Menntamál - 01.12.1946, Síða 5
MENNTAMÁL
139
Úr vinnustofu Gagnfrœðaskólans <í ísafirði.
í samráði við fræðslumálastjóra og með samþykki hans
höfum við einnig tekið í gagnfræðaskólann eina deild
barna, sem annars áttu einn vetur eftir í barnaskóla eftir
núgildandi lögum. Er það gert vegna þess, að gagnfræða-
skólinn hefur nóg húsnæði, en barnaskólinn býr við
þröngan húsakost, — barnaskólahúsið var upphaflega
byggt 1901 og þótti þá mektarhús, en stækkað 1930. Þessi
aukadeild, sem við höfum tekið í gagnfræðaskólann eftir
nýju lögunum, er bóknámsdeild.“
„Breytið þið þá ekki námsskránni í þessari deild fyrsta-
bekkjar töluvert frá því, sem verið hefur?“
„Við förum þar yfirleitt alveg eftir tillögum fundar
skólastjóra gagnfræðaskólanna og héraðsskólanna síðast-
liðið sumar, en þar voru samdar tillögur að námsskrá, eins
og þú veizt.“ (Það umlar í ritstjóranum til samþykkis).
„Við kennum til dæmis ekki nema eitt erlent tungumál í
þessari deild, dönsku, en enskan á að koma næsta ár. Svo