaði. „Jæja, segðu mér hvenær nú við hittumst.“ Hún skammaðist sín fyrir hugsan- ir sínar. Vonandi hafði hann ekki séð hvað hún var að hugsa. „Það er ekki nema sanngjarnt. Hvers vegna í ósköpunum viltu ekki segja mér það?“ „Vegna þess að þú verður að muna það án minnar að- stoðar,“ sagði hann. „Hvers vegna?“ spurði hún þrjóskulega. Hann lét sem hann heyrði ekki spurninguna. „Fáðu þér eitthvað að borða. Þú lítur út fyrir að þarfnast þess. Kannski er það þess vegna sem þú ert svona skapvond.“ „Ef ég er í vondu skapi er það vegna þess að þú heldur mér hér nauðugri! “ sagði hún reiðilega, greip um vínglasið og þambaði úr því. Hann horfði á hana glettnislega. „Varlega nú! Ef þú ert óvön því að drekka vín getur þú orðið drukkin ef þú drekkur of hratt.“ Hún teygði sig eftir flösk- unni sem stóð á miðju borð- inu en Marc tók af henni flöskuna og hellti örlitlu í glasið hennar áður en hann fyllti sitt eigið. „Fáðu þér að borða áður en þú drekkur meira. Það er ekki gáfulegt að drekka á fastandi maga,“ sagði hann föðurlega. „Viltu gjöra svo vel að hætta að hugsa fyrir mig.“ En hún varð að viðurkenna að hann hafði rétt fyrir sér. Mat- urinn var ljúffengur; salatið, osturinn og brauðið. Með sal- atinu hafði hann útbúið ljúf- fenga sósu úr sítrónusafa, ólívuolíu og jurtakryddi. Annie tók rösklega til matar síns. Taugastríðið virtist hafa örvað matarlystina. I eftirmat fengu þau sér ávexti og það albesta kaffi sem Annie hafði nokkru sinni smakkað. Hún sagði honum það og hann glotti. „Þakka þér fyrir. Leyndar- málið á bak við gott kaffi eru nýmalaðar kaffibaunir. Það á aðeins að mala nákvæmlega það sem þarf að nota hverju sinni til þess að kaffið glati ekki rétta bragðinu." „Ég drekk alltaf skyndi- kaffi heima,“ viðurkenndi hún og hann fitjaði upp á nef- ið. „Skyndikaffi? Það er ekki hægt að bera þetta tvennt saman.“ „Líklega ekki, en venjulega hef ég hvorki tíma né orku til þess að standa í því að mala kaffibaunir. Ég vinn hörðum höndum flesta daga vikunn- ar og er dauðþreytt þegar ég kem heim. Þá langar mig bara til að slaka á; horfa á sjón- varpið, lesa tímarit eða fara í heitt bað, til þess að gleyma erfiði dagsins. Ég geri ráð fyr- ir að þú hafir sömu hugmynd- ir um tónlistarfólk og flestir virðast hafa; að við séum bara að leika okkur í upptökuver- um og á ferðalögum um heiminn, og að fæst okkar hafi nokkra tónlistarhæfi- leika. En þetta er ekki hægt að segja um þá sem ég vinn með. Við vinnum hörðum höndum, æfum sama lagið upp aftur og aftur og þurfum oft að taka það upp margsinn- is áður en tæknimennirnir eru ánægðir. Þér er óhætt að trúa því að þetta er þreytandi og fer illa með röddina. Tón- leikaferðalögin eru jafnvel erfiðari, við æfum á daginn, höldum tónleika á kvöldin og ferðumst um heilu heimsálf- urnar. Tónleikaferðirnar eru svo sannarlega engar skemmtiferðir.“ Hann leit á hana og brosti. „Það eina sem ég sagði var að nýmalað kaffi væri betra en skyndikaffi. Ekkert er meira fjarri mér en að gagn- rýna vinnuna þína.“ Hún roðnaði og brosti til hans á móti. „Fyrirgefðu. Ég er óvenjuviðkvæm fyrir gagn- rýni þessa dagana. Fyrir stuttu var ég í viðtali hjá blaðamanni sem hafði lítið álit á metnaðargjörnum kon- um. Að hans mati eru það konur sem kaupa tilbúinn mat á leiðinni heim úr vinn- unni eða henda einhverju inn í örbylgjuofninn í stað þess að elda almennilegan mat handa mönnunum sínum. Við rif- umst heiftarlega og hann tætti persónu mína niður í viðtal- inu.“ Hann hlustaði með athygli. „Er það ekki rétt skilið að það sé enginn maður í lífi þínu? Nema að þér hafi tekist að fela hann fyrir fjölmiðlun- um?“ Hún skynjaði ákafann í rödd hans og spennuna í lík- amanum. Hárin risu á höfð- inu á henni. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem hún varð fyr- ir barðinu á dýrkun sem nálg- aðist þráhyggju. Sumir þurftu á stjörnu að halda. Stjörnu sem þeir dýrkuðu í fjarlægð og þráðu að vera í nánum samskiptum við. Annie hafði alltaf verið hrædd við þannig dýrkun. Hún hafði aldrei ver- ið í hættu af þessum sökum en hún hafði stundum verið 44 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.