Menntamál - 01.12.1940, Síða 25

Menntamál - 01.12.1940, Síða 25
MENNTAMÁL 87 VIII. Stöðugleiki greindarvísitölunnar. Hér að framan hefir verið minnzt á frávik á úrlausnum einstaklinganna frá meðalgildi því, sem reiknað hefir verið út fyrir hvert aldursskeið. Þetta frávik hefir yfirleitt til- heigingu til að stækka nokkuð með aldrinum, þ. e. þá kemur munurinn á gáfum barnanna skýrar í ljós. Ef barninu fer tiltölulega jafnt fram frá ári til árs, á greindarvísitala þess alltaf að vera hin sama. Þetta er hin almenna regla. Hjá meðalgreindum börnum er greindarvísitalan nokkurn veg- inn stöðug, eða sýnir aðeins óverulegar sveiflur. Þó eru á þessu allmargar undantekningar, og er þetta ein ástæðan til þess, að eigi er ráðlegt að ákveða vitaldur barnsins eftir eina vitprófun. Þessi framför eða afturför barnsins að viti hefir einna mesta þýðingu fyrir vangefin börn, t. d. þau, sem eru á takmörkum þess að vera andlega sljó og hálfvitar, eftir úrslitum fyrsta vitprófs að dæma, Tvö börn hafa t. d. bæði við fyrsta vitpróf GV 0,70; eftir 3—4 ár hefir öðru farið svo aftur, að það hefir GV 0,60, og þá er það greinilega hálfviti. Hinu hefir aftur á móti farið fram, svo að það hefir GV 0,80, og á það því greinilega ekki heima í sérstökum skóla fyrir hálfvita. IX. Námshæfileikar og greindarvísitala. Ef við göngum nú út frá því, að Binet-prófin séu sæmi- legur mælikvarði á almennan andlegan þroska eða al- menna skynsemi, þá vaknar spurningin: að hve miklu leyti fylgist almenn skynsemi og námshæfileikar að? Samsvara þau alltaf hvort öðru? Við vitum af reynslunni, að þetta er sitt hvað. Háar einkunnir eru ekki einungis komnar undir góðri skynsemi, heldur undir ástundun og áhuga, og oft eru þær frekar í sambandi við gott minni en skynsam- lega, sjálfstæða hugsun. Gáfaðir menn eru því ekki alltaf góðir námsmenn, ýmist af því að þeir leggja sig ekki fram

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.