Menntamál - 01.12.1940, Síða 23
MENNTAMÁL
85
VII. Dreifing greindarvísitölunnar.
Eftir tilraunum, sem gerðar hafa verið, hefir dreifing
greindarvísitölunnar (eða frávik einstaklinganna frá með-
allaginu) verið reiknuð út. Eftir amerískum útreikningum
er niðurstaðan þessi:
GV 0,70 og minna
— 0,70- -0,79 5% — — —
— 0,80- -0,89 14% — —
— 0,90- -0,99 30% — — —
— 1.00- -1,09 30% — —
— 1,10- -1,19 14% — —
— 1,20- -1,29 5% — —
— Yfir 1,29 1% — — —
Börnum má skipa í eftirtalda flokka eftir greindarvísi-
tölu þeirri, sem þau hafa.
I. Örvitar (idiótar) hafa greindarvísitöluna 0,25 og þar
fyrir neðan. Þeir læra ekki að forðast algengustu hættur
eða jafnvel að annast nauðþurftir sínar, nema með lang-
varandi ögun og tamningu. Verksvit hafa þeir svo að segja
ekkert. Þeir verða að vera í sérstökum stofnunum.
II. Fávitar (imbeciles). GV 0,25—0,49. Þeir forðast al-
gengustu lífshættur, matast og klæðast. Þeir geta lært ýms
verk, en verða þó að vera undir annarra stjórn. Margir
þeirra þurfa að vera í sérstökum stofnunum.
III. Hálfvitar. GV 0,50—0,70. Mjög heimskir menn, en geta
þó unnið einföld verk án eftirlits annarra, t. d. gegningar,
almenn erfiðisverk, ýmsa handavinnu. Margir geta ekki
verið sjálfs sín ráðandi, sakir ráðleysis. í borgum verða
þeir „rónar“, betlarar og götuslæpingjar og lenda í eymd,
ef enginn hefir hönd í bagga með þeim. í sveitum geta
þeir orðið allgóðir vinnumenn. Þessi börn þurfa að vera í
sérstökum skólum.
IV. Greindarsljó eða treggáfuð hörn. GV 0,70—0,85. Geta
ekki fylgzt með venjulegri kennslu í skólum. Fyrir þessi börn